sunnudagur, apríl 30, 2006

4 Mánaða

Já núna er Freyja okkar orðin 4 mánaða, ótrúlegt alveg hve ung hún er, manni finnst hún búin að vera svo lengi, næstum eins og hún hafi alltaf verið hjá okkur :)

Við fórum núna á föstudaginn í 4 mánaða skoðun og þar sást að Freyja hafði þyngst um 600gr og lengst um 1cm. Hún hefur því þyngst um 1hveitipoka og hálfan sykurpoka síðan hún fæddist :D Hún var eitthvað þreytt þegar við komum til hjúkrunarkonunnar því við vorum þar um 9(þá er hún yfirleitt sofandi...) svo hún fór bara að skæla þegar hún fór að mæla hana alla. Þetta gekk samt eins og í sögu og Freyja er ennþá bara alveg fullkomin! :)

Á þriðjudaginn fórum við í heimsókn til Marteins afa og Kristínu ömmu þar sem okkur var boðið í dýrindis lúðu í pestó og hvítlauk(ekki Freyja samt). Afi Marteinn er nefninlega mikið í Englandi þessa dagana að skrifa bók, hann kemur svo aftur heim þegar því er lokið.

Á miðvikudaginn kom Þossi í mat til okkar, Freyja var sko bara kát í fanginu hjá honum og fannst gaman að fikta í skegginu á honum. Kannski kemur skegghræðslan svokallaða bara seinna :)

Svo á föstudaginn fórum við með Freyju á listasýningu hjá ömmu Björgu, þar voru falleg málverk og margt fólk. Mikill kliður og píanóleikur stoppaði Freyju samt ekki í því að fá sér smá lúr í einu horninu, og svo þegar hún vaknaði skoðaði hún vel myndirnar hennar ömmu, og vinkonur hennar ömmu skoðuðu hana vel :D

Myndaþáttur: Freyja í grænum kjól, Freyja í rauðröndóttum samfesting og húfu, með mömmu sinni á leið í bað, að sitja uppi í rúmmi hjá pabba sínum, í fanginu á afa Marteini, í fanginu á ömmu Kristínu, að skeggræða við Þossa, í kisugalla, 2 myndir af Freyju kátri á bleyjunni




Nú er að koma sumar, ég finn það!

Kærar sumarkveðjur
Kári, Elín og Freyja

sunnudagur, apríl 23, 2006

Gleðilegt sumar

Ný vika, nýr póstur. Það hefur reyndar ekki svo rosalega mikið gerst í þessari viku, enda var hún frekar stutt með öllum þessum frídögum.

Freyja tók upp á því í þessari viku að halda meira um hlutina sem hún nær í, manni finnst hún bara hafa tekið rosalegum breytingum í svona handahreyfingum á einni viku. Hún nær líka að halda ansi lengi á þeim hlutum sem hún nær taki á, hún er sko enginn klaufi :D Hún á svona leikteppi (sem hefur sést á myndum hér) og í því hanga alls konar leikföng sem henni finnst gaman að skoða, um daginn settum við hana á teppið og hún var búin að rífa 3 leikföng niður þegar við kíktum næst á hana, það voru ekki liðnar nema í mesta lagi 5 mínútur. Svo líður nú ekki langur tími þar til hún fer að snúa sér, hún er næstum komin á hliðina núna.

Hún og Elín fóru í heimsókn á miðvikudag til langafa Hallgríms og langömmu Fjólu þar sem hún Freyja hitti langömmusystur sína hana Gunnu í fyrsta skiptið, þar söng Freyja hástöfum (hún er mikið að æfa háu tónana þessa dagana :D ).

Í vikunni fóru þær mæðgur líka í göngutúr niður í bæ þar sem ég hitti þær eftir vinnu, við löbbuðum smá um og tókum svo strætó heim.
Á sumardaginn fyrsta koma amma Björg og Ísak í heimsókn til okkar. Þá steingleymdist að taka myndir, því miður...

Svo svaf Freyja í 12 tíma í nótt, sem er það lengsta sem hún hefur sofið til þessa. Þá var sko nóg til af mjólk :D


Myndirnar: fyrsta myndin er af Freyju með langömmu sinni Fjólu, að skoða flöskuna sem Bjarni frændi var að halda á, næst er mynd af henni í stólnum sínum að æfa hálsvöðvana sína :D, fyndin á svipin að benda eitthvað upp í loftið, 2 myndir með pabba sínum, við vorum að gá hvort hún gæti setið ein með grjónapoka utan um sig en hún lak bara svona niður :D, kát í stólnum sínum og loks 2 myndir af henni í góðu skapi hjá mömmu sinni.




Vonandi verður þetta síðasta haglélið þar til næsta vetur, það er nú komið sumar er það ekki? Ég hef heyrt að það eigi að vera mjög gott í ár...

Kærar kveðjur frá okkur
Kári, Elín og Freyja

sunnudagur, apríl 16, 2006

Gleðilega Páska

Gleðilega páska öll sömul og velkomin aftur á Freyjubloggið, í þetta skipti eru það ansi margar myndir og vídeó sem hægt er að niðurhlaða. Vídeóið opnast í nýjum glugga og það tekur kannski smá tíma að hlaðast inn en það er um 9MB, þá er bara hægt að ná sér í kaffisopa á meðan :D

Í þessari viku sögðum við skilið við vögguna hennar Freyju, sem við fengum lánaða hjá Hrafntinnu dóttur Andreu vinkonu Elínar. Freyja var nú eiginlega orðin of stór í hana og ef að hún fer að snúa sér bráðum, sem er ekkert ólíklegt, þá væri hættulegt að vera enn í vöggunni litlu. Í staðinn fékk hún rimlarúm frá tvíburunum (bræður mínir) og það var aldeilis breyting, hún er pínu lítil í rúminu, rétt nær að fylla annan endann. Hún fékk líka fínan óróa í loftið fyrir ofan rúmið, litla trébangsa.

Á þriðjudaginn átti Rósa amma Freyju afmæli og því fórum við í afmælis-pizzuveislu þangað ásamt allri fjölskyldunni.

Freyja er farin að æfa sig meira og meira við að halda um hluti, hvað hún gerir síðan við þá er misjafnt, stundum gleymir hún að hún haldi á einhverju og stundum fer hluturinn bara rakleitt upp í munninn á henni :D Hendurnar á Freyju rata líka oft upp í munninn, þær eru ábyggilega bragðgóðar og mjúkar undir góm :)

Á fimmtudaginn fórum við í heimsókn á Flókagötuna til Evu, Frikka og Sunnu. Sunna var nú svolítið feimin fyrst en fór svo bara að lesa bækur, með hjálp annað hvort mömmu eða pabba. Svo þegar Eva hélt á Freyju varð hún pínu afbrýðisöm og vildi fá að fara í fangið á mömmu sinni. Takk fyrir okkur og frábærar vöflur!

Svo kom Andri í heimsókn til okkar á föstudaginn í pizzu, köku og Ali G, frábært að fá hann, við höfum saknað hans frá Danmörku...

Vídeóið er af Freyju að babbla við pabba sinn (eða bókina sína...), svo koma myndirnar af henni. Freyja að borða bókina sína, Freyja í kjól, Freyja i kjól með snuð, Freyja í kjól, peysu og í bílstól. Mmmmm, hvað puttarnir eru góðir á bragðið, Freyja að halda um leikfangahringluna sína, Bjarni frændi að leika við hana, í fanginu á Bjarna frænda, í fanginu á Sigurlaugu frænku, gott að sofa í sófanum hjá ömmu og afa.
Svo er farið í bað og stripplast á skiptiborðinu, 3 berrassaðar myndir í rúminu, í heimsókn til Sunnu vinkonu, Andri Steinn að kynnast Freyju, Freyja að skella uppúr, Freyja í nýja rúminu sínu að skoða óróann.



Já þannig fór nú það, vonandi eiga allir góða páska og borða góðan mat, við erum að fara að gera það núna :D

Kveðja,
Kári, Elín og páska-Freyja

þriðjudagur, apríl 11, 2006

Kemur seint en kemur þó...

Já sæl veriði aftur, loksins nýr póstur og nýjar myndir, maður var bara sjálfur kominn með fráhvarfseinkenni :D Við fórum nefninlega í fermingu á sunnudaginn hjá Kristínu frænku hennar Elínar (og Freyju :) og höfum því ekki komist á netið fyrr en í dag loksins. Ég vona að næsti póstur verði samt kominn á réttum tíma næsta sunnudag :)

Á sunnudaginn í síðustu viku fórum við í heimsókn til langömmu og langafa í Kópavoginum, þar mætti líka amma Björg og svo Bjössi, Unnur og Þorsteinn frændi. Við Elín fengum dýrindis lambalæri og desert á meðan Freyja var knúsuð í bak og fyrir af fjölskyldumeðlimum auk þess sem hún lagði sig pínu í sófanum sem langalang-amma Nýbjörg og langalang-afi Vigfús áttu.

Á fimmtudaginn í síðustu viku gekk Elín með Freyju niður í bæ þar sem ég hitti þær í lok vinnudags, það var svolítið kalt og strætó kom seint en gaman engu að síður, alltaf gaman að rölta um Laugaveginn.

Rósa amma kemur núna oft til okkar á morgnana til að vera hjá Freyju meðan Elín er að sprikla í leikfiminni, amma sagði rosa góðan brandara þar sem er bankað létt á sófann þar sem Freyja liggur, alveg rosalega fyndið. Freyja hló hátt að þessu aftur og aftur :D

Myndaþáttur síðustu viku: Freyja kát í stólnum sínum, Freyja með uppáhalds bókina sína aftur, í fanginu á langömmu Hönnu Mörtu, í fanginu á ömmu Björgu, Freyja í flotta samfestingnum sem hún fékk frá Sigga og Valý, töffari með sólgleraugu :D, Freyja og mamma, Freyja að hlægja að frábærum sófabrandara ömmu Rósu, í fermingu með Auði og Arngunni (stóru)litlu frænku sinni og að lokum er hún í fanginu á Fjólu langömmu sinni.



Já þá er kominn pósturinn og á næsta sunnudag ætla ég að reyna að setja inn eitt vídeó líka til að skoða.

Hafið það rosa gott öll sömul,
þríeykið í Hæðargarði

laugardagur, apríl 01, 2006

Fyrsta sprautan

Sæl veriði öll sömul, hér kemur fyrsti laugardagspósturinn, við verðum nefninlega í heimsókn hjá afa og ömmu Birni og Hönnu Mörtu á morgun og best þá bara að skella þessu inn núna :) Vona að ykkur sé sama :)

Þessi vika var mín síðasta sem heimavinnandi faðir, þó svo að ég glaður vildi vera í frí-i frá bæjarvinnunni þar til við fjölskyldan förum út aftur til Danmerkur. Í dag laugardag var þessi dagur sem við þrjú vorum búin að kvíða fyrir í langan tíma, fyrsti vinnudagurinn og hann var kaldur. Það var sko tómlegt einn í vinnunni en sem betur fer var þetta stuttur dagur, við vorum búnir að vinna um 2 og Elín og Freyja komu að sækja mig, það voru glaðir endurfundir :) Svo höfum við einn dag til að jafna okkur á þessu áður en ég byrja 5 daga vinnutörn. Þetta verður fínt, það er bara erfitt að byrja á þessu, við gerum kvöldin skemmtileg í staðinn.

Í vikunni fór Freyja í þriggja mánaða skoðun, hún hafði þyngst um hálft kíló á tuttugu dögum sem var bara alveg eins og það átti að vera, læknirinn sem kom og kíkti á hana gaf henni tíu í einkunn (montmont) og aukastig fyrir að vera orðin pínulítil mannafæla, því það er svo mikið þroskamerki! :D Svo kom að þeim hluta sem var ekki svo skemmtilegur, það er nefninlega bólusett fyrir kikhósta, barnaveiki, Hib og mænusótt í þriggja mánaða skoðuninni...hún var ekki sátt, en var samt rosa fljót að jafna sig, grét bara í smá stund. Svo fékk hún föt í afmælisgjöf í staðinn :D

Á myndunum í dag liggur Freyja á sænginni sinni á fyrstu myndinni, svo er hún að dást að fjólubláa asnanum sem syngur, þar á eftir heldur mamma á henni við stóra skemmtilega spegilinn heima, svo er pabbi að halda á henni. Á næstu mynd heldur hún fast í nýju bókina sína sem er hennar uppáhald þessa dagana (gjöf frá Andreu - hitti sko beint í mark :), á þeirri þar á eftir er hún einmitt að fletta í gegnum þessa ágætu bók, "ertu að taka mynd af mér?", og að lokum að lesa með ömmu sinni.



Fingurkossar,
Kári, Elín og Freyja