Í gær laugardag fengum við heldur betur að heyra söngröddina hennar, því það var baðtími, Freyja var sko ekki par sátt við það að vera skellt í kalt(var samt ekkert kalt) slepjulegt vatnið. Hún grét og grét eins og við værum að pína hana hrikalega, svo fékk hún svaka notalegt nudd eftir á, sem hún grét alveg í gegnum líka. Eftir öll herlegheitin svaf hún svo eins og engill, þannig að hún var kannski aðeins að gera meira úr hlutunum :D Sjáum til hvernig hún tekur þessu næst þegar hún fer í bað.
Við svitnuðum alveg við að heyra þennan grátur, enda var það í 4sinn sem hún grætur síðan hún fæddist!!! Við erum óvön þessu :D Það er víst hollt að gráta stundum, hreinsar víst lungun...hvet alla til að prófa :D
Hér eru 4 myndir sem ég lagaði aðeins til fyrir síðuna, svo er hægt að smella á þær til að sjá þær stærri

Kærar kveðjur frá okkur í Hæðargarðinum
3 ummæli:
Elsku fallega fjölskylda,
Til hamingju með litla engilinn ykkar. Hún er þvílíkt bjútí :)
Hafið það sem allra best og við hlökkum til að hitta ykkur við tækifæri á Íslandi.
Bestu kveðjur frá Köben
Guðrún,Daði, Hallgrímur og Þorsteinn
Hæhæ ég er vínkona hennar Evu, en mig langaði bara að óska ykkur til hamingju með stelpuna, hún er gullfalleg ;)
Vona að allt gangi vel... Kv. Ragna(þið þekkið mig ekki neitt, en ég fæ alltaf að heyra af ykkur frá henni Evu ;))
BARNIÐ ER BJÚTÍ!
- Siggi Pow
Skrifa ummæli