miðvikudagur, mars 19, 2008

Marspóstur





Já það hefur svo sem ekki mikið stórt verið að gerast þannig síðustu misseri annað en það við erum öll búin að vera frekar upptekin í okkar skólum, ég hef verið að byrja þetta blessaða masters verkefni mitt, Elín hefur verið að gera alls kyns vel heppnuð saumaverkefni og Freyja hefur verið að aðlagast leikskólanum.

Núna er leikskólinn aðal málið og í fríinu síðustu daga hefur hún eginlega verið hálf eirðarlaus, og spyr um vuggestue á hverjum morgni. Það er rosalegur léttir að vita af því að hún sé að aðlagast svona vel. Hún leikur samt sama leikinn á hverjum morgni þegar ég fer með hana að vola svolítið en strax og hún fer að leika er það bara gaman gaman gaman allan daginn. Hún er búin að læra fingurna á dönsku og skilur víst allt sem fóstrurnar segja, en svarar stundum til baka á íslensku. Verst er að við heima þekkjum ekki lögin sem þau eru að syngja og getum ekki æft okkur með Freyju.

Við erum búin að fá nokkrar heimsóknir, Íris kom fyrst á leiðinni á ráðstefnu/workshop á Jótlandi, svo kom Frikki í heimsókn yfir helgi og kom í mat til okkar. Síðan kom Jói Ben í heimsókn með Steinunni systur sinni (Freyja og Steinunn eru sérstaklega góðar vinkonur). Vera systir kom núna í síðustu viku í nokkra daga áður en hún fór til Århus á kvikmyndahátíð þar sem hún vann til verðlauna með stuttmyndina sína, til hamingju Vera!! Og loks kom Bjarni bróðir Elínar í helgarferð. Það er búið að vera stórskemmtilegt að fá þessar heimsóknir og við eigum tvær inni, Ragnar og Rósa koma á morgun og svo mamma Bugga í byrjun april :)

Nóg um það, ég vona að allir fyrirgefi okkur hvað við erum ódugleg við að skrifa færslur, en við henntum inn um 80 myndum í þetta skipti þannig að það vonandi reddar þessu fyrir okkur :D

Kærar kveðjur frá Köben

Kári, Elín og Freyja

5 ummæli:

Jonina de la Rosa sagði...

vá skemmtilegar myndir og mikið eruð þið alltaf sæt þa'nna !! :)

Nafnlaus sagði...

Guðdómlegar myndir að vanda. Gleðilega páska elskurnar mínar og kossar
ammabugga

Nafnlaus sagði...

Elsku krúttumúsirnar:), meiriháttar að skoða myndirnar, Freyja dafnar vel í Danaveldi, svo gaman fyrir okkur að sjá Freyju og ykkur öll á skype:) knús&kram,
Sigurlaug Ýr & Ivan

Nafnlaus sagði...

ohhhhhhhhhh við söknum ykkar svo mikið:/, knús&kram á ykkur öll
Sigurlaug Ýr&Ivan

Nafnlaus sagði...

Vá takk fyrir mig:) Það var æði að koma til ykkar. Fullt af sakni... Sérstalkega til Freyju frænku. Vona að ég geti tsjillað í tjaldinu aftur bráðum.
Knús,
Vera