sunnudagur, september 24, 2006

4 dagar í stelpurnar mínar

Hér er ég ennþá í Danmörku og stelpurnar mínar eru á Íslandi eeeen þær eru að koma núna á fimmtudaginn og ég er orðinn svakalega spenntur :) Elín er búin að vera að senda mér fleirri myndir og ég sé að hún er farin að gera svo margt nýtt, hún er að læra nýja hluti á hverjum degi. Núna er hún búin að fá 2 nýjar tennur sem þýðir að hún er komin með 6 tennur, hlakka til að vera bitinn í næstu viku :D

Frikki og Eva voru hér í Danmörku í heimsókn, þau gistu hjá Andra og við fórum í tívolí á föstudaginn, ég fór með Frikka í turninn því enginn annar þorði með honum, sem ég skil vel því turninn er þannig að maður sest í sæti utan á turni sem eru síðan dregin upp u.þ.b 80metra (eða meira) og þegar maður er kominn þangað og skoðar þetta glæsilega útsýni....þá....er sætunum sleppt þannig að maður dettur niður alla þessa metra(held að það sé jafnvel þrýst á mann þannig að maður fer hraðar). Þetta tæki er furðulegt því það er bæði hræðilega scary og á sama tíma fær maður svakalegt adrenalin kikk, fæturnir gefa eftir þegar maður gengur eftir á...sjáum til hort ég geri það aftur.

Nú eru bara nokkrir dagar í að við erum sameinuð aftur litla fjölskyldan, við fengum nefninlega þessa fínu íbúð í Valby sem er bara rétt utan við miðbæinn. Í götunni okkar eru mörg lítil kaffihús og litlar búðir og rétt hjá er garður sem hægt er að fara í göngutúra. Það koma myndir þaðan strax og við erum flutt inn :)

Myndir: Á fyrstu myndinni er Freyja í heimsókn hjá Huldu vinkonu Elínar sem var að eignast litla stelpu fyrir ca. mánuði síðan og Freyja er að skoða hana (sjáið hvað Freyja er orðin stór miðað við litla barnið). Næsta mynd er af Freyju í göngugrindinni sinni með svolítið skömmustulegan svip :D, Freyja kát hjá afa sínum, stundum er maður bara of þreyttur til að leika og þá er best að leggja sig aðeins :D, Freyja í nýjum fötum í sófanum hjá afa og ömmu, nývöknuð en kát eins og alltaf, tvær nýjar baðmyndir af dömunni, 2 myndir af Freyju nýkominni úr baðinu og ennþá svolítið eftir að þurrka :), Freyja að reyna að skríða! :D, kát hjá ömmu Björgu, 2 myndir af Freyju úti í garði að skoða grasið. Síðasta myndin er af Freyju að prófa nýja vagninn sinn :)




Já þá er síðasti myndapósturinn þar sem við erum ekki saman. Næst verðum við kát og hress hér í Danmörku sameinuð á ný :)

Bless í bili,
Kossar
Kári

föstudagur, september 15, 2006

Danmerkurpóstur nr.1

Hæ öll sömul, ég biðst afsökunar á því hve langt er síðan myndir komu inn síðast, en það er náttúrulega góð útskýring til á því. Ég er sem sagt búinn að vera hér í Köben núna í næstum 2 vikur og sakna stelpnanna minna alveg ógurlega. Ég er samt búinn að heyra í Elínu daglega(guð blessi dönsku strákana sem fundu upp skype-ið) og núna síðustu daga hef ég fengið myndir af þeim frá Elínu gegnum messengerinn.

Skólinn byrjaði vel hjá mér og fékk ég gott hrós frá kennaranum mínum sem er akkúrat það sem maður þarf eftir eins árs fjarveru. Núna er svo komið annað verkefni þar sem ég á að setja upp ljóð og reyna að myndskreyta með typografíu, sjáum til hvernig það fer.

Hér eru myndirnar af Freyju minni og Elínu :)
Fyrstu 3 myndirnar sýna Freyju að chilla í sófanum og smám saman fara að skellihlægja (ótrúlega gaman að sjá alla þessa nýju svipi sem eru að koma hjá henni, sem ég missti reyndar af...en það kemur svo margt fleirra), svo koma 3 myndir af Freyju í baði (það er orðið aðal-sportið þessa dagana :D), því næst er mynd af Freyju með annan fyndinn svip hehe, tvær myndir af henni í rúllufáknum og á þeirri seinni er hún með ENN annan svip!, 3 myndir síðan af uppáhalds skvísunum mínum í öllum heiminum, 2 af Freyju með dótið sitt og nýja svipi :D, og loks er ein mynd af Freyju í berjamó með mömmu sinni og ömmu sinni (það er rosa rólegt og gott í sveitinni :D)



Þá er þetta komið í bili, næst verða vonandi myndir af ökkur öllum 3 saman í kaupmannahöfn, ég er nefninlega að fara að kíkja á íbúð núna rétt bráðum og vonandi er hún bara fín fyrir okkur í litlu fjölskyldunni.

Kossar til allra heima, ég sakna ykkar strax og þúsund kossar til Freyju og Elínar sem ég sakna mest, ég er bara 1/3 maður hérna einn.

Kveðja frá Köben og Reykjavík,
Kári, Elín og Freyja