sunnudagur, desember 30, 2007

Afmæli Freyju í dag!

Photobucket
Photobucket
Photobucket

Freyja okkar á 2 ára afmæli í dag og það var heldur betur haldið upp á það hjá okkur. Nánasta fjölskylda og fáeinir vinir létu sjá sig og Freyja var í essinu sínu. Margar fallegar gjafir fékk hún og kökur voru á boðstólum en hún Freyja vildi bara pönnukökurnar frá langömmu Fjólu :)

Takk fyrir okkur og einnig hlýjar símakveðjur :)

Póstar aftur í Janúar

Nýárs kveðjur,
Kári Elín og Freyja "deggjára"

föstudagur, nóvember 23, 2007

Síð-nóvember póstur

Komiði sæl fjölskylda og vinir, loksins er nýr póstur kominn og það er bara ekki hægt að afsaka það hve lengi leið á milli í þetta skipti, ég vona bara að þið getið fyrirgefið mér(Kára) skussaskapinn...

Freyja er orðin voða ánægð í leikskólanum núna, þó af og til komi grátur þegar ég skil við hana á morgnana en það tekur víst ekki meira en ca. 10 mínútur fyrir hana að jafna sig. Henni líður vel og maður sér það á henni, stundum þarf maður að berjast við að fá hana til að koma heim :D

Hún er orðin mikil dúkkumamma og vill hafa þær hjá sér sem oftast. Á leikskólanum eru nokkrar og einn stór trévagn sem hún tekur harðri hendi frá hverjum þeim sem er með hann fyrir...allt í lagi, ekki svo harðri en þessi vagn er greinilega uppáhaldið hennar þarna á leikskólanum.

Hún var víst að föndra jólagjafir í gær og fyrradag en við Elín vitum ekkert hvað það gæti verið og erum því mjög spennt að sjá hvað kemur út úr því.

Elínu gengur sem endra nær afskaplega vel í skólanum og þrátt fyrir smá vesein í síðasta verkefni ékk hún fínustu einkunnir og er ánægð. Hjá mér gengur líka vel, ég er að gera svona "lognið á undan storminum" verkefni þar sem ég er að teikna dýr í undarlegum situasjónum, ég sýni meira af því þegar á líður kannski.

Hér eru myndir frá fyrstu dögum haustsins hér í Kaupmannahöfn:



Og hér er lítið myndband af Freyju á róló:



Svo eru hér nýjustu myndirnar frá okkur í Köben. Þarna er smá af leikskólanum og svo hinu og þessu:



Nú bíðum við bara spennt að fá ömmu Buggu í heimsókn þann 5da desember, og við látum nú inn myndir af því ;) Kannski förum við líka í Tívolí.

Kossar og knús frá okkur þrem.

Kári, Elín og Freyja

sunnudagur, október 14, 2007

Freyja byrjar á leikskóla

Freyjumyndir í október 2007

Freyja er byrjuð á leikskóla, hann er hér í hverfinu okkar og er lítill og notalegur með yndælum konum að sjá um börnin. Þetta er ferli sem tekur samt smá tíma fyrir litlu dömuna, fyrstu 2 dagana byrjaði hún bara á að vera í klukkutíma og ég var með henni, svo fannst fóstrunum það ganga svo vel að hún var í 2-3 tíma ein með þeim. Freyju finnst rosa gaman og ekkert mál að ég fari, þegar ég spyr hvort það sé í lagi að pabbi fari, nikkar hún bara or stekkur í fangið á Henriette (uppáhaldinu eins og er) og veifar bless.

Fyrsta langa daginn kom ég um 11:30 að sækja hana aftur og þá hafði hún víst náð að lemja flesta krakkana og græta þá...við Elín vorum alveg miður okkar og yfir helgina reyndum við að tala við hana um það allir ættu nú að vera góðir við alla og sérstaklega litlu börnin á leikskólanum. Þetta virðist hafa skilist því hún er víst hætt að lemja (að mestu leiti a.m.k).

Hún er búin að eignast nokkra vini á deildinni þar sem eru um 12 börn, þau er 4 sem eru á svipuðum aldri, Felix sem er stórskemmtilegur lítill naggur sem er alltaf fyrstur að kveðja hana hátt þegar hún fer; "Hej hej Freyja, HEJ HEJ FREYJA!", svo eru Zacharias og Emma líka í sandkökubaksturshópnum :)

Annars er þetta allt að ganga ágætlega nema hún er ekki búin að vera mjög spennt fyrir því að fara að sofa á leikskólanum og fór víst í svaka panikk mode, annan daginn (eftir að hafa sofið eins og engill þann fyrsta) og grét í klukkutíma stanslaust - þá vorum við Elín bæði komin í skólann og ég tók taxa heim eftir að hringt var í okkur og ástandið tjáð...það var brjáluð umferð og tók mig um 30 mín að komast og þegar ég kom inn á leikskólann sveittur og útúr taxaður (hehe), þá sat Freyja bara með fóstrunum inni á stóru-krakkadeildinni brosandi og að leika með my little pony og vildi ekki fara heim :D

Við fórum í IKEA í gær laugardag og keyptum nýtt rúm handa Freyju til þess að reyna að venja hana af því að það þurfi að sofna hjá henni, þannig að þetta verði auðveldara á leikskólanum. Við ákváðum að vera praktísk og kaupa rúm sem hægt er að stækka en var pínu dýrara - en þá þurfum við ekki að kaupa nýtt fyrr en hún er orðin svona 18 :D hehehe

Jæja þá er þetta komið í bili, en við reynum að taka einhverjar myndir af leiksólanum á næstunni, veit samt ekki hvort megi taka myndir þar inni samt því miður.

Ástarkveðjur frá okkur sem erum ÖLL að venjast leikskólanum :)

Kári, Elín og Freyja

sunnudagur, september 23, 2007

Aftur í Köben

Já sæl veriði öll aftur, þá erum við komin út og lífið er rólega að taka á sig sína gömlu mynd.

Elín byrjaði strax 3.sept í skólanum og er alveg að njóta sín þar frábærlega, það er búið að vera skemmtilegt allan tíman. Krakkarnir í bekknum er fínir og kennarinn veit alveg hvað hann er að gera...ekkert vesein. Fyrsta verkefnið er "Selskabstöj" eða gala föt, og við sýnum þegar líður á hver prósessinn er.

Ég er búinn að vera heima með Freyju so far því það er ákveðinn biðtími þar til Freyja kemst inn á leikskóla. Það gæti tekið allt að 2 mánuði en vonandi kemur það á næstunni því við finnum alveg að hún þarf að fá að sjá fleirri krakka, hún er alltaf svo spennt þegar við hittum þá á róló. Ég geri bara lítið verkefni heima þar til ég kemst aftur í skólann og það er allt í lagi kennaranna vegna. Annars erum við Freyja bara að njóta þess að vera saman.

Hér eru myndir frá því í sumar, þær eru svo margar að ég held að best sé að lesa bara skilaboðin við hverja og eina meðan skoðað er.

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Hér eru svo nýju myndirnar héðan frá Kaupmannahöfn. Þarna eru 2 myndir af götunni okkar og nokkrum rólóferðum, svo fórum við líka í dýragarðinn í dag og það eru nokkrar myndir þaðan.

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Ég ætla að reyna að taka einhverjar myndir af íbúðinni til að sýna næst, annars er hún voðalega þægileg, aðeins minni en sú sem við vorum í, en eldhúsið og baðið er betra og við nýtum bara fermetrana betur :)

Ég hef þetta ekki lengra í bili og reyni að setja inn póstana á 2 vikna millibili eins og við reyndum síðast

Ástarkveðjur frá okkur - við söknum allra!
Kári, Elín og Freyja

þriðjudagur, júní 05, 2007

Til Hamingju með daginn elsku mamma (Elín mín!)

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Þetta er póstur frá okkur Kára og Freyju til uppáhalds manneskjunarinnar okkar í heiminum, sem á stórafmæli í dag - 25ára!

Þúsund kossar og knús elín, við elskum þig svooo rosalega mikið!

Kári og Freyja

mánudagur, maí 28, 2007

NNNEEEEIIIIIJÚÚÚ!

Já sæl og blessuð öll sömul aftur, nú er kominn maí og það er sumar hér í Köben, eitthvað annað en á Íslandi hefur maður heyrt og lesið að heiman...Hér er svona 15-20 stiga hiti hvern dag en samt ekki alltaf sól, það hefur rignt líka töluvert...en Köben er yndisleg á þessum tíma árs, fullt af lífi á götum og í görðum og gróðurinn allur að spretta fram (ég er samt ekki kominn með ofnæmið sem betur fer).

Í maí fengum við tvær heimsóknir, fyrst kom amma Bugga(Björg fyrir okkur hin :D) í heimsókn í viku og svo kom Sigrún vinkona Elínar í 3 daga(með komu- og brottafarardegi) stutt stopp á leið lengra út í heim, Bankok og Balí. Þetta voru 2 frábærar heimsóknir og gera mann bara spenntari að koma heim til Íslands í sumar að hitta alla aftur! Takk fyrir komuna þið tvær! :D

Hér eru nokkrar myndir frá þessum heimsóknum okkar:
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Svo eru hér myndir frá restinni af mai, þetta er í görðum, heima og um dagin komu Andri, Árni Bragi, Tinna og Janus í pizzaveislu til okkar sem entist alveg til um tvö um nóttina. Freyja var svo spennt að hún vaknaði aftur um nóttina til að hitta á fólikð og fór ekki að sofa fyrr en það var farið :D

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Freyja er alltaf að auka við orðaforðann og núna er flest dýrahljóðin komin inn, líkamspartar eru þekktir, föt og margt fleirra. Eitthvað hefur hún nú samt misskilið já og nei því hún segir yfirleitt þegar hún vill ekki eitthvað; "NEIJÚ!!!" og svo talar hún mikið um "DÚ-Í" sem við vitum ekki alveg hver/hvað er, en það gæti komið í ljós bráðlega...

Hér er svo eitt vídeó af dömunni að spjalla smá, sýna tærnar og misþyrma apanum Niels :D



Kossar og knús frá Valby

Freyja, Elín og Kári

sunnudagur, apríl 29, 2007

Endelig...

Já þá er viðburðarríkum aprílmánuði lokið og aldeilis margt gerst. Við fengum foreldra Elínar í heimsókn í 2 vikur og það voru svo aldeilis sælutímar hér á Skolegade yfir Páskana. Það dróst svo í svolítinn tíma að setja myndirnar góðu inn á bloggið hér og þess vegna koma alveg svakalega margar myndir í einu í staðinn...Ég ætla því að hafa orðin færri og láta myndirnar sjálfar tala fyrir sig - svo stendur líka alltaf smá komment við hverja þannig að það kannski bætir það svolítið upp :)

Fyrst koma myndir sem teknar voru áður en við fengum heimsóknina og enn var frekar kalt hér í kaupmannahöfn:

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Næst koma myndir frá heimsókninni góðu, farið var í dýragarðinn, Konungsgarðinn og út um allt í rauninni milli þess sem við borðuðum góðan mat heima og höðum það notalegt - takk Rósa(mamma og amma) og Ragnar(pabbi og afi) fyrir yndislegan tíma!

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Og hér að lokum koma myndir frá síðustu dögum þar sem við höfum helst verið að sleikja sólina, enda er komið sumar hér í Köben og allir í görðunum. Freyja kynntist meira að segja einni vinkonu í Fredriksberg have í dag :D hún kyssti hana og allt :)

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Rúsínan í pylsuendanum er myndband af Freyju að æfa sig í að tala, það eru komin þónokkuð mörg orð og alltaf að bætast í forðann, eitt orð á dag a.m.k.



Sólskins kveðjur frá Skólagötu í Valbæ,

Kári, Elín og Freyja

miðvikudagur, mars 21, 2007

Amma í heimsókn

Sæl verið þið öll heimafyrir, hér kemur loksins nýr póstur frá okkur á Skólagötu í Valby.

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Freyja er núna (höldum við) komin yfir erfiðasta hjallan í tanntökunni sinni, komin með 4 nýja glæsilega jaxla, 2 í hvorum góm sitt hvorum megin. Það hlýtur að taka smá tíma að læra að tyggja með þeim samt, vaninn var að narta með framtönnunum en það er stundum erfitt. Þetta hlýtur að vera allt annað líf, hún er a.m.k farin að sofa aftur alla nóttina og er mun minna pirruð en fyrir svona 3 vikum síðan.

Við erum búin að fá nokkra góða veður daga hér í Köben í viðbót og þá fer Freyja á róló að leika sér, renna í rennibraut, róla í rólu (með fullorðnum samt), moka í sandkassa og rugga sér á gormadýri :) Hún er smám saman að venjast aðstæðunum og er minna og minna smeik í hvert skipti sem hún fer þangað.

Amma Björg er búin að vera í heimsókn hjá okkur, kom síðastliðinn fimmtudag og fór síðan aftur á sunnudaginn, það var alveg frábært að sjá hve fljótt Freyja tók við henni og þær voru bestu vinir allan tíman sem þær voru saman. Með ömmu fór Freyja í dýragarðinn og sá bavíana, ljónsunga og fíla, en það sem vakti mesta athygli eins og venjulega voru litlu mannaparnir; börnin sem voru hlaupandi um allt :D "krakka" kallar Freyja á þá :)
Svo var líka farið í bæinn og Freyja fékk fína nýja úlpu í gjöf frá ömmu brúna með bleikum doppum innan í. Eftir það var farið á Illum kaffihúsið þar sem amma gat montað sig pínulítið fyrir hinum ömmunum á svæðinu :D

Verst var að heimsóknin var heldur stutt, við hefðum endilega viljað hafa ömmu aðeins lengur, en hún er búin að lofa að koma aftur í mai. Við hlökkum strax til! :)

Hér eru tvö vídeó í viðbót handa Bjarna og öllum hinum líka :)


Freyja að labba með bolta.


Freyja að blabba við pabba sinn.

Fullt af kossum frá okkur heim til allra og kærar þakkir fyrir yndislega heimsókn mamma :D

Kári, Elín og Freyja

mánudagur, mars 05, 2007

Freyja í dýragarðinum

Sæl öll sömul aftur,

Já hér kemur nýr póstu af okkur Kaupmannahafnarbúunum. Freyja er enn að stækka og dafna og núna er hún byrjuð að labba! Vei loksins, reyndar er það frekar varkár ganga hjá henni ennþá en það er samt meira en við vorum að sjá hjá henni í síðustu viku. Hér á eftir fylgir myndband af henni að taka fyrstu skrefin, hún hefur tekið eitt og eitt skref áður en hér er hún alveg örugg :D



Freyja fór núna á fimmtudaginn til læknis, bara svona venjulegt tjékk. Hún var voða feimin fyrst en svo var hún bara kát, sat í kjöltunni hjá lækninum og skoðaði alls konar dót sem hún átti til að gera lítil börn glöð. Síðan var hún viktuð og í ljós kom að hún er orðin 11kg og 250grömm, aldeilis búin að stækka. Eftir það kom sá partur sem Freyja er ekki mjög hrifin af; bólusetning! Úff þvílík svik! Fyrst var læknirinn voða yndæll og svo stingur hún mann með nál í lærið - óforskammað!  Það tók smá stund að jafna sig en svo var allt í lagi eftir það. Freyja er enn með smá svona þykkildi þar sem hún var sprautuð en hún virðist annars ekki vera að kvarta yfir þessu, engin veikindi eða neitt svoleiðis. Svo fer hún aftur eftir 2 mánuði í nýja sprautu...sjáum til hvernig það fer... :D


Myndirnar af Freyju á Flickr

Hér er nýjasta myndasérían, þarna förum við í dýragarðinn, göngutúr og hittum Jóa þegar hann kom í heimsókn. Jói og Freyja eru alltaf voða góðir vinir þegar þau hittast :D

Nú fara að skella á heimsóknir hjá okkur á næstu dögum. Siggi kemur á fimmtudag og síðan kemur amma Björg í næstu viku, þannig að það eru spennandi tímar fram undan :)


Við reynum svo að setja inn myndir aftur fljólega og kannski fleirri vídeó :) Gaman þegar hún er farin að labba meira líka...það er allt að gerast þar þessa dagana

Kærar kveðjur frá okkur hérna í Köben og þúsund kossar
Kári, Elín og Freyja

sunnudagur, febrúar 18, 2007

2 vikum síðar..




Já þá eru 2 vikur liðnar frá síðasta pósti, og margt hefur gerst þó ekki sé kannski margt að segja frá ... hehe svona er þetta stundum.

Fyrst af því sem mynnast má þó á er að Hanna vinkona hennar Elínar kom til okkar í heimsókn í 4 daga, hún hafði verið í London vikuna áður og því á miklu flakki. Það var mjög gaman að hafa einhvern í heimsókn og það hefði verið skemmtilegt að hafa hana lengur, kannski kemur hún bara seinna aftur í aðeins lengri tíma :)

Ég er búinn með tímann minn hjá Kontrapunkt og það var alveg rosalega skemmtilegur tími, við unnum 2 stór alvöru verkefni fyrir stóra kúnna og það gekk vonum framar, þau sem stjórnuðu þessum 6 manna hópi frá skólanum voru svakalega ánægð með vinnuna og tímann sem við höðum lagt í þetta og það var frábært að sjá hvernig alvöru fyrirtæki í þessum bransa virkar. Það sem var líka skemmtilegt að sjá var hve góður mórall var þarna, þarna var t.d kokkur á staðnum sem eldaði ofan í starfsfólkið og ég er ekki að tala um neitt slor, þetta hefði hæglega getað verið 4stjörnu veitingastaður...og við nemarnir fengum það frítt :D jei! En nú er það aftur draslið í kaffiteríunni í skólanum. Ég veit ekki alveg hvað verður gert á næstu vikum en ég læt vita. Ég tala líka betur um Kontrapunkt tímann seinna en ég má strangt til getið ekki tala um neitt sem gerðist þar alveg strax...skrifaði undir samning um það og allt...! :D

Elín er byrjuð að æfa á fullu aftur i fitness.dk og skemmtir sér vel enda er þetta glænýr staður og með allt það flottasta, þarna eru tækin með sjónvörp innbyggð í þau...veit ekkert um svona, kannski er það bara standard núna :D

Freyja hefur það rosa fínt og það er enn alltaf e-ð nýtt að bætast í viskubrunninn, hún segir auga og potar í augað á manni, veit hvar tennurnar eru og munnurinn. Kyssir mann þegar maður biður um koss (ef hún er í skapi fyrir það :D), segir Freyja eða öllu heldur Eyja og það er líka samnefnari fyrir öll lítil börn :) Hún er ennþá varkár við að labba ein en hún er eiginlega varkár við allt, á einni af myndunum í syrpunni með þessum pósti er hún að benda á rugguhest á kaffihúsinu í Illum versluninni en hún er ekki hrifin af því að rugga sér á honum, ekki nógu öruggur. Hún er heldur ekki mikið hrifin af rólum né rennibrautum :D en það kemur seinna :)

Í dag fórum við í góðan göngutúr um Sönderparken sem er hér í 10mínútna fjarlægð frá okkur, það er orðið svolítið heitara og pínu lítið meira vorlegt, en það er yndislegt að labba um svona garða milli stórra trjáa...maður á ábyggilega eftir að sakna þess einn daginn.

Jæja nóg í bili héðan, kærar kveðjur til ykkar allra heima, við hugsum til ykkar mikið og gleðilegan Bolludag á morgun! :D

Kári, Elín og Freyja

laugardagur, febrúar 03, 2007

Febrúarpóstur 2007

Já sælt veri fólkið á ný, það er orðið svo langt síðan við settum eitthvað hér inn síðast að það er bara neyðarlegt...en til að bæta það upp koma margar margar myndir í þetta skiptið:)

Hér eru myndir úr afmælinu hennar Freyju þann 30.desember 2006, það kom öll fjölskyldan og skemmti sér vel. Freyja fékk auðvitað fullt af gjöfum og það voru kökur og kræsingar í hæsta gæðaflokki:



Hér eru svon myndir af Freyju á Aðfangadag, Jóladag og Gamlárs, svona mix ef það má orða það svoleiðis. Það voru teknar fleirri myndir á vélina hans Ragnars afa en við vorum ekki alveg nógu klár að kópera þær yfir áður en við héldum aftur hingað út til Danmerkur:



Síðan kemur myndasyrpa frá því þegar við vorum á Íslandi í janúar, Freyja að leika sér með nýja dótið og að prófa að fara út í snjóinn í fyrsta skipti, afi hennar bjó til snjókall og allt! Reyndar er engin mynd af honum hér en það eru margar aðrar góðar :)



Já þá er jólafríið búið og við erum komin út aftur til Danmerkur, allt er smám saman að falla aftur inn í gömlu rútínuna fyrir utan það að Freyja er orðin miklu meira þroskuð en hún var áður en við fórum og á sama tíma ekki eins til í að leika með dótið sitt, það eru aðrir hlutir sem eru meira spennandi, þannig að maður verður að reyna að sýna henni nýja hluti á hverjum degi til að gera hana glaða :) Nýjasta hobbíið er að teikna, við keyptum stóra vaxliti fyrir hana og það er svoleiðis að annað hvort vill hún lita eða hún vill borða litina, sem hún veit alveg að hún má ekki... það er smá prakkari í stelpu. Hér eru myndir af Freyju í febrúar og lok janúar í Danmörku:



Freyja er ennþá að bíða með að labba ein, hún er ekki alveg til í að byrja strax. Í staðinn er orðaskilningur orðinn mun meiri en bara fyrir mánuði síðan og hún er líka byrjuð að segja fleirri orð. Hún er líka alltaf að reyna að segja það sem við erum að segja og oft kemur það ansi fyndið út hjá henni, svo er eins og hún hafi líka einhvern enskan orðaforða...? Genin kannski eða gömul bresk sál ? :D Hún segir þetta venjulega; mamma, pabbi, afi, amma og svo kemur inn dreki(hún á teppi sem er eins og dreki) krakkar og bað (baaaah), dýrahljóð t.d voff og íh íh íh (api). Hún hefur fengið þorsk hérna úti og borðar með bestu lyst, svo hefur hún líka fengið rauðsleppu og er alveg vel ánægð með hana líka, ýsan verður að bíða því hún er ekki seld úti í fiskbúð hjá okkur.

Ég sýndi verkefnið mitt síðasta mánudag og það gekk alveg glimrandi, einu atriðin sem var sett út á, gat ég sætt mig við en annars var þetta aðallega bara hrós og róleg yfirferð, gerðu reyndar grín að því hversu alvarlegt verkefnið hefði verið, því ég skilaði 28 blaðsíðna rapporti (skýrslu) um verkefnið þarna í desember...hey ég vann mikið í því! :D Þannig að núna er ég kominn á 8.önn í skólanum og í næstu viku fer ég að vinna í 2 vikur inni á stærstu auglýsingastofu Danmerkur www.kontrapunkt.dk/. Læt vita hvernig fer :)

Annars vonumst við til þess að við náum að halda sama rythma í þessu bloggi eins og við vorum með fyrir jól því það er alveg jafn gaman fyrir okkur að sýna ykkur Freyju, eins og það er fyrir ykkur að sjá hana, held ég :D Svo má familían alveg fara að skrifa meira í álitin, það er neðst við hvern póst og maður ýtir á svör hlekkinn, þá getur maður sent smá kveðju í gegnum þetta, veljið bara að þið séuð other í hnöppunum :)

Bestu bestu kveðjur til allra heima og takk fyrir yndisleg jól og janúarmánuð, sjáumst svo aftur í júní/júlí nema þá ef einhver kemur í heimsókn ;)

Kári, Elín og Freyja



p.s Innilega til hamingju Eva, Frikki og Sunna með litla Reginn, okkur hlakkar rosa til að sjá hann enda rétt misstum við af honum xxx