sunnudagur, mars 12, 2006

Hlátur og 5625gr

Já sæl verið þið öll, við erum búin að eiga viðburðaríka viku og hæst stóð upp úr fyrsti hláturinn hennar Freyju, Elín hélt á henni um daginn og hossaði henni svolítið upp og niður(má ekki skömmu eftir að hún er búin að borða samt) og þá rak hún upp hlátrarsköll sem henni brá greinilega mikið við því hiksti fylgdi í kjölfarið og hún hló ekki meira, Elín og Rósa hlóu hins vegar mikið...ég missti af þessu :( Ég sé það bara næst :D

Á föstudaginn fórum við með Freyju til ljósmóður í skoðun og viktun, því við(ég) klúðruðum því í síðustu viku, ég las vitlausan dag og því misstum við af tímanum. Freyja hafði þyngst um 700gr á mánuðinum og lengst um 2cm og er því 60cm núna. Næst gæti verið erfitt því þá er 3mánaðar skoðun þar sem hún er sprautuð með einhverjum árans bóluefnum...ég býst við grátri þá...annað hvort frá mér eða Freyju :D

Við fórum svo í heimsókn og mat til Bjarna og Ernu í vikunni þar sem Freyja hitti kisurnar þeirra, sem voru ansi forvitnar að skoða þessa litlu veru sem var líklega ekki köttur, en hvað var hún þá? Annars voru þær ekki að hætta sér mjög nálægt henni samt, þær eru svo vel upp aldar :D

Á laugardag var síðan skírn hjá Þórhildi frænku Elínar þar sem lítill frændi fékk nafnið Helgi Trausti. Freyja hitti þar marga fjölskyldumeðlimi í fyrsta skipti og var bara sallaróleg, svaf meira að segja dágóðan part af veislunni.



Hér eru myndir af Freyju, fyrst eitt aukabros í safnið, 2 myndir af henni að æfa sig á teppinu sínu að liggja á maganum, klædd og tilbúin í veislu til Bjarna og Ernu, að leyfa Snjáfríði að lykta af hendinni á sér, svo var hún alveg uppgefin eftir heimsóknina, fín í nýjum náttfötum á leið í háttinn og svo ein af henni nývaknaðri, hún er alltaf svo glöð þegar hún vaknar á morgnana.

Kærar kveðjur frá La Familia

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ohh!
Hún er svo sæt.