fimmtudagur, júlí 03, 2008


1. Syrpa
2. Syrpa
3. Syrpa
4. Syrpa
Photobucket






Photobucket

miðvikudagur, mars 19, 2008

Marspóstur





Já það hefur svo sem ekki mikið stórt verið að gerast þannig síðustu misseri annað en það við erum öll búin að vera frekar upptekin í okkar skólum, ég hef verið að byrja þetta blessaða masters verkefni mitt, Elín hefur verið að gera alls kyns vel heppnuð saumaverkefni og Freyja hefur verið að aðlagast leikskólanum.

Núna er leikskólinn aðal málið og í fríinu síðustu daga hefur hún eginlega verið hálf eirðarlaus, og spyr um vuggestue á hverjum morgni. Það er rosalegur léttir að vita af því að hún sé að aðlagast svona vel. Hún leikur samt sama leikinn á hverjum morgni þegar ég fer með hana að vola svolítið en strax og hún fer að leika er það bara gaman gaman gaman allan daginn. Hún er búin að læra fingurna á dönsku og skilur víst allt sem fóstrurnar segja, en svarar stundum til baka á íslensku. Verst er að við heima þekkjum ekki lögin sem þau eru að syngja og getum ekki æft okkur með Freyju.

Við erum búin að fá nokkrar heimsóknir, Íris kom fyrst á leiðinni á ráðstefnu/workshop á Jótlandi, svo kom Frikki í heimsókn yfir helgi og kom í mat til okkar. Síðan kom Jói Ben í heimsókn með Steinunni systur sinni (Freyja og Steinunn eru sérstaklega góðar vinkonur). Vera systir kom núna í síðustu viku í nokkra daga áður en hún fór til Århus á kvikmyndahátíð þar sem hún vann til verðlauna með stuttmyndina sína, til hamingju Vera!! Og loks kom Bjarni bróðir Elínar í helgarferð. Það er búið að vera stórskemmtilegt að fá þessar heimsóknir og við eigum tvær inni, Ragnar og Rósa koma á morgun og svo mamma Bugga í byrjun april :)

Nóg um það, ég vona að allir fyrirgefi okkur hvað við erum ódugleg við að skrifa færslur, en við henntum inn um 80 myndum í þetta skipti þannig að það vonandi reddar þessu fyrir okkur :D

Kærar kveðjur frá Köben

Kári, Elín og Freyja

mánudagur, janúar 21, 2008

Janúar 2008

Já gott fólk - ENDELIG!

Loksins hundskast maður til að skella inn myndum á bloggið, það er einhvern vegin minni tími núna finnst manni og það eru svo sem nokkrar skýringar á því...svona bara til að afsaka sig smá :) Freyja er nefninlega farin að vilja að maður sitji hjá henni alveg þar til hún sofnar..og suma daga er bara svo mikið sem þarf að fara yfir og hugsa um að það tekur alveg það mikinn tíma að sofna að mamma eða pabbi þurfa að há orrustu við augnlokin bara til að endast setuna.

Freyja er byrjuð á leikskólanum aftur. Hún skemmtir sér rosa vel, syngur með krökkunum, les með fóstrunum og borðar mikið og sefur... nema hún grætur og grætur þegar aumingja pabbi(aumingja ég...:D) skilur við hana á morgnana, eða það fer samt eftir því hver er að vinna á þeim tíma. Tvær af fóstrunum eru á algerum morgun bannlista á meða 2 eru mjög vinsælar og þá er ekki eins mikið mál. Æ þetta fer vonandi að breytast bráðum, hún er líka farin að skilja mikið meira af dönskunni á leikskólanum.

Ég set inn tvær myndasyrpur núna og eru þær báðar frá því þegar við vorum heima á Íslandi um jólin. Þarna eru jóla og afmælismyndir auk heimsókna hingað og þangað um bæinn. Takk kærlega fyrir okkur og næst þegar við komum heim erum við komin fyrir fullt og allt, sem er góð tilhugsun :)





Nú er helst að frétta af okkur Elínu að hún er komin af stað á fullu aftur og er að fara að gera glæsilegt music awards verkefni þar sem velja á stjörnu og gera dressið á hana ef hún væri á leið á tónlistar verðlauna afhendingu. Ég var að fá herbergi ásamt hinum sem eru að klára í skólanum og við fáum að setjast að þar á næstu dögum, þá fer verkefnið virkilega af stað.

Já við litla Köben-fjölskyldan biðjum innilega að heilsa öllum heima og heyrumst sem fyrst aftur.

Kossar,
Kári og Elín og Freyja