sunnudagur, mars 19, 2006

Heimsóknir og afmæliskökur

Á mánudaginn kíktum við í heimsókn til langafa Binna og langömmu Hönnu Mörtu og vorum þar fram á kvöld, fengum dýrindis gúllas og létu Kjarri, Birna, Bjössi, Rebekka og Guðrún Marta sjá sig og fengu að halda á Freyju litlu.

Í vikunni fórum við með Freyju og afa Ragnari og ömmu Rósu í Kringluna að skoða Kringlukast tilboðin, Freyja hafði sofið þar til hún kom inn í Kringlu en eftir það vakti hún, það virðist vera alveg óhemju spennandi hlutir að gerast þar fyrir litlar næstum þriggja mánaða gamlar stelpur, hún skoðaði allt frá toppi til táar :) þetta sem er sagt um stelpur og búðir byrjar greinilega snemma :D

Í gær laugardag fórum við í afmæliskaffi til Ísaks bróður míns (Kári) og hitti Freyja hundinn Tígra í annað sinn, í fyrra skiptið hélt Tígri að hún væri kannski hvolpur og hoppaði næstum upp í kjöltuna á Elínu þar sem hún hélt á Freyju. En í gær hafði Tígri lítinn sem engan áhuga á að heilsa upp á Freyju, líklega búinn að komast að því að hún væri bara enn ein af þessum manneskjum sem eru nú minna spennandi en t.d. hvolpur eða kisa :D Því miður var myndavélin batteríslaus...



Á myndunum er langamma Hanna Marta að halda á Freyju, Freyja í fanginu á Guðrúnu Mörtu frænku sinni, svo í fanginu á Rebekku frænku, hjá ömmu Björgu sem kom til okkar í heimsókn(hún er með svona "ekki fleirri myndir takk!" svip og handahreyfingar:), annað bros (við fáum sko fullt af þeim þessa dagana), Freyja að skoða fuglana á teppinu sínu, og að lokum tvær stórar myndir af henni í bílstólnum sínum.

Kærar kveðjur frá okkur,
Kári, Elín og Freyja

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Rosalega er hún farin að vera brosmild:)
Hún virðist greinilega ætlað að fá eitthvað af háralitnum úr föðurættinni.
Gaman að sjá alltaf myndir frá ykkur reglulega, um að gera að nota þessa fínu myndavél eitthvað.

Frikki