sunnudagur, apríl 23, 2006

Gleðilegt sumar

Ný vika, nýr póstur. Það hefur reyndar ekki svo rosalega mikið gerst í þessari viku, enda var hún frekar stutt með öllum þessum frídögum.

Freyja tók upp á því í þessari viku að halda meira um hlutina sem hún nær í, manni finnst hún bara hafa tekið rosalegum breytingum í svona handahreyfingum á einni viku. Hún nær líka að halda ansi lengi á þeim hlutum sem hún nær taki á, hún er sko enginn klaufi :D Hún á svona leikteppi (sem hefur sést á myndum hér) og í því hanga alls konar leikföng sem henni finnst gaman að skoða, um daginn settum við hana á teppið og hún var búin að rífa 3 leikföng niður þegar við kíktum næst á hana, það voru ekki liðnar nema í mesta lagi 5 mínútur. Svo líður nú ekki langur tími þar til hún fer að snúa sér, hún er næstum komin á hliðina núna.

Hún og Elín fóru í heimsókn á miðvikudag til langafa Hallgríms og langömmu Fjólu þar sem hún Freyja hitti langömmusystur sína hana Gunnu í fyrsta skiptið, þar söng Freyja hástöfum (hún er mikið að æfa háu tónana þessa dagana :D ).

Í vikunni fóru þær mæðgur líka í göngutúr niður í bæ þar sem ég hitti þær eftir vinnu, við löbbuðum smá um og tókum svo strætó heim.
Á sumardaginn fyrsta koma amma Björg og Ísak í heimsókn til okkar. Þá steingleymdist að taka myndir, því miður...

Svo svaf Freyja í 12 tíma í nótt, sem er það lengsta sem hún hefur sofið til þessa. Þá var sko nóg til af mjólk :D


Myndirnar: fyrsta myndin er af Freyju með langömmu sinni Fjólu, að skoða flöskuna sem Bjarni frændi var að halda á, næst er mynd af henni í stólnum sínum að æfa hálsvöðvana sína :D, fyndin á svipin að benda eitthvað upp í loftið, 2 myndir með pabba sínum, við vorum að gá hvort hún gæti setið ein með grjónapoka utan um sig en hún lak bara svona niður :D, kát í stólnum sínum og loks 2 myndir af henni í góðu skapi hjá mömmu sinni.




Vonandi verður þetta síðasta haglélið þar til næsta vetur, það er nú komið sumar er það ekki? Ég hef heyrt að það eigi að vera mjög gott í ár...

Kærar kveðjur frá okkur
Kári, Elín og Freyja

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ sætust... ohhh hvað þú ert nú mikið rassgat og nú fæ ég nu loksins að sjá þig vakandi.. og það á eftir.. hlakka til að sjá ykkur mæðgur .. og já gleðilegt sumar.. kv Andrea og Hrafntinna

Nafnlaus sagði...

Það verður nú seint sagt að hún sé ekki brosmild :)

-Frikki