sunnudagur, janúar 29, 2006

Alveg að nálgast mánuðinn

Á morgun verður Freyja eins mánaðar gömul, við höldum afmæli...bara lítið fyrir okkur þrjú :D

Í þessari viku hefur hún litla okkar verið að prófa að sofa mikið, eina nóttina svaf hún í heila átta tíma, svo líka sjö tíma aðra nóttina, þetta er ekki alveg rútína ennþá því í nótt voru það um 3-4 tímar á milli þess sem hún vaknaði. Það er gott að geta sofið eina og eina nótt svona næstum venjulegum svefni :)

Við fórum líka í fyrsta skipti í gönguferð með Freyju í vikunni, við þurftum í banka þannig að það var tilvalið að skreppa aðeins í Kringluna örstutt, það er bara um 15-20 mínútna labb þangað frá okkur og í fyrradag var bara fínasta veður. Freyja sá ekkert af Kringlunni enda svaf hún værum svefni allan tímann. Ef einhver áskotnast svona barnavagn í fullorðins stærð og er að leita að einhverjum til að keyra um þá býð ég mig fram, það lítur rosalega notalega út...

Frikki, Eva og Sunna komu í heimsókn til okkar í gær og við náðum einni mynd af Sunnu, sem byrjaði pínu sofandi, varð síðan feymin en á endanum spræk að sópa gólfin hjá okkur :D

Hér eru myndir af öfum, tám, vagnferð, Sunnu og mynda session-i af okkur syfjuðum og nývöknuðum en samt hressum :D



Ljósmóðirin kemur til okkar á morgun, það verður gaman að sjá hversu mikið hún hefur þyngst á síðustu 2 vikum (Freyja, ekki ljósmóðirin)

Kossar frá vagn-rúnturunum í Hæðargarðinum

5 ummæli:

Laufey sagði...

Vá hún er svo sæt að það er ekki eðlilegt!!! Hafið það gott fallega fjölskylda! kveðjur frá Helsinki

Nafnlaus sagði...

Sætar tásur :)

Nafnlaus sagði...

Brilliant líka mynd númer 3.

Nafnlaus sagði...

Hver er þessi anonymous kauði? :)

Nafnlaus sagði...

Úff hún Freyja er svo beautífúl.