Þetta var svaka afmælisvika, Bjarni bróðir Elínar, ég og pabbi Elínar áttum allir afmæli í þessari viku. Hér á síðunni er ein mynd af Freyju að hjálpa afa sínum að opna einn pakkann.
Annars er svo mikið að gera hjá okkur að plana ferðina út til Danmerkur og því erum við kannski pínu utan við okkur í myndatökunni. En það lagast alveg örugglega.
Við erum þó ekki ennþá komin með íbúð en það kemur vonandi bráðum, það hlýtur að gera það. Við vonumst til að vera komin út fyrir a.m.k miðjan september.












Vonandi er fólk ekki farið að gefast upp á að kíkja hingað vegna þess hvað póstarnir koma stundum seint inn :)
Kærar kveðjur frá tilvonandi Danmerkurförum,
Elín, Kári og Freyja
3 ummæli:
ja tad er nu mikid tilhløkkunarefni ad fa ykkur ut aftur. verra tetta med ibudarmalin! Tad er alltaf hægt ad fa gestaherbergi a storu kollegunum fra viku til viku...
Sjaumst i september, tinna og j
Hæj, Hjörtur skagamaður hérna meginn. Hef nú sagt flest sem hægt er að segja í sms-i. En já, þetta eru flottar brúðkaupsmyndir hjá ykkur. En, ef ég má vera andstyggilegur, þá er kostuleg mynd þar sem þú, Kári ert að leiða Elínu um kirkjugólfið, mjög flott bros þarna hjá þér :D. En Vona innilega að þið náið ykkur í íbúð áður en þið farið út, en það eru kanski litlar líkur í það. En jæja, þið finnið út úr því. Gangi ykkur vel um ókomna framtíð og megi Guð vera hjá ykkur. Kári, megi G,U,Ð vera hjá þér. En annars er ég að drepast úr leiðindum að vera með Snæa í bíl. Í Gær (föstudag) voru ég, Steini, Andri, Mundi og Raggi vörubílstjóri vorum að setja upp leiktæki. Steini átti bara að vera til aðstoðar en Snæi fékk sko þetta hlutverk, en hann raðar verkin undarlega í forgangsröð, hann var sko ekki að hjálpa til, heldur var hann að slá einhvern blett þarna í Hlíðarskóla, en kom þó þegar ég sagði honum að koma og hjálpa til. Hann er sko að gera í buxurnar núna. Bless bless. ... .. .
hæ hæ!
sætar myndir. sérstaklega þessi fyrsta þar sem þið sitjið þrjú saman.
til hamingju með afmælið Kári og velkominn til köben.
ég ætla að reyna að hitta á ykkur mæðgurnar áður en ég fer út 12. sept. hringjumst á!
gangi ykkur vel í íbúðarleit.
lúv.
íris
Skrifa ummæli