sunnudagur, júní 18, 2006

gleðilegan 17.júní

Bjarni og Erna komu heim frá Krít eftir tveggja vikna dvöl í sólinni, Freyja fékk rosa fallegan hvítan og bláan svona þjóðlegan grískan/krítverskan kjól frá þeim að gjöf.

Í þessari viku er ég búinn að vera að vinna mikið vegna undirbúnings fyrir 17.júní niðri í miðbæ. Vinnan hefur verið til um hálf níu á kvöldin þannig að ég hef ekki mikið verið heima. Ég tók mér því frí á föstudaginn til að vera með stelpunum og standa í smá giftingarstússi :)

Á föstudaginn komu Kjartan, Birna og Rebekka í heimsókn til okkar að kíkja á litlu frænku sína. Freyja byrjaði á því að vera svolítið lítil í sér og vildi fara til mömmu sinnar, en það lagaðist svo fljótt og þá var hún alveg til í að sitja í fanginu hjá þeim :)

Ég var að vinna allan laugardaginn í miðbæjarhreinsun á 17.júní, það var ágætt, fátt af fólki og frekar lítið af rusli. Það er skrýtið hvernig er með okkur hreinsarana; það er eins og við séum ósýnilegir, enginn talar við okkur. Ekki einu sinni rónarnir. Við er líklega bara OF áberandi til að tekið sé eftir okkur...ég er samt ekkert að kvarta, fínt að geta bara unnið vinnuna sína í friði.

Í morgun kíkti Lilja, vinkona Elínar í heimsókn til okkar. Hún er nýkomin heim frá Hollandi með Hrafnhildi litlu sína með sér, svo kemur Steindór eftir viku. Hrafnhildur kom niður og hún og Freyja horfðu svolítinn tíma á hvor aðra. Hrafnhildur fann Tópas-box og var ekki kát þegar hún átti að skila því :)

Í dag fórum við með langömmu Hönnu Mörtu og langafa Birni í heimsókn til ömmu Bjargar og Ísaks í Hveragerði. Þar fengum við stóra fólkið dýrindis asískan kjúklingarétt og ostatertu í desert. Það var sól í Hveragerði í kringum húsið hjá ömmu og engin rigning fyrr en við lögðum af stað í bæinn aftur.

Myndir: Freyja með 2 snuð (gerði þetta alveg sjálf), Freyja og brúna fólkið (svolítill litamunur á Freyju og þeim:), Freyja og gamli bangsinn hennar Sigurlaugar frænku, nærmynd af auga, sofnuð í bílstólnum í brúðkaupsstússinu, með mömmu sinni, dömuleg uppi í sófa (tékkið á litlaputta), með afa Ragnari, á háhesti, með Kjarra, Birnu og Rebekku, Freyja og Hrafnhildur, Freyja hjá langömmu og langafa að skoða Bóthildi dúkku, myndasession hjá ömmu Björgu (eins og módel með marga ljósmyndara í einu að taka myndir! :), 2 myndir af Freyju að labba/dansa með ömmu sinni.



Þar til næst,
Elín, Freyja og Kári

2 ummæli:

crazy steve sagði...

jiii, hvað hún er orðin stór, hún verður farin að labba áður en þið vitið af.
bið að heilsa ykkur. Vonandi höfðuð þið það notalegt yfir helgina :)

Nafnlaus sagði...

Srce moj(hjartað mitt):),
Gaman að sjá Freyju með bangsann:), yndisleg Freyja, mikill gleðigjafi:).
Sigurlaug Ýr