þriðjudagur, október 24, 2006

Bjarni og langamma i Illum



Já það hefur verið nóg að gerast hjá okkur hérna úti í Danmörku síðustu vikuna. Bjarni Bróðir hennar Elínar kom til okkar í 10daga og við áttum svo aldeilis góðan tíma saman, ég og Elín skiptust á að fara út með honum sem var fínt þó það hefði sko verið alveg frábært að hafa mömmu hérna til að passa a.m.k eitt kvöld svo við kæmumst öll saman út...en svona er þetta :D

Það tekur því varla að telja upp alla staðina sem við fórum á því þeir voru svo margir, en það voru tekin fín upprifjunarkvöld frá því að Bjarni var hér úti í námi, hann fékk okkur samt ekki til þess að fara á "all you can eat" mexikóska staðinn sem hann og Jói stunduðu stíft á sínum tíma :D

Amma mín og langamma Freyju kom með Birnu konunni hans Kjarra frænda til Danmerkur í ferð með Odd Fellow og við hittum á þær á laugardaginn. Við fórum á fínasta kaffihús sem er á efstu hæð í Illum verslunarhúsinu, þar er góð aðstaða fyrir börn og Freyja var sko mjög ánægð með að geta fylgst með krökkunum sem voru þar líka að leika sér.

Bjarni fór svo á sunnudaginn heim aftur en bara stutt því hann kemur aftur eftir 2 helgar á einhverja ráðstefnu og hátíð jólabjórsins :)

Í gærkvöldi buðum við Andra í heimsókn til okkar í smá mat sem lukkaðist bara ágætlega sem betur fer, fínasta kvöld :)

Hér að lokum er vídeó af Freyju að skríða á fulle fem, hún fer núna hvert sem hún vill - ekkert mál. Hún er ekki komin upp á hnén samt en hún er sterkí því að draga sig áfram.



Kærar kveðjur,
Kári, Elín og Freyja

þriðjudagur, október 10, 2006

Amma Björg og önnur IKEA ferð



Þá kemur nýr póstur, smá nýtt skipulag hjá mér, nú er myndin efst af albúminu sem myndirnar eru í, fólk ræður þá bara hvrn hlutinn það kíkir á fyrst :)

Mamma mín kom núna á miðvikudaginn síðasta og var hér þangað til í gær, það var alveg rosalega gaman að fá heimsókn til okkar í nýju íbúðina, við getum þá montað okkur af litla kotinu :D Freyja tók ömmu sinni strax rosa vel og brosti þegar hún sá hana koma út um hliðið á flugvellinum, þær voru síðan hinir mest mátar allan tíman sem mamma var hjá okkur.

Við Elín fengum þá pössun nokkrum sinnum meðan mamma var hér, einu sinni til að fara í IKEA aftur, því við vildum ekki gera Freyju það að taka hana með, henni leiddist svo mikið síðast. Þessi seinni ferð okkar heppnaðis mun betur því við fundum nánast allt (smá ósamkomulag um sjónvarpsborð, sem við ákváðum bara að geyma smá) og við komumst í gegnum búðarkassan án nokkurra visakorta vandamála :D

Við Elín fórum svo á föstudags-bar í skólanum hjá mér sem var bara ágætur satt að segja, síðastu árin hafa þeir verið frekar leiðinlegir en þetta var skemmtileg tilbreyting. Andri og Tinna og Janus komu líka og við spjölluðum aðeins frameftir. Á sunnudeginum fengum við Elín líka að kíkja aðeins á La Fontain, okkar yndlings bar :) þar var skemmtileg jazz hljómsveit að spila sem er líka sjaldgjæft :D

Við fórum á sunnudeginum með mömmu í dýragarðinn, Freyja svaf smá fyrst en svo vaknaði hún og við kíktum á fíla. Freyja var ekkert að taka eftir honum, hann var svo stór að ég held að hún hafi bara ekki áttað sig á því að þetta væri e-ð sem væri á lífi :D hún kíkti bara á runnann sem var fyrir framan fílasvæðið :D Í apahúsinu var hún ekkert mikið að skoða apana, það voru önnur lítil börn sem voru aðal málið þar, þannig að það vantar ábyggilega nokkra mánuði upp á að hún hafi virkilega gaman að dýrunum. En við fullorðna fólkið skemmtum okkur konunglega :D

Við þökkum æðislega vel fyrir okkur mamma mín, vildum bara að þú hefðir getað verið lengur :) Nú er bara að undirbúa sig undir heimsókn frá Bjarna á föstudaginn! :D

Kærar kveðjur frá okkur þremur
kossar
Kári, Elín og Freyja

þriðjudagur, október 03, 2006

Stelpurnar komnar!

Já þá hefur margt gerst hjá litlu fjölskyldunni, við erum öll saman á ný í litlu sætu Valby íbúðinni okkar.

Elín og Freyja komu á fimmtudaginn. Freyja svaf alla flugferðina og var voða góð, það voru svo fáir að fljúga að þær fengu heila röð fyrir sig og Freyja gat því sofið þvert á 2 sæti. Þegar Elín lenti í Köben var pínu erfið ferð út til mín, þetta er ekki alveg þægilegasti ferðamáti fyrir litla dömu og mömmu hennar því það voru engar barnakerrur til taks. Elín þurfti að halda á Freyju niður að töskunum þar sem einhver góð íslensk 6 manna fjölskylda ákvað að hjálpa henni. Þau fundu töskurnar hennar fyrir hana og kerruna og loks komust þær út til mín. Ég sat hinum megin við glerrúðuna horfði á og gat ekkert gert til að hjálpa...frekar óþægilegt :(

Freyja starði á mig í svona 2mínútur án þess að depla og var með mesta undrunarsvip sem ég hef séð á nokkrum manni :D hvað hún var að hugsa veit ég ekki, en mér dettur tvennt í hug: 1) "bíddu, eitthvað kannast ég við þennan gaur, hver er hann aftur?" og 2) "Núna læturðu sjá þig! Hvar hefur þú eiginlega verið í þennan mánuð! Sussussusss!". Kannski get ég spurt hana seinna að því :D En eftir þessar 2 mínútur af stari þá vorum við aftur rosa góðir vinur og höfum verið alla þessa daga sem búnir eru. Það er yndislegt að fá þær dömurnar mínar aftur til mín :)

Á föstudag fórum við í 4tíma IKEA session sem endaði með 3 kerrum og synjun á kortið mitt! Ég fór næstum að grenja því ég hafði haft óþægilegan grun um að e-ð þessu líkt myndi gerast alveg frá því að við stigum fæti inn í búðina. Eftir eitt stutt símtal heim (þetta var lás á einhverju áhættuþaki á úttektum erlendis...make-ar sens í rauninni) og allar vörurnar stimplaðar inn í kassan aftur þá komumst við heim á leið þar sem sendibíllinn beið okkar. Við erum búin að koma okkur ansi vel fyrir núþegar en þurfum bara nokkur ljós og smádót og þá erum við með fullkomna íbúð.

Mamma mín kemur svo á morgun í nokkurra daga heimsókn og það verður rosa næs, hlakka til að fá fólk í heimsókn :D

Nú eru myndirnar á nýju formati. Ég stofnaði svokallaðan Flickr account þar sem ég get hýst myndirnar á auðveldan hátt á netinu, nú þarf aðeins að ýta á linkinn sem ég set hérna fyrir neðan og svo ætti að vera frekar auðvelt að finna sér leið í gegnum myndaalbúmið (ýtið á fyrstu myndina og svo koma myndir hægra megin, ef ýtt er á þær er hægt að fara áfram í gegnum myndirnar). Ég get líka sett mikið fleirri myndir inn í hvert skipti :)

MYNDASYRPA 1

Ég set inn nýrri myndir innan skamms, því þessar eru svona left-overs frá íslandi og svo ein héðan.

Þúsund kossar til allra heima
Kári, Elín og Freyja