Við fórum reyndar á bókasafnið í vikunni sem er kannski ekki í frásögur færandi nema það að við Elín eiginlega enduruppgötvuðum þessa frábæru stofnun, þarna eru öll nýjustu blöðin, bækurnar og DVD-arnir sem hægt er að leigja á 150kr í tvo daga!! Það er ekki slæmt...Annars vorum við svolitlir plebbar í lokin, elín tók 2 glansblöð og ég 4 teiknimyndabækur á láni, ekkert meira menningarlegt en það :D Það var einn gamall kall þarna á safninu sem sat í hægindastól, prumpaði (a.m.k 3x þegar við Elín heyrðum, hann var by the way með heyrnartæki þannig að hann hefur kannski ekki heyrt það sjálfur), en hann var með nýjasta Séð og Heyrt og réð krossgátuna með penna...mér finnst það svolítið frekt, þó að ég hafi ekkert verið að bíða eftir blaðinu eða neitt...svo sendir hann ábyggilega inn lausnina og vinnur alltaf!!! :D Þetta kamur auðvitað Freyju ekkert við, nema það að hún svaf sæl í vagninum á meðan á þessu stóð:)
Við fórum svo í göngutúr niður í bæ í gær enda sólskin mikið sem kallaði bara á göngutúr, það var pínu kalt í skuggunum en annars prýðisferð.








Myndasería: Freyja og Rósa amma, Freyja í fanginu á mömmu sinni að virða fyrir sér Sigulaugu frænku, 2myndir af Freyju á teppinu sínu, skemmtilegur svipur á Freyju í ömmustól, ennþá skemmtilegri svipur á Freyju á skiptiborðinu "ég gerði það ekki", og í lokin eru 2 nýjar baðmyndir, önnur í handklæðinu í fanginu hjá pabba.
Kossar,
Kári, Elín og Freyja
4 ummæli:
Dobra dan,
Freyja er nú meiri skvísan, eða já miklu frekar pínulítill engill "andjele" við vorum einmitt að ræða það hvað það verður nú skrítið þegar við þurfum að ferðast til Danmerkur til að sjá ykkur öll, um að gera að nýta tímann vel fram að því:)
Ciao,
Sigurlaug Ýr og Ivan
Og það besta við bókasafnsDVD er auðvitað, að oft eru þetta myndir í betri kantinum, myndir sem gæti reynst örðugt að finna annars staðar ;)
Jiii hvað hún er orðin stór, og hún er alveg hriiikalega sæt líka :) Við sjáumst á laugarveginum með vagnana, við erum reyndar svo miklar kuldaskræfur....nennum varla út þegar það er svona kalt. En bráðum kemur betri tíð með blóm í haga!
kveðjur frá Hildigunni, Skúla og Ástu
Já Freyja stækkar voða ört og það gaman að fylgjast með henni. Það væri skemmtilegt að hittast með vagnana þegar það fer að hlýna smá:)
Við förum til Danmerkur í lok ágúst og giftingin er 15 júlí. Svo þú kemur í tæka tíð Liljan mín hlakka til að fá þig heim.
Skrifa ummæli