Hér eru myndir úr afmælinu hennar Freyju þann 30.desember 2006, það kom öll fjölskyldan og skemmti sér vel. Freyja fékk auðvitað fullt af gjöfum og það voru kökur og kræsingar í hæsta gæðaflokki:

Hér eru svon myndir af Freyju á Aðfangadag, Jóladag og Gamlárs, svona mix ef það má orða það svoleiðis. Það voru teknar fleirri myndir á vélina hans Ragnars afa en við vorum ekki alveg nógu klár að kópera þær yfir áður en við héldum aftur hingað út til Danmerkur:

Síðan kemur myndasyrpa frá því þegar við vorum á Íslandi í janúar, Freyja að leika sér með nýja dótið og að prófa að fara út í snjóinn í fyrsta skipti, afi hennar bjó til snjókall og allt! Reyndar er engin mynd af honum hér en það eru margar aðrar góðar :)

Já þá er jólafríið búið og við erum komin út aftur til Danmerkur, allt er smám saman að falla aftur inn í gömlu rútínuna fyrir utan það að Freyja er orðin miklu meira þroskuð en hún var áður en við fórum og á sama tíma ekki eins til í að leika með dótið sitt, það eru aðrir hlutir sem eru meira spennandi, þannig að maður verður að reyna að sýna henni nýja hluti á hverjum degi til að gera hana glaða :) Nýjasta hobbíið er að teikna, við keyptum stóra vaxliti fyrir hana og það er svoleiðis að annað hvort vill hún lita eða hún vill borða litina, sem hún veit alveg að hún má ekki... það er smá prakkari í stelpu. Hér eru myndir af Freyju í febrúar og lok janúar í Danmörku:

Freyja er ennþá að bíða með að labba ein, hún er ekki alveg til í að byrja strax. Í staðinn er orðaskilningur orðinn mun meiri en bara fyrir mánuði síðan og hún er líka byrjuð að segja fleirri orð. Hún er líka alltaf að reyna að segja það sem við erum að segja og oft kemur það ansi fyndið út hjá henni, svo er eins og hún hafi líka einhvern enskan orðaforða...? Genin kannski eða gömul bresk sál ? :D Hún segir þetta venjulega; mamma, pabbi, afi, amma og svo kemur inn dreki(hún á teppi sem er eins og dreki) krakkar og bað (baaaah), dýrahljóð t.d voff og íh íh íh (api). Hún hefur fengið þorsk hérna úti og borðar með bestu lyst, svo hefur hún líka fengið rauðsleppu og er alveg vel ánægð með hana líka, ýsan verður að bíða því hún er ekki seld úti í fiskbúð hjá okkur.
Ég sýndi verkefnið mitt síðasta mánudag og það gekk alveg glimrandi, einu atriðin sem var sett út á, gat ég sætt mig við en annars var þetta aðallega bara hrós og róleg yfirferð, gerðu reyndar grín að því hversu alvarlegt verkefnið hefði verið, því ég skilaði 28 blaðsíðna rapporti (skýrslu) um verkefnið þarna í desember...hey ég vann mikið í því! :D Þannig að núna er ég kominn á 8.önn í skólanum og í næstu viku fer ég að vinna í 2 vikur inni á stærstu auglýsingastofu Danmerkur www.kontrapunkt.dk/. Læt vita hvernig fer :)
Annars vonumst við til þess að við náum að halda sama rythma í þessu bloggi eins og við vorum með fyrir jól því það er alveg jafn gaman fyrir okkur að sýna ykkur Freyju, eins og það er fyrir ykkur að sjá hana, held ég :D Svo má familían alveg fara að skrifa meira í álitin, það er neðst við hvern póst og maður ýtir á svör hlekkinn, þá getur maður sent smá kveðju í gegnum þetta, veljið bara að þið séuð other í hnöppunum :)
Bestu bestu kveðjur til allra heima og takk fyrir yndisleg jól og janúarmánuð, sjáumst svo aftur í júní/júlí nema þá ef einhver kemur í heimsókn ;)
Kári, Elín og Freyja
p.s Innilega til hamingju Eva, Frikki og Sunna með litla Reginn, okkur hlakkar rosa til að sjá hann enda rétt misstum við af honum xxx
5 ummæli:
Hæ sætu. Gaman að fylgjast með ykkur... Halda blögginu áfram svo við sjáum Freyju stækka. Kossar til ykkar frá mér og Söru.
Vera frænka
xxx
Hæ sætu krúsir,
Gaman að sjá nýjar myndir, svakalega gaman að sjá framfarir hjá Freyju á myndum;*) sem er eina leiðin þessa dagana. Farið varlega með ykkur.
kossar og knús *****
Sigurlaug Ýr og Ivan
Söknum ykkar svo mikið:/, erum mætt aftur að skoða, snilldarmyndir, okkur finnst alveg frábær svipurinn á Freyju þegar hún er að lita;*), takk fyrir kveðjuna, það er verið að fullnýta daginn í yndislegu veðri og svo er það dinner í kvöld, farið varlega elskurnar. kossar og knúserí xxxxx
Sigurlaug Ýr og Ivan
Komið þið sæl, elskurnar mínar þrjár. Er í Hvammi að skoða bloggið og tárast að sjá elsku Freyjukrúttið mitt munda vaxlitina!
Ég sakna ykkar mikið og finnst ansi langt þar til í mars, en þá er bara að þakka fyrir að bloggið verður áfram og huggar mig þangað til...
Hafið það sem allra best og þúsund kossar á ykkur öll,:) amma Björg
Mikið rosalega er hún Freyja nú brosmild og sæt. Gaman að fá update frá ykkur og til hamingju með verkefnið Kári.
Og já, takk takk.
-Frikki
Skrifa ummæli