miðvikudagur, janúar 04, 2006

Hér er hún komin :D

Image hosted by Photobucket.com

Já litla stúlkan okkar kom í heiminn 30.des eftir að hafa verið búin að hrjúfra sig upp í þægilegum vistarverum 13 dögum lengur en til var ætlast. Við Elín fórum í skoðun um morguninn 29.des þar sem átti að meta stöðuna hvernig væri best að koma þeirri litlu af stað í heiminn. Það var ákveðið að við ættum að koma snemma um morguninn 30.des og þá yrði Elín sett af stað.
Við fórum þvi heim og horfðum á 4 DVD myndir, og um klukkan 5 var Elín komin með samdrætti, stutta og óreglulega, og því lengra sem kvöldið leið því sterkari urðu þeir og minna millibil, við ákváðum að fara þá upp á spítalann og sjá hvort að við værum ekki bara byrjuð af alvöru. Þar var okkur sagt að við værum ekki komin alveg nógu langt og því send heim aftur...ekki gaman...svo um 3 um nóttina voru verkirnir orðnir það miklir að við fórum aftur upp á spítala, og tókum ekki í mál að fara aftur! :D
Einni nóttu og nokkrum tímum seinna kom sú litla út klukkan 11:25 og lét sko í sér heyra...

Image hosted by Photobucket.com

Það kom í ljós að stúlkan smell passaði við nafnið sem við vorum búin að ákveða fyrir hana :D Heitir hún Freyja Káradóttir, velkomin velkomin :)

Síðustu daga erum við búin að vera að kynnast henni og skoða í rólegheitum heima, afar og ömmur og frænkur og frændur eru búin að koma að sjá og allir eru rosalega spenntir og glaðir. Við náum að sofa vel 2-3-4 tíma í senn og Freyja litla er bara eins og alger draumur.

Image hosted by Photobucket.com

Reyni að koma með fleirri myndir fljótt en við erum ekki með netið heima hjá okkur, svo það gæti dregist á milli...ég get þá líka minnkað þær betur fyrir síðuna.

Kveðjur til allra frá okkur Elínu og Freyju og við þökkum allar góðu kveðjurnar

Kossar

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Endalaust til hamingju!!! Hún er ótrúlega falleg og ég er alveg sammála með að nafnið passi vel við hana.
Hlakka til að líta á ykkur.
-Frikki

Nafnlaus sagði...

Til hamingju!!! Hún Freyja er gullfalleg og nafnið!

Nafnlaus sagði...

Kærlega til hamingju! Hlakka til að fá að hitta hana í eigin persónu :)