föstudagur, nóvember 23, 2007

Síð-nóvember póstur

Komiði sæl fjölskylda og vinir, loksins er nýr póstur kominn og það er bara ekki hægt að afsaka það hve lengi leið á milli í þetta skipti, ég vona bara að þið getið fyrirgefið mér(Kára) skussaskapinn...

Freyja er orðin voða ánægð í leikskólanum núna, þó af og til komi grátur þegar ég skil við hana á morgnana en það tekur víst ekki meira en ca. 10 mínútur fyrir hana að jafna sig. Henni líður vel og maður sér það á henni, stundum þarf maður að berjast við að fá hana til að koma heim :D

Hún er orðin mikil dúkkumamma og vill hafa þær hjá sér sem oftast. Á leikskólanum eru nokkrar og einn stór trévagn sem hún tekur harðri hendi frá hverjum þeim sem er með hann fyrir...allt í lagi, ekki svo harðri en þessi vagn er greinilega uppáhaldið hennar þarna á leikskólanum.

Hún var víst að föndra jólagjafir í gær og fyrradag en við Elín vitum ekkert hvað það gæti verið og erum því mjög spennt að sjá hvað kemur út úr því.

Elínu gengur sem endra nær afskaplega vel í skólanum og þrátt fyrir smá vesein í síðasta verkefni ékk hún fínustu einkunnir og er ánægð. Hjá mér gengur líka vel, ég er að gera svona "lognið á undan storminum" verkefni þar sem ég er að teikna dýr í undarlegum situasjónum, ég sýni meira af því þegar á líður kannski.

Hér eru myndir frá fyrstu dögum haustsins hér í Kaupmannahöfn:



Og hér er lítið myndband af Freyju á róló:



Svo eru hér nýjustu myndirnar frá okkur í Köben. Þarna er smá af leikskólanum og svo hinu og þessu:



Nú bíðum við bara spennt að fá ömmu Buggu í heimsókn þann 5da desember, og við látum nú inn myndir af því ;) Kannski förum við líka í Tívolí.

Kossar og knús frá okkur þrem.

Kári, Elín og Freyja

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku litla fjölskylda,

Það er svo gaman að sjá nýjar myndir frá ykkur, alveg yndislegt, farið varlega og við sendum ykkur

kossa&knús frá Íslandi,
Sigurlaug Ýr & Ivan

Nafnlaus sagði...

Taka II

Sérstök ánægja er með nýju fötin sem voru gerð á dúkkuna hennar Freyju, snilldar saumaskapur;*)

Kossar&knús
Sigurlaug Ýr & Ivan

Nafnlaus sagði...

Hæ, gaman að fá þessar löngu tímabæru myndir. Bestu kveðjur frá mávahlíðarliðinu.