mánudagur, mars 05, 2007

Freyja í dýragarðinum

Sæl öll sömul aftur,

Já hér kemur nýr póstu af okkur Kaupmannahafnarbúunum. Freyja er enn að stækka og dafna og núna er hún byrjuð að labba! Vei loksins, reyndar er það frekar varkár ganga hjá henni ennþá en það er samt meira en við vorum að sjá hjá henni í síðustu viku. Hér á eftir fylgir myndband af henni að taka fyrstu skrefin, hún hefur tekið eitt og eitt skref áður en hér er hún alveg örugg :D



Freyja fór núna á fimmtudaginn til læknis, bara svona venjulegt tjékk. Hún var voða feimin fyrst en svo var hún bara kát, sat í kjöltunni hjá lækninum og skoðaði alls konar dót sem hún átti til að gera lítil börn glöð. Síðan var hún viktuð og í ljós kom að hún er orðin 11kg og 250grömm, aldeilis búin að stækka. Eftir það kom sá partur sem Freyja er ekki mjög hrifin af; bólusetning! Úff þvílík svik! Fyrst var læknirinn voða yndæll og svo stingur hún mann með nál í lærið - óforskammað!  Það tók smá stund að jafna sig en svo var allt í lagi eftir það. Freyja er enn með smá svona þykkildi þar sem hún var sprautuð en hún virðist annars ekki vera að kvarta yfir þessu, engin veikindi eða neitt svoleiðis. Svo fer hún aftur eftir 2 mánuði í nýja sprautu...sjáum til hvernig það fer... :D


Myndirnar af Freyju á Flickr

Hér er nýjasta myndasérían, þarna förum við í dýragarðinn, göngutúr og hittum Jóa þegar hann kom í heimsókn. Jói og Freyja eru alltaf voða góðir vinir þegar þau hittast :D

Nú fara að skella á heimsóknir hjá okkur á næstu dögum. Siggi kemur á fimmtudag og síðan kemur amma Björg í næstu viku, þannig að það eru spennandi tímar fram undan :)


Við reynum svo að setja inn myndir aftur fljólega og kannski fleirri vídeó :) Gaman þegar hún er farin að labba meira líka...það er allt að gerast þar þessa dagana

Kærar kveðjur frá okkur hérna í Köben og þúsund kossar
Kári, Elín og Freyja

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elskurnar mínar þetta var alveg yndislegt að sjá, maður tárast alveg að sjá Freyju taka fyrstu skrefin. Við söknum ykkar mikið;*)

kossar og knúserí;*)

Sigurlaug Ýr & Ivan

Nafnlaus sagði...

Búin að horfa á göngutúrinn a.m.k. tólf sinnum og hlusta á þessi hrífandi orð eyja og labba... bara nokkrir dagar þangað til ég sé ykkur, kossar og knús
amma bugga

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda!!
Rosalega æðir hún áfram hún Freyja! Dugleg stelpa þar á ferð.
Ég er greinilega ekki nógu dugleg að fylgjast með ykkur og fékk bara smá sjokk að sjá hana Freyju.
Hún er bara ný fædd:Þ
Það verður allavega nauðsynlegt að rekast á ykkur á komandi sumri hérna í góða veðrinu og skoða
hana betur:)
Hún er svo sæt!
Gleðikveðjur frá klakanum,
Hulda og co.

crazy steve sagði...

Heihei, til hamingju með þennan áfanga!! nú verður nóg að gera á næstunni með að hlaupa á eftir dúllunni, gaman að sjá myndir af henni, alger dúlla með lokkana sína.

Bestu kveðjur, Frikki, Eva, Sunna og Reginn