mánudagur, ágúst 21, 2006

Brúðarmyndirnar

Já núna eru myndirnar úr brúðkaupinu komnar, þær eru ekki allar komnar en þær sem við létum taka hjá Svipmyndum voru rosa rosa góðar, fengum svona fína möppu með 18-20 myndum. Ótrúlegt en satt voru næstum allar myndirnar af mér í lagi, svo voru rosa fínar myndir af Freyju líka.

Þetta var svaka afmælisvika, Bjarni bróðir Elínar, ég og pabbi Elínar áttum allir afmæli í þessari viku. Hér á síðunni er ein mynd af Freyju að hjálpa afa sínum að opna einn pakkann.

Annars er svo mikið að gera hjá okkur að plana ferðina út til Danmerkur og því erum við kannski pínu utan við okkur í myndatökunni. En það lagast alveg örugglega.
Við erum þó ekki ennþá komin með íbúð en það kemur vonandi bráðum, það hlýtur að gera það. Við vonumst til að vera komin út fyrir a.m.k miðjan september.

Við fórum á Lækjarbrekku viku fyrir brúðkaupið í dýrindismáltíðÍ heimsókn í nýju íbúðina hjá Sigurlaugu og úti á svölumKári og afi Marteinn í kirkjunniElín á leið inn kirkjugólfiðNýgift á leið út í bílinnFreyja svo svakalega ánægð að sjá mömmu sína afturFreyja veit ekkert skemmtilegra en að keyra um á hlaupakerrunni sinniÍ sófanum með Bjarna frændaFreyja að hjálpa afa sínum að opna afmælispakkanaFreyja hjá ömmu sinni í fínni MH peysuStelpurnar í fjölskyldunni samanFreyja og mamma í sturtu saman

Vonandi er fólk ekki farið að gefast upp á að kíkja hingað vegna þess hvað póstarnir koma stundum seint inn :)

Kærar kveðjur frá tilvonandi Danmerkurförum,
Elín, Kári og Freyja

sunnudagur, ágúst 13, 2006

Freyja er vinur tígra

Já við erum búin að njóta þess að vera gift síðustu vikurnar, nú er farið líka að styttast í að við förum aftur út til Danmerkur, það verður undarlegt en samt sem áður spennandi. Verst verður náttúrulega að kveðja fólkið sitt og taka Freyju burt.

Í vikunni höfum við tekið því ansi rólega, Elín gekk yfir Fossvogsdalinn í heimsókn til Margrétar frænku sinnar og við fórum í heimsókn til langafa Hallgríms og langömmu Fjólu.

Á föstudag fengum við Elín pössun og kíktum aðeins út, ég var að taka þátt í leikjadegi hjá bæjarvinnunni og Elín var að hitta Hönnu vinkonu sína sem verður kannski í Bandaríkjunum þegar við förum aftur út til Danmerkur.

Í dag fórum við til afa Marteins og ömmu Kristínu og borðuðum hádegismat og Freyja sýndi Tígra í fyrsta skipti áhuga, Tígri sýndi henni samt ekkert svo mikinn áhuga :D

Hér eru vídeó og myndir, setjið músina yfir myndirnar til að vita hvað er að gerast :)

Freyja á Sigur Rósar tónleikum á Miklatúni

Freyja að leika á gólfinu með vatnspelann sinnMeð gleraugun hennar ömmu sinnarAfi að gefa Freyju pelaHjá Geir frænda úti í góða veðrinuÚti í sólinniHvað ertu búin að gera af þér Freyja? :DFreyju langar líka að prjóna grifflurÓli í heimsóknLangafi Hallgrímur og FreyjaFreyja er að lesa bókFreyja og Kristína samanFreyja og afi MarteinnFreyja að uppgötva stóra loðna bangsann sem hreyfir sig

Ástarkveðjur,
Kári, Elín og Freyja

sunnudagur, ágúst 06, 2006

Ný byrjun

Já sæl veriði kæru vinir! Það er orðið allt of langt síðan síðast og nóg búið að gerast. Að telja það allt upp gæti orðið ansi erfitt en ég ætla að skrifa um nokkra hluti:)

Við giftum okkur í svakalegu rigningarveðri 15.júlí í Lágafellskirkju en tókum ekkert eftir vatsdropunum sem dundu á kirkjunni á meðan á athöfninni stóð, hefðum allt eins geta verið í sól á suður-Spáni eða í kúluhúsi á Grænlandi, því öll athyglin var annars staðar. Eftir athöfnina var haldið í veisluna þar sem við borðuðum góðan mat og sungum nokkur lög með vinum og fjölskyldu, takk öll fyrir síðast :)

Við fórum aðeins í sumarbústað daginn eftir þar sem Freyja fékk að prófa að fara í nuddpott, hún var alveg rosalega hrifin af þessu stóra baði og hefur verið í einskonar uppreisn gegn litla baðinu sínu alla daga síðan :D

Svo helgina eftir fórum við norður í Vatnsdal að skoða lítið sumarhús sem er komið á litla landskikann sem er enn í eigu fjölskyldunar. Þar elti ég tvær árans kindur sem höfðu verið að japla á trjánnum í jörðinni.

Það er fullt annað búið að gerst en ég held að það sé bara sniðugast að koma þessum myndum út og síðan byrja ferskur næsta sunnudag með vikulegu pistlana. Vonandi að maður nái að gera þetta vikulega aftur.

Svo skelli ég inn myndum úr athöfninni og veislunni þegar við fáum þær. Kannski skannar maður inn eina mynd eða tvær úr myndatökunni líka, sem við fáum um miðjan mánuðinn.

Hér eru rosalega margar myndir og vídeó:

Freyja að ulla og frussa :D

Freyja með hattinn hans pabba sínsEkki sátt við að fara sofa!!Freyja að prófa graut í fyrstu skiptinNú er grauturinn orðinn miklu betri, sérstaklega á rúllusætinuÁ hestbaki hjá afa sínumFreyja í nýju fötunum fyrir brúðkaupiðVið brúðhjóninÍ sófa í sumarbústaðVið Freyja að róla samanHjá mömmu sinni í sveitinniVar að skoða fína armbandið sittAð hitta langömmu sína Daphne frá EnglandiHjá langömmu sinniÉg og afi IvorFreyja og langafi IvorÚti á rúllustólnumÍ bílnum á leið út í sveitStopp á leiðinni norðurFeðginin saman í sveitinniAfi og amma í sveitinniSumarbústaðurinn í Vatnsdal þar sem við gistum eina nóttHjá afa sínum í sólinniBústaðurinnFreyja að sitja í stól við hliðina á Bjarna frænda sínumÞreytt í bílnumSumarhúsið á landinu fyrir norðanSvaka gaman í sveitagrasinuMeð frændum sínum Lúkasi og MattaÁ köflóttu teppifyrsti tannburstinn! :)

Með því að setja músina yfir myndirnar getur maður séð hvað myndefnið er, en það virkar bara í explorer af einhverjum ástæðum :( Afhverju sleppti Opera alt textanum..?

Við biðjum að heilsa ykkur öllum og heyrumst fljótlega,
Elín, Kári og Freyja