sunnudagur, janúar 29, 2006

Alveg að nálgast mánuðinn

Á morgun verður Freyja eins mánaðar gömul, við höldum afmæli...bara lítið fyrir okkur þrjú :D

Í þessari viku hefur hún litla okkar verið að prófa að sofa mikið, eina nóttina svaf hún í heila átta tíma, svo líka sjö tíma aðra nóttina, þetta er ekki alveg rútína ennþá því í nótt voru það um 3-4 tímar á milli þess sem hún vaknaði. Það er gott að geta sofið eina og eina nótt svona næstum venjulegum svefni :)

Við fórum líka í fyrsta skipti í gönguferð með Freyju í vikunni, við þurftum í banka þannig að það var tilvalið að skreppa aðeins í Kringluna örstutt, það er bara um 15-20 mínútna labb þangað frá okkur og í fyrradag var bara fínasta veður. Freyja sá ekkert af Kringlunni enda svaf hún værum svefni allan tímann. Ef einhver áskotnast svona barnavagn í fullorðins stærð og er að leita að einhverjum til að keyra um þá býð ég mig fram, það lítur rosalega notalega út...

Frikki, Eva og Sunna komu í heimsókn til okkar í gær og við náðum einni mynd af Sunnu, sem byrjaði pínu sofandi, varð síðan feymin en á endanum spræk að sópa gólfin hjá okkur :D

Hér eru myndir af öfum, tám, vagnferð, Sunnu og mynda session-i af okkur syfjuðum og nývöknuðum en samt hressum :D



Ljósmóðirin kemur til okkar á morgun, það verður gaman að sjá hversu mikið hún hefur þyngst á síðustu 2 vikum (Freyja, ekki ljósmóðirin)

Kossar frá vagn-rúnturunum í Hæðargarðinum

sunnudagur, janúar 22, 2006

Vikulega upp-deitið

Þá er Freyja orðin 3 vikna, það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur, bráðum verð ég bara að fara í vinnuna aftur...nei nei, ég tek núna 2 mánuði í frí og svo í sumar tek ég kannski einn mánuð þannig að hægt sé að spóka sig um í sólinni með vagn og ís að gefa öndum brauð.

Langafi og langamma í föðurætt fengu loks að sjá litlu í betra tómi í dag, Freyja svaf mestan tímann og var voða vær, svo komu Bjössi, Unnur og Þorsteinn í smá heimsókn þangað til að skoða.

Freyja er farin að skoða meira í kringum sig án þess þó kannski að fókusera beint á andlit, en hún er voða spræk og sterk, og heldur svolítið höfði.

Hún fór líka í bað í gær og svei mér þá ef hún er ekki bara farin að hafa gaman af því að svamla í vatninu, hún grét a.m.k ekki í þetta skipti.

Við bíðum núna bara eftir því að hún fari að brosa...

Vikulegur myndaskammtur:


Elín saumaði þennan nýja rauða kjól handa Freyju í gær og dag, Freyja þakkaði vel fyrir sig enda með auga fyrir flottu design-i :D Svo er ein mynd þarna sem mætti halda að sé mynd af ísbirni en þetta er í rauninni Freyja í dulargervi í bílstólnum sínum. Mynd númer 2 er heima hjá Marteini afa þar sem hún fékk að hitta föðurbræður sína í fyrsta skipti, Tígri (the dog) Marteinsson var líka rosa spenntur fyrir henni :)

Áfram höldum við á sömu braut, meira næsta sunnudag :)
Við þrjú xxx

sunnudagur, janúar 15, 2006

2vikna plús 2

Jæja, þá er skvísan orðin 2 vikna og gott betur, búið að vikta hana og hún er barasta að plumma sig svaka vel, var búin að bæta á sig heilum 300 grömmum á einni viku, það er víst súper.

Í vikunni fékk Freyja að kíkja í heimsókn til langömmu og langafa síns í móðurætt og vakti þar svaka mikla lukku og bros, við það tækifæri var tekin mynd af 4 kynslóðum, sem er hér fyrir neðan.

Hér er líka mynd af baðferð númer 3 hjá Freyju, hún er alveg að fara að venjast þessu...hehehe, grætur smá en er samt frekar ánægð með þetta allt saman, það er miklu leiðinlegra að láta þurrka sér og ég tala nú ekki um að láta nudda sig, það er hún alls ekki ánægð með, en við Elín erum ekki búin að gefast upp á því, við tökum bara nuddið í svona annað hvert skipti sem hún fer í bað :D

Image hosted by Photobucket.comImage hosted by Photobucket.comImage hosted by Photobucket.comImage hosted by Photobucket.comImage hosted by Photobucket.comImage hosted by Photobucket.comImage hosted by Photobucket.comImage hosted by Photobucket.comImage hosted by Photobucket.comImage hosted by Photobucket.com

Hér á myndunum eru afar og ömmur með Freyju í fanginu, fyrsta skipti sem hún var viktuð heima, baðferðin umtalaða, Freyja á glæsilegu útsaumsteppi sem afasystir hennar hún Ósk saumaði handa henni, lítill dúr á bringunni hjá mömmu sinni og mynd af síða hárinu hennar - þetta er alvöru sítt að aftan :D

Við erum alltaf að taka myndir af henni og munum halda áfram að bæta við. Svo er bara að koma í heimsókn :D (hringja fyrst auðvitað...heheh)

Kærar kveðjur,
3 amigos

sunnudagur, janúar 08, 2006

9 Daga gömul

Nú eru 9 dagar liðnir síðan hún Freyja okkar kom í heiminn, það er alveg stórfurðulegt, manni finnst einhvern vegin að það sé bæði lengra og styttra síðan hún kom...ef það er einhver lógík í því :D

Í gær laugardag fengum við heldur betur að heyra söngröddina hennar, því það var baðtími, Freyja var sko ekki par sátt við það að vera skellt í kalt(var samt ekkert kalt) slepjulegt vatnið. Hún grét og grét eins og við værum að pína hana hrikalega, svo fékk hún svaka notalegt nudd eftir á, sem hún grét alveg í gegnum líka. Eftir öll herlegheitin svaf hún svo eins og engill, þannig að hún var kannski aðeins að gera meira úr hlutunum :D Sjáum til hvernig hún tekur þessu næst þegar hún fer í bað.

Við svitnuðum alveg við að heyra þennan grátur, enda var það í 4sinn sem hún grætur síðan hún fæddist!!! Við erum óvön þessu :D Það er víst hollt að gráta stundum, hreinsar víst lungun...hvet alla til að prófa :D

Hér eru 4 myndir sem ég lagaði aðeins til fyrir síðuna, svo er hægt að smella á þær til að sjá þær stærri

Image hosted by Photobucket.com Image hosted by Photobucket.com
Image hosted by Photobucket.com Image hosted by Photobucket.com

Kærar kveðjur frá okkur í Hæðargarðinum

miðvikudagur, janúar 04, 2006

Hér er hún komin :D

Image hosted by Photobucket.com

Já litla stúlkan okkar kom í heiminn 30.des eftir að hafa verið búin að hrjúfra sig upp í þægilegum vistarverum 13 dögum lengur en til var ætlast. Við Elín fórum í skoðun um morguninn 29.des þar sem átti að meta stöðuna hvernig væri best að koma þeirri litlu af stað í heiminn. Það var ákveðið að við ættum að koma snemma um morguninn 30.des og þá yrði Elín sett af stað.
Við fórum þvi heim og horfðum á 4 DVD myndir, og um klukkan 5 var Elín komin með samdrætti, stutta og óreglulega, og því lengra sem kvöldið leið því sterkari urðu þeir og minna millibil, við ákváðum að fara þá upp á spítalann og sjá hvort að við værum ekki bara byrjuð af alvöru. Þar var okkur sagt að við værum ekki komin alveg nógu langt og því send heim aftur...ekki gaman...svo um 3 um nóttina voru verkirnir orðnir það miklir að við fórum aftur upp á spítala, og tókum ekki í mál að fara aftur! :D
Einni nóttu og nokkrum tímum seinna kom sú litla út klukkan 11:25 og lét sko í sér heyra...

Image hosted by Photobucket.com

Það kom í ljós að stúlkan smell passaði við nafnið sem við vorum búin að ákveða fyrir hana :D Heitir hún Freyja Káradóttir, velkomin velkomin :)

Síðustu daga erum við búin að vera að kynnast henni og skoða í rólegheitum heima, afar og ömmur og frænkur og frændur eru búin að koma að sjá og allir eru rosalega spenntir og glaðir. Við náum að sofa vel 2-3-4 tíma í senn og Freyja litla er bara eins og alger draumur.

Image hosted by Photobucket.com

Reyni að koma með fleirri myndir fljótt en við erum ekki með netið heima hjá okkur, svo það gæti dregist á milli...ég get þá líka minnkað þær betur fyrir síðuna.

Kveðjur til allra frá okkur Elínu og Freyju og við þökkum allar góðu kveðjurnar

Kossar