þriðjudagur, desember 05, 2006

Freyja er farin að standa, en ekki alein...



Já síðan síðast er Freyja heldur betur farin að gera nýja hluti, hún stendur núna ein við borð, eða hillur eða hvað sem er í rauninni, og meðan hún var að æfa sig datt hún kannski svona 4 sinnum áður en hún varð vikilega stabíl. Núna stendur hún kannski við sófaborðið og tekur eitt skref til að komast að sófanum. Við Elín erum svakalega stolt auðvitað :D

Hún er farin að borða meira af mat núna líka, samt er hún stundum frekar matvond og hristir hausinn ef hún vill ekki eitthvað en svo þegar maður setur það í munninn á henni borðar hún það samt alveg :D Hún finnur bara að haushristið hefur einhver áhrif og þess vagna nýtir hún sér það eins og hún getur.

Hún segir mamamama og papapa og faðmar okkur og bangsana og segir ahhhh á meðan, það er sko ekki amaleg vekjaraklukka það :D þegar hún kemur uppí til okkar á slaginu 7:15 fáum við knús í svona 10 sek hvort og svo vill hún fara að gera eitthvað, þýðir ekkert að hanga lengur!

Á kvöldin klukkan átta er hún tannburstuð og sett í rúmmið, það er alltaf erfitt að skipta á bleyju (það er svo svakalega leiðinlegt, plús það er miklu skemmtilegra að vera berrassaður)en þegar í rúmmið er komið þá er fínt að fá smá sopa af mjólk, og svo bara leggst hún á hliðina og sofnar, ekkert mál þannig, stundum vaknar hún einu sinni til tvisvar á nóttu en venjulega sefur hún mestmegnis alla nóttina. Einu skiptin sem hún vaknar eitthvað að ráði er þegar hún er með smá magapínu eða eitthvað svoleiðis.

Nú er aldeilis farið að styttast í heimkomu, við ætlum okkur að koma heim þann 17.des og vera fram í byrjun janúar, það verður frábært að sjá alla aftur og sýna Freyju - smá mont hefur ekki skaðað neinn er það...smá bara :D

Hér er vídeó af Freyju að borða, hún er reyndar ekkert voða hrifin af kjötinu en er vel til í að fá sér nokkrar gular baunir :) Svo er veifað í endann. Þetta er pínu stærri fæll en venjulega, hann er 23,5MB, og mætti vera ljósari en kíkið endilega samt :)



Svo er annað að frétta að konan sem er að leigja okkur er búin að ákveða að hætta með kærastanum sínum (NB hún var búin að búa með honum í 2 mánuði...!) og er sem sagt búin að senda okkur uppsagnarbréfið, það er 3 mánaða uppsagnafrestur þannig að við höfum út febrúar til að finna eitthvað nýtt...Boring því við vorum rosa ánægð með þessa íbúð, konan ætlar samt að hjálpa okkur að finna e-ð nýtt, sem við og gerum :)

Jæja, kærar kveðjur héðan frá heitu Danmörku, það eru víst ennþá bananaflugur á lífi hér, það hefur aldrei nokkurn tíman gerst áður...enda er þetta búið að vera heitasti nóvember síðan sautjánhundruð og súrkál.

Kossar frá Kára, Elínu og Freyju prakkara

P.S Til hamingju með afmælið elsku mamma mín, extra kossar frá okkur til þín :)