Elín byrjaði strax 3.sept í skólanum og er alveg að njóta sín þar frábærlega, það er búið að vera skemmtilegt allan tíman. Krakkarnir í bekknum er fínir og kennarinn veit alveg hvað hann er að gera...ekkert vesein. Fyrsta verkefnið er "Selskabstöj" eða gala föt, og við sýnum þegar líður á hver prósessinn er.
Ég er búinn að vera heima með Freyju so far því það er ákveðinn biðtími þar til Freyja kemst inn á leikskóla. Það gæti tekið allt að 2 mánuði en vonandi kemur það á næstunni því við finnum alveg að hún þarf að fá að sjá fleirri krakka, hún er alltaf svo spennt þegar við hittum þá á róló. Ég geri bara lítið verkefni heima þar til ég kemst aftur í skólann og það er allt í lagi kennaranna vegna. Annars erum við Freyja bara að njóta þess að vera saman.
Hér eru myndir frá því í sumar, þær eru svo margar að ég held að best sé að lesa bara skilaboðin við hverja og eina meðan skoðað er.

Hér eru svo nýju myndirnar héðan frá Kaupmannahöfn. Þarna eru 2 myndir af götunni okkar og nokkrum rólóferðum, svo fórum við líka í dýragarðinn í dag og það eru nokkrar myndir þaðan.

Ég ætla að reyna að taka einhverjar myndir af íbúðinni til að sýna næst, annars er hún voðalega þægileg, aðeins minni en sú sem við vorum í, en eldhúsið og baðið er betra og við nýtum bara fermetrana betur :)
Ég hef þetta ekki lengra í bili og reyni að setja inn póstana á 2 vikna millibili eins og við reyndum síðast
Ástarkveðjur frá okkur - við söknum allra!
Kári, Elín og Freyja
4 ummæli:
Hæ hæ elskurnar,
Mikið var mikið var, yndislega gaman að sjá myndir og fréttir;*), farið varlega.
Knús&kossar,
Sigurlaug Ýr & Ivan
Hehei, gaman að heyra frá ykkur, eða frekar lesa og sjá frá ykkur.
Hafið það sem allra best
-Frikki og Eva
Hæ elskurnar mínar. Svo gott að sjá ykkur svona aftur. mér sýnist kominn heimskonubragur á Freyju.
Vel getur verið a´ð ég flýti för til ykkar og komi í kringum 24. okt ef allt gengur að óskum.
kossar og meiri kossar, einkum á heimskonuna...
mamma/amma Bugga/Gubba
ótrúlega gaman að fá fréttir af liltu sætu fjölskyldunni í Köben:) Gaman að sjá myndir af Freyju, hún er svo sæt og fín, og er orðin svo stór!
Gott að heyra að það gengur vel í skólanum Elín, ég hlakka til að sjá gala-outfittið!;)
Keep up the good work!
Kossar og knús*
Valý (og siggmundur)
Skrifa ummæli