sunnudagur, júní 25, 2006

Fyrsta tönnin

Sæl öll sömul, nú eru komin stórtíðindi, Freyja fékk sína fyrstu tönn í þessari viku. Það sést bara smávegis í hana í neðri góm en hún er þarna engu að síður, maður finnur það líka þegar maður setur fingurinn upp í hana, hún bítur fastar núna! :D

Í vikunni komu Tinna og Janus vinir okkar í Danmörku í heimsókn, Freyja var glaðbrosandi allan tímann eins og hún myndi vel eftir þeim frá því síðast (ólíklegt samt - hún var 1 mánaða:), það var a.m.k engin feimni.

Erna, kærastan hans Bjarna, útskrifaðist úr læknadeild háskólans í gær og Freyja var að sjálfsögðu viðstödd í útskriftarveislunni. Hún skemmti sér vel við að virða fyrir sér fólkið en svo fékk hún sér bara vænan lúr :) Til hamingju Erna! :)

Amma Björg passaði hana líka í gær á meðan við gengum frá lausum endum í brúðkaupsplaninu, við keyptum giftingarhringana og svo fann ég mér líka skyrtu og bindi við jakkafötin. Freyja var góð á meðan og sofnaði sjálf inni í rúmi.

Myndirnar: Lilja, Freyja, Rósa og Hrafnhildur tvisvar, Freyja á gólfinu ullandi, með rauðum pabba sínum, úti í sólinni með sólhatt, eitt geisp, brosandi með Tinnu og Janusi, með ömmu Björgu, eitt stykki ull, að chilla með headphones, úti fyrir utan húsið okkar, sofandi í veislunni hennar Ernu, hjá Bjarna frænda, 2 skvísumyndir.



Gleðilega tannviku,
Kári, Elín og Freyja

sunnudagur, júní 18, 2006

gleðilegan 17.júní

Bjarni og Erna komu heim frá Krít eftir tveggja vikna dvöl í sólinni, Freyja fékk rosa fallegan hvítan og bláan svona þjóðlegan grískan/krítverskan kjól frá þeim að gjöf.

Í þessari viku er ég búinn að vera að vinna mikið vegna undirbúnings fyrir 17.júní niðri í miðbæ. Vinnan hefur verið til um hálf níu á kvöldin þannig að ég hef ekki mikið verið heima. Ég tók mér því frí á föstudaginn til að vera með stelpunum og standa í smá giftingarstússi :)

Á föstudaginn komu Kjartan, Birna og Rebekka í heimsókn til okkar að kíkja á litlu frænku sína. Freyja byrjaði á því að vera svolítið lítil í sér og vildi fara til mömmu sinnar, en það lagaðist svo fljótt og þá var hún alveg til í að sitja í fanginu hjá þeim :)

Ég var að vinna allan laugardaginn í miðbæjarhreinsun á 17.júní, það var ágætt, fátt af fólki og frekar lítið af rusli. Það er skrýtið hvernig er með okkur hreinsarana; það er eins og við séum ósýnilegir, enginn talar við okkur. Ekki einu sinni rónarnir. Við er líklega bara OF áberandi til að tekið sé eftir okkur...ég er samt ekkert að kvarta, fínt að geta bara unnið vinnuna sína í friði.

Í morgun kíkti Lilja, vinkona Elínar í heimsókn til okkar. Hún er nýkomin heim frá Hollandi með Hrafnhildi litlu sína með sér, svo kemur Steindór eftir viku. Hrafnhildur kom niður og hún og Freyja horfðu svolítinn tíma á hvor aðra. Hrafnhildur fann Tópas-box og var ekki kát þegar hún átti að skila því :)

Í dag fórum við með langömmu Hönnu Mörtu og langafa Birni í heimsókn til ömmu Bjargar og Ísaks í Hveragerði. Þar fengum við stóra fólkið dýrindis asískan kjúklingarétt og ostatertu í desert. Það var sól í Hveragerði í kringum húsið hjá ömmu og engin rigning fyrr en við lögðum af stað í bæinn aftur.

Myndir: Freyja með 2 snuð (gerði þetta alveg sjálf), Freyja og brúna fólkið (svolítill litamunur á Freyju og þeim:), Freyja og gamli bangsinn hennar Sigurlaugar frænku, nærmynd af auga, sofnuð í bílstólnum í brúðkaupsstússinu, með mömmu sinni, dömuleg uppi í sófa (tékkið á litlaputta), með afa Ragnari, á háhesti, með Kjarra, Birnu og Rebekku, Freyja og Hrafnhildur, Freyja hjá langömmu og langafa að skoða Bóthildi dúkku, myndasession hjá ömmu Björgu (eins og módel með marga ljósmyndara í einu að taka myndir! :), 2 myndir af Freyju að labba/dansa með ömmu sinni.



Þar til næst,
Elín, Freyja og Kári

sunnudagur, júní 11, 2006

Elín 24 ára og Freyja borðar graut

Já á mánudaginn var átti Elín 24ára afmæli og bauð því vinkonum sínum heim í kaffi, kökur og rúllutertu, Freyja var að sjálfsögðu á staðnum og var veislustjóri. Um kvöldið fórum við svo inn í Mosarima þar sem langafi og langamma voru líka í mat en því miður gleymdist myndavélin heima í það skipti.

Freyja fékk að smakka í fyrsta skipti graut í þessari viku, hún fékk svona mais-graut á þriðjudaginn og var mjög hrifin, hún fékk samt ekki mikið, bara svona smá smakk. Á föstudaginn fékk hún aðeins meira en grauturinn hefur líklega verið aðeins og þykkur fyrir hana því hún fékk í magann og var því lengi að sofna. Eftir að hún fékk stíl sofnaði hún samt strax, verð að segja að manni fannst maður vera pínu böðull að gefa henni svoleiðis :( en það er líklega betra að hún nái góðum nætursvefni en að vera að engjast um með magaverk... Grauturinn verður aðeins þynnri næst og þá verður hann vonandi betri í litlan maga :)

Í vikunni kom Margrét með Kristínu í smá heimsókn til okkar, Andrea og Hrafntinna komu líka í heimsókn seinna sama dag og léku þær Freyja sér saman, Hrafntinna er samt svolítið eldri en Freyja en það er allt í lagi, aldur er afstæður :D

Í gær fórum við í mat á Ásvallagötuna til afa Marteins, þar hittum við Ísak, Matthías, Lúkas, Tristan og hundinn Tígra. Þeir voru allir ánægðir að sjá Freyju enda var orðið pínu langt síðan síðast.

Myndir: Elín afmælisstelpa, Arna vinkona Elínar og Freyja, Freyja að borða graut í fyrsta skipti, Margrét, Kristín og Freyja, Hrafntinna og Freyja, rosa kát í nýjum grænum og ljósbláum fötum, að sitja sjálf í stólnum sínum, á fullri ferð á leikteppinu, með pabba sínum, í fyrsta skipti í kanínunáttfötum frá langafa og langömmu, kát á teppinu tekin undir boðið, með afa Marteini og Lúkasi, Lúkas, Matthías og Freyja, á rugguhesti, með afa Ragnari, með krosslagða fætur - alveg eins og afi! :D



Regnsumars kveðjur,
Kári, Elín og Freyja

sunnudagur, júní 04, 2006

5 Mánaða

Nú er Freyja orðin 5 mánaða, það er merkilegt hvað tíminn líður hratt. manni finnst einhvern vegin eins og að hún hljóti að vera yngri en samt á sama tíma finnst manni næstum eins og hún hafi ávallt verið hjá okkur.

Freyja fór í 5 mánaða skoðunina 30.mai og þar kom í ljós að hún er farin að þyngjast minna enda er hún farin að hreyfa sig líka miklu miklu meira. Ef maður setur hana á bakið á leikteppið sitt líða ekki meira en 10 sekúndur þar til hún snýr sér yfir á magann, svo er eins og hún hafi kannski ekki viljað vera á maganum en barasta varð að gera það samt. Hún er reyndar alveg líka að rúlla sér frá maganum yfir á bakið líka. Svo snýr hún sér í hringi á teppinu.

Hjá ljósmóðurinni fékk hún aðra sprautu með mótefnum :( Hún var sko ekkert rosa ánægð með það að láta stinga sig allt í einu í lærið án þess að vera vöruð við á undan! Hún er ennþá með smá svona mar á lærinu.

Laufey vinkona Elínar kom tilbaka frá Finnlandi í þessari viku og kom hún í heimsókn að rifja upp gömul kynni við Freyju sem tók henni með opnum örmum.

Í gær fórum við Elín í göngutúr með Freyju upp í garðinn við safn Einars Jónssonar á toppinum á Njarðargötu og Freyjugötu (fallegt nafn á götu :) Þar voru allar vinkonur Elínar komnar saman ásamt Magga, Ella og Kolla að fagna afmæli Laufeyjar. Þar var boðið upp á samlokur með túnfisk og laxasalati ásamt eplasvala og jólaköku. Við sátum þar með Freyju í dágóða stund og sleiktum sólina á meðan við hlustuðum á flottasta næturlífs slúðrið þessa stundina :D Til hamingju með afmælið Laufey!

Hér er vídeó af Freyju að snúa sér yfir á magann:



Myndirnar: Freyja að leika með Sigurlaugu frænku sinni, með mömmu og Laufeyju á kaffihúsi, heima hjá Laufayju ásamt Petru, Laufey í heimsókn hjá Freyju, Petra litríka vinkona Freyju, Freyju er farið að klæja í góminn - gott að naga broddgölt, Freyja liggur á teppinu eftir marga snúninga - pínu þreytt, í heimsókn í vinnuna til afa, í svona herðarkápu frá Bjarna og Ernu, aftur í herðarkápunni, situr hjá ömmu sinni, situr hjá mömmu sinni - búin að slefa yfir sig alla, í garðinum hans Einars Jónssonar, með ömmu að skoða ljósaketilinn, með pabba í græna kjólnum sem afi Marteinn keypti handa henni í London, að reyna að stela blaðinu hans pabba, í heimsókn hjá afa og ömmu, að skoða gleraugun hans afa sposk á svipinn.



Góðar stundir,
Freyja, Elín og Kári