Freyja fór í 5 mánaða skoðunina 30.mai og þar kom í ljós að hún er farin að þyngjast minna enda er hún farin að hreyfa sig líka miklu miklu meira. Ef maður setur hana á bakið á leikteppið sitt líða ekki meira en 10 sekúndur þar til hún snýr sér yfir á magann, svo er eins og hún hafi kannski ekki viljað vera á maganum en barasta varð að gera það samt. Hún er reyndar alveg líka að rúlla sér frá maganum yfir á bakið líka. Svo snýr hún sér í hringi á teppinu.
Hjá ljósmóðurinni fékk hún aðra sprautu með mótefnum :( Hún var sko ekkert rosa ánægð með það að láta stinga sig allt í einu í lærið án þess að vera vöruð við á undan! Hún er ennþá með smá svona mar á lærinu.
Laufey vinkona Elínar kom tilbaka frá Finnlandi í þessari viku og kom hún í heimsókn að rifja upp gömul kynni við Freyju sem tók henni með opnum örmum.
Í gær fórum við Elín í göngutúr með Freyju upp í garðinn við safn Einars Jónssonar á toppinum á Njarðargötu og Freyjugötu (fallegt nafn á götu :) Þar voru allar vinkonur Elínar komnar saman ásamt Magga, Ella og Kolla að fagna afmæli Laufeyjar. Þar var boðið upp á samlokur með túnfisk og laxasalati ásamt eplasvala og jólaköku. Við sátum þar með Freyju í dágóða stund og sleiktum sólina á meðan við hlustuðum á flottasta næturlífs slúðrið þessa stundina :D Til hamingju með afmælið Laufey!
Hér er vídeó af Freyju að snúa sér yfir á magann:

Myndirnar: Freyja að leika með Sigurlaugu frænku sinni, með mömmu og Laufeyju á kaffihúsi, heima hjá Laufayju ásamt Petru, Laufey í heimsókn hjá Freyju, Petra litríka vinkona Freyju, Freyju er farið að klæja í góminn - gott að naga broddgölt, Freyja liggur á teppinu eftir marga snúninga - pínu þreytt, í heimsókn í vinnuna til afa, í svona herðarkápu frá Bjarna og Ernu, aftur í herðarkápunni, situr hjá ömmu sinni, situr hjá mömmu sinni - búin að slefa yfir sig alla, í garðinum hans Einars Jónssonar, með ömmu að skoða ljósaketilinn, með pabba í græna kjólnum sem afi Marteinn keypti handa henni í London, að reyna að stela blaðinu hans pabba, í heimsókn hjá afa og ömmu, að skoða gleraugun hans afa sposk á svipinn.


















Góðar stundir,
Freyja, Elín og Kári
1 ummæli:
Rosa flottar myndirnar af Freyju og fjölskyldu:)
Skrifa ummæli