Í maí fengum við tvær heimsóknir, fyrst kom amma Bugga(Björg fyrir okkur hin :D) í heimsókn í viku og svo kom Sigrún vinkona Elínar í 3 daga(með komu- og brottafarardegi) stutt stopp á leið lengra út í heim, Bankok og Balí. Þetta voru 2 frábærar heimsóknir og gera mann bara spenntari að koma heim til Íslands í sumar að hitta alla aftur! Takk fyrir komuna þið tvær! :D
Hér eru nokkrar myndir frá þessum heimsóknum okkar:

Svo eru hér myndir frá restinni af mai, þetta er í görðum, heima og um dagin komu Andri, Árni Bragi, Tinna og Janus í pizzaveislu til okkar sem entist alveg til um tvö um nóttina. Freyja var svo spennt að hún vaknaði aftur um nóttina til að hitta á fólikð og fór ekki að sofa fyrr en það var farið :D

Freyja er alltaf að auka við orðaforðann og núna er flest dýrahljóðin komin inn, líkamspartar eru þekktir, föt og margt fleirra. Eitthvað hefur hún nú samt misskilið já og nei því hún segir yfirleitt þegar hún vill ekki eitthvað; "NEIJÚ!!!" og svo talar hún mikið um "DÚ-Í" sem við vitum ekki alveg hver/hvað er, en það gæti komið í ljós bráðlega...
Hér er svo eitt vídeó af dömunni að spjalla smá, sýna tærnar og misþyrma apanum Niels :D
Kossar og knús frá Valby
Freyja, Elín og Kári
3 ummæli:
yndislegar myndir af litlum krulluhaus :)
bið að heilsa ykkur.
Hvenær komið þið heim?
Eva Engilráð
Hæ hæ, það er enn ekki alveg víst hvenær við komum heim, við erum í einhverju íbúðarstússi og svona þannig að við verðum að láta vita aðeins seinna hvenær heimkoman er :)
Kári
hæ kæra fjölskylda!
hvað þið eruð öll orðin stór.. það er alveg ótrúlegt að fylgjast með þroskaferlinu hjá ykkur.. hahaha.. mamma gat vakað til tvö, pabbi bakað fyrir pizzupartý og fallegi krulluhausinn gengið frá eftir ósómann :) hún er orðin svo stór hún Freyja og það gleður mig alltaf að sjá svona ungar sjálfstæðar konur.. sem ganga ekki bara í bleikum pínupilsum :)
*ást frá slabbinu í reykjavík
(Lilja sem saknar þríeykisins)
Skrifa ummæli