
Freyja er núna (höldum við) komin yfir erfiðasta hjallan í tanntökunni sinni, komin með 4 nýja glæsilega jaxla, 2 í hvorum góm sitt hvorum megin. Það hlýtur að taka smá tíma að læra að tyggja með þeim samt, vaninn var að narta með framtönnunum en það er stundum erfitt. Þetta hlýtur að vera allt annað líf, hún er a.m.k farin að sofa aftur alla nóttina og er mun minna pirruð en fyrir svona 3 vikum síðan.
Við erum búin að fá nokkra góða veður daga hér í Köben í viðbót og þá fer Freyja á róló að leika sér, renna í rennibraut, róla í rólu (með fullorðnum samt), moka í sandkassa og rugga sér á gormadýri :) Hún er smám saman að venjast aðstæðunum og er minna og minna smeik í hvert skipti sem hún fer þangað.
Amma Björg er búin að vera í heimsókn hjá okkur, kom síðastliðinn fimmtudag og fór síðan aftur á sunnudaginn, það var alveg frábært að sjá hve fljótt Freyja tók við henni og þær voru bestu vinir allan tíman sem þær voru saman. Með ömmu fór Freyja í dýragarðinn og sá bavíana, ljónsunga og fíla, en það sem vakti mesta athygli eins og venjulega voru litlu mannaparnir; börnin sem voru hlaupandi um allt :D "krakka" kallar Freyja á þá :)
Svo var líka farið í bæinn og Freyja fékk fína nýja úlpu í gjöf frá ömmu brúna með bleikum doppum innan í. Eftir það var farið á Illum kaffihúsið þar sem amma gat montað sig pínulítið fyrir hinum ömmunum á svæðinu :D
Verst var að heimsóknin var heldur stutt, við hefðum endilega viljað hafa ömmu aðeins lengur, en hún er búin að lofa að koma aftur í mai. Við hlökkum strax til! :)
Hér eru tvö vídeó í viðbót handa Bjarna og öllum hinum líka :)
Freyja að labba með bolta.
Freyja að blabba við pabba sinn.
Fullt af kossum frá okkur heim til allra og kærar þakkir fyrir yndislega heimsókn mamma :D
Kári, Elín og Freyja
5 ummæli:
Litla krúsin, gaman að sjá fleiri spor og meira babbl;*), skemmtilegar myndir af ykkur hjónunum mússí múss!
knús&kossar
Sigurlaug Ýr & Ivan
Blessaður gamli... og sælar stúlkur, samt þekkji eiginlega bara Kára sko...
datt bara inn á þessa síðu, veit ekki alveg hvernig - en vildi bara nota tækifærið og segja hæ... og vona að lífið og tilveran sé bara að leika við þig...
ég er að flytja heim til íslands, frá London - þar sem ég er víst buinn að vera síðustu 2.5 árin, eftir að ég kláraði B.Arch í Glasgow - já fyrir tæpum 3 árum...
en já... nú ætla ég að fara að sofa,
kv. Hjörtur Hannesson
hjortur.hannesson@gmail.com
úbbs... sorry, gleymdi að segja til hamingju með Freyju... og líka Elínu... því að ég hef nú ekki heyrt af þér í lengri lengri tíma...
kv. Hjörtur
jiii hvað maður er nú mikið krútt;)
knús og kram;)
kv andrea
halló litla fjölskylda
litla daman stækkar og stækkar, algjör dúlla
kveðja frá fjölskyldunni í Sílakvísl 16. Þórhildur frænka og fjölskylda
Skrifa ummæli