mánudagur, janúar 21, 2008

Janúar 2008

Já gott fólk - ENDELIG!

Loksins hundskast maður til að skella inn myndum á bloggið, það er einhvern vegin minni tími núna finnst manni og það eru svo sem nokkrar skýringar á því...svona bara til að afsaka sig smá :) Freyja er nefninlega farin að vilja að maður sitji hjá henni alveg þar til hún sofnar..og suma daga er bara svo mikið sem þarf að fara yfir og hugsa um að það tekur alveg það mikinn tíma að sofna að mamma eða pabbi þurfa að há orrustu við augnlokin bara til að endast setuna.

Freyja er byrjuð á leikskólanum aftur. Hún skemmtir sér rosa vel, syngur með krökkunum, les með fóstrunum og borðar mikið og sefur... nema hún grætur og grætur þegar aumingja pabbi(aumingja ég...:D) skilur við hana á morgnana, eða það fer samt eftir því hver er að vinna á þeim tíma. Tvær af fóstrunum eru á algerum morgun bannlista á meða 2 eru mjög vinsælar og þá er ekki eins mikið mál. Æ þetta fer vonandi að breytast bráðum, hún er líka farin að skilja mikið meira af dönskunni á leikskólanum.

Ég set inn tvær myndasyrpur núna og eru þær báðar frá því þegar við vorum heima á Íslandi um jólin. Þarna eru jóla og afmælismyndir auk heimsókna hingað og þangað um bæinn. Takk kærlega fyrir okkur og næst þegar við komum heim erum við komin fyrir fullt og allt, sem er góð tilhugsun :)





Nú er helst að frétta af okkur Elínu að hún er komin af stað á fullu aftur og er að fara að gera glæsilegt music awards verkefni þar sem velja á stjörnu og gera dressið á hana ef hún væri á leið á tónlistar verðlauna afhendingu. Ég var að fá herbergi ásamt hinum sem eru að klára í skólanum og við fáum að setjast að þar á næstu dögum, þá fer verkefnið virkilega af stað.

Já við litla Köben-fjölskyldan biðjum innilega að heilsa öllum heima og heyrumst sem fyrst aftur.

Kossar,
Kári og Elín og Freyja

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elskurnar ykkar er saknað, hafið það sem allra best í mörkinni, sendum stuðkveðjur af skerinu, svo skemmtilegar myndirnar og Freyja er alltaf jafn kát og yndisleg;*)

Sigurlaug Ýr & Ivan

laugalauga sagði...

knús og kram til ykkar allra frá okkur öllum...
kv. Andrea og rest;)

Nafnlaus sagði...

Vá Freyja er svo sæt! Svo hress og brosmild á öllum myndunum:)Hlakka til að sjá ykkur sem fyrst.
Knús frá kanarí,
kv. Valý og Siggi (sem er í heimsókn, mér til mikillar ánægju!)

Nafnlaus sagði...

Yndislegar myndir af þér Freyja mín

Bestu kveðjur
Steinunn og Maggi