sunnudagur, júní 11, 2006

Elín 24 ára og Freyja borðar graut

Já á mánudaginn var átti Elín 24ára afmæli og bauð því vinkonum sínum heim í kaffi, kökur og rúllutertu, Freyja var að sjálfsögðu á staðnum og var veislustjóri. Um kvöldið fórum við svo inn í Mosarima þar sem langafi og langamma voru líka í mat en því miður gleymdist myndavélin heima í það skipti.

Freyja fékk að smakka í fyrsta skipti graut í þessari viku, hún fékk svona mais-graut á þriðjudaginn og var mjög hrifin, hún fékk samt ekki mikið, bara svona smá smakk. Á föstudaginn fékk hún aðeins meira en grauturinn hefur líklega verið aðeins og þykkur fyrir hana því hún fékk í magann og var því lengi að sofna. Eftir að hún fékk stíl sofnaði hún samt strax, verð að segja að manni fannst maður vera pínu böðull að gefa henni svoleiðis :( en það er líklega betra að hún nái góðum nætursvefni en að vera að engjast um með magaverk... Grauturinn verður aðeins þynnri næst og þá verður hann vonandi betri í litlan maga :)

Í vikunni kom Margrét með Kristínu í smá heimsókn til okkar, Andrea og Hrafntinna komu líka í heimsókn seinna sama dag og léku þær Freyja sér saman, Hrafntinna er samt svolítið eldri en Freyja en það er allt í lagi, aldur er afstæður :D

Í gær fórum við í mat á Ásvallagötuna til afa Marteins, þar hittum við Ísak, Matthías, Lúkas, Tristan og hundinn Tígra. Þeir voru allir ánægðir að sjá Freyju enda var orðið pínu langt síðan síðast.

Myndir: Elín afmælisstelpa, Arna vinkona Elínar og Freyja, Freyja að borða graut í fyrsta skipti, Margrét, Kristín og Freyja, Hrafntinna og Freyja, rosa kát í nýjum grænum og ljósbláum fötum, að sitja sjálf í stólnum sínum, á fullri ferð á leikteppinu, með pabba sínum, í fyrsta skipti í kanínunáttfötum frá langafa og langömmu, kát á teppinu tekin undir boðið, með afa Marteini og Lúkasi, Lúkas, Matthías og Freyja, á rugguhesti, með afa Ragnari, með krosslagða fætur - alveg eins og afi! :D



Regnsumars kveðjur,
Kári, Elín og Freyja

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til Hamingju með afmælið Elín!!
Farin að borða graut, voðalega er þetta fljótt að stækka. Sætar myndir af dömunni, eins og venjulega, kominn svoldill prakkarsvipur á hana stundum:)

-Frikki