sunnudagur, mars 26, 2006

Bókasafnið og gamli kallinn

Jæja gott fólk, nýr sunnudagur og nýr póstur frá okkur þremur, það sem er merkilegt við þessa viku er að það er eiginlega ekkert búið að gerast, ekkert stórmerkilegt a.m.k nema það náttúrulega að við Elín kynnumst Freyju okkar betur og hún brosir og spjallar og situr í fanginu okkar ein, með reist höfuðið. Freyju þroskast meira og meira með hverjum deginum finnst manni en það næst kannski ekki alltaf á mynd til að setja hér á síðuna. Hún er líka orðin mjög athugul, skoðar allt eins og hún getur, það er allt svo spennandi að það gefst varla tími til að sofa :)

Við fórum reyndar á bókasafnið í vikunni sem er kannski ekki í frásögur færandi nema það að við Elín eiginlega enduruppgötvuðum þessa frábæru stofnun, þarna eru öll nýjustu blöðin, bækurnar og DVD-arnir sem hægt er að leigja á 150kr í tvo daga!! Það er ekki slæmt...Annars vorum við svolitlir plebbar í lokin, elín tók 2 glansblöð og ég 4 teiknimyndabækur á láni, ekkert meira menningarlegt en það :D Það var einn gamall kall þarna á safninu sem sat í hægindastól, prumpaði (a.m.k 3x þegar við Elín heyrðum, hann var by the way með heyrnartæki þannig að hann hefur kannski ekki heyrt það sjálfur), en hann var með nýjasta Séð og Heyrt og réð krossgátuna með penna...mér finnst það svolítið frekt, þó að ég hafi ekkert verið að bíða eftir blaðinu eða neitt...svo sendir hann ábyggilega inn lausnina og vinnur alltaf!!! :D Þetta kamur auðvitað Freyju ekkert við, nema það að hún svaf sæl í vagninum á meðan á þessu stóð:)

Við fórum svo í göngutúr niður í bæ í gær enda sólskin mikið sem kallaði bara á göngutúr, það var pínu kalt í skuggunum en annars prýðisferð.




Myndasería: Freyja og Rósa amma, Freyja í fanginu á mömmu sinni að virða fyrir sér Sigulaugu frænku, 2myndir af Freyju á teppinu sínu, skemmtilegur svipur á Freyju í ömmustól, ennþá skemmtilegri svipur á Freyju á skiptiborðinu "ég gerði það ekki", og í lokin eru 2 nýjar baðmyndir, önnur í handklæðinu í fanginu hjá pabba.

Kossar,
Kári, Elín og Freyja

sunnudagur, mars 19, 2006

Heimsóknir og afmæliskökur

Á mánudaginn kíktum við í heimsókn til langafa Binna og langömmu Hönnu Mörtu og vorum þar fram á kvöld, fengum dýrindis gúllas og létu Kjarri, Birna, Bjössi, Rebekka og Guðrún Marta sjá sig og fengu að halda á Freyju litlu.

Í vikunni fórum við með Freyju og afa Ragnari og ömmu Rósu í Kringluna að skoða Kringlukast tilboðin, Freyja hafði sofið þar til hún kom inn í Kringlu en eftir það vakti hún, það virðist vera alveg óhemju spennandi hlutir að gerast þar fyrir litlar næstum þriggja mánaða gamlar stelpur, hún skoðaði allt frá toppi til táar :) þetta sem er sagt um stelpur og búðir byrjar greinilega snemma :D

Í gær laugardag fórum við í afmæliskaffi til Ísaks bróður míns (Kári) og hitti Freyja hundinn Tígra í annað sinn, í fyrra skiptið hélt Tígri að hún væri kannski hvolpur og hoppaði næstum upp í kjöltuna á Elínu þar sem hún hélt á Freyju. En í gær hafði Tígri lítinn sem engan áhuga á að heilsa upp á Freyju, líklega búinn að komast að því að hún væri bara enn ein af þessum manneskjum sem eru nú minna spennandi en t.d. hvolpur eða kisa :D Því miður var myndavélin batteríslaus...



Á myndunum er langamma Hanna Marta að halda á Freyju, Freyja í fanginu á Guðrúnu Mörtu frænku sinni, svo í fanginu á Rebekku frænku, hjá ömmu Björgu sem kom til okkar í heimsókn(hún er með svona "ekki fleirri myndir takk!" svip og handahreyfingar:), annað bros (við fáum sko fullt af þeim þessa dagana), Freyja að skoða fuglana á teppinu sínu, og að lokum tvær stórar myndir af henni í bílstólnum sínum.

Kærar kveðjur frá okkur,
Kári, Elín og Freyja

sunnudagur, mars 12, 2006

Hlátur og 5625gr

Já sæl verið þið öll, við erum búin að eiga viðburðaríka viku og hæst stóð upp úr fyrsti hláturinn hennar Freyju, Elín hélt á henni um daginn og hossaði henni svolítið upp og niður(má ekki skömmu eftir að hún er búin að borða samt) og þá rak hún upp hlátrarsköll sem henni brá greinilega mikið við því hiksti fylgdi í kjölfarið og hún hló ekki meira, Elín og Rósa hlóu hins vegar mikið...ég missti af þessu :( Ég sé það bara næst :D

Á föstudaginn fórum við með Freyju til ljósmóður í skoðun og viktun, því við(ég) klúðruðum því í síðustu viku, ég las vitlausan dag og því misstum við af tímanum. Freyja hafði þyngst um 700gr á mánuðinum og lengst um 2cm og er því 60cm núna. Næst gæti verið erfitt því þá er 3mánaðar skoðun þar sem hún er sprautuð með einhverjum árans bóluefnum...ég býst við grátri þá...annað hvort frá mér eða Freyju :D

Við fórum svo í heimsókn og mat til Bjarna og Ernu í vikunni þar sem Freyja hitti kisurnar þeirra, sem voru ansi forvitnar að skoða þessa litlu veru sem var líklega ekki köttur, en hvað var hún þá? Annars voru þær ekki að hætta sér mjög nálægt henni samt, þær eru svo vel upp aldar :D

Á laugardag var síðan skírn hjá Þórhildi frænku Elínar þar sem lítill frændi fékk nafnið Helgi Trausti. Freyja hitti þar marga fjölskyldumeðlimi í fyrsta skipti og var bara sallaróleg, svaf meira að segja dágóðan part af veislunni.



Hér eru myndir af Freyju, fyrst eitt aukabros í safnið, 2 myndir af henni að æfa sig á teppinu sínu að liggja á maganum, klædd og tilbúin í veislu til Bjarna og Ernu, að leyfa Snjáfríði að lykta af hendinni á sér, svo var hún alveg uppgefin eftir heimsóknina, fín í nýjum náttfötum á leið í háttinn og svo ein af henni nývaknaðri, hún er alltaf svo glöð þegar hún vaknar á morgnana.

Kærar kveðjur frá La Familia

sunnudagur, mars 05, 2006

BROS!

Við litla fjölskyldan höldum ennþá áfram að setja myndir af Freyju hér á netið. Í þessari viku fórum við tvisvar út að labba, annað skiptið hittum við Andreu vinkonu Elínar á Kjarvalsstöðum, þ.e á kaffihúsinu sem er mjöög fínt, þar eru fáir, reyklaust, internet og svo fullt af blöðum um list og hönnun sem maður getur flett í ásamt dagblöðunum auðvitað...þetta er uppáhalds kaffihúsið okkar núna í bili a.m.k. Það var reyndar einhver róni að rúlla sér sígarettu á karlaklósettinu þegar ég kom þar inn, og það líka á skiptiborðinu (var sem betur fer ekki að fara að skipta á Freyju). Hitt skiptið fórum við bara í göngutúr um hverfið sem endaði í Bónus í Skeifunni...ótrúlega spennandi :D

Þær myndir sem ég set inn hérna á netið núna eru af nýju myndavélinni sem við Elín keyptum okkur og þökkum við rosa vel afa Ragnari fyrir afnotin af vélinni hans fyrstu mánuðina takk takk :) Við getum líka tekið svona smávídeó á hana þannig að það kemur kannski meira af því líka :D

Hér í myndaseríunni eru fyrstu offissíal brosmyndirnar af Freyju á netinu a.m.k, svo er mynd af Freyju í vagninum í fyrsta skipti svona úti að sofa, og svo er hún farin að hafa mjög gaman af því að fara í baðið og bursla svolítið(fríkaði út fyrst þegar hún fór í baðið), og að lokum er ein mynd af henni að syngja óperusöng :D



Við fengum líka í vikunni Margréti og Gunna í heimsókn og svo fórum við í dag í hádegiskaffi til Sigga og Valýar, very nice, takk fyrir okkur!

Heyrumst eftir viku :D
3 fræknu