Í vikunni fékk Freyja að kíkja í heimsókn til langömmu og langafa síns í móðurætt og vakti þar svaka mikla lukku og bros, við það tækifæri var tekin mynd af 4 kynslóðum, sem er hér fyrir neðan.
Hér er líka mynd af baðferð númer 3 hjá Freyju, hún er alveg að fara að venjast þessu...hehehe, grætur smá en er samt frekar ánægð með þetta allt saman, það er miklu leiðinlegra að láta þurrka sér og ég tala nú ekki um að láta nudda sig, það er hún alls ekki ánægð með, en við Elín erum ekki búin að gefast upp á því, við tökum bara nuddið í svona annað hvert skipti sem hún fer í bað :D










Hér á myndunum eru afar og ömmur með Freyju í fanginu, fyrsta skipti sem hún var viktuð heima, baðferðin umtalaða, Freyja á glæsilegu útsaumsteppi sem afasystir hennar hún Ósk saumaði handa henni, lítill dúr á bringunni hjá mömmu sinni og mynd af síða hárinu hennar - þetta er alvöru sítt að aftan :D
Við erum alltaf að taka myndir af henni og munum halda áfram að bæta við. Svo er bara að koma í heimsókn :D (hringja fyrst auðvitað...heheh)
Kærar kveðjur,
3 amigos
6 ummæli:
Og gaman að lesa og sjá myndir af litlu snúllunni, langar mikið að fá að koma i heimsókn og heilsa uppá ykkur öll 3, þó aðalega þig Freyja mín;)
Hringi i þig Elín mín síðar í dag og takk fyrir að gefa mér addressuna á síðuna, knús og kossar kv Andrea
Rosalega lítur þetta vel út hjá ykkur. Hún er alltaf að verða mannalegri, gaman að sjá myndir af dömunni:)
-Frikki hehe :)
Þá erum við komin heim aftur, mikið var gaman að sjá ykkur fjölskylduna i januar, hlakka til að sjá ykkur næst... tinna
Hæhæ Elín og fjölskylda:) gaman að sjá þig í gær og að sjá myndir af prinsessunni. Til hamingju aftur, hún er ótrúúúlega falleg! :)
kv.bjartey.
Og hey, sjáiði bara hvernig fingurnir eru á "gulu-big.jpg" (neðsta mynd, hægra megin)? Rock on!
Skrifa ummæli