sunnudagur, maí 28, 2006

Fyrstu veikindin

Freyja varð í þessari viku veik í fyrsta skiptið, hún er búin að vera með leiðindarhósta og stíflað nef, við hringdum í læknavaktina en þau sögðu okkur bara að fylgjast vel með henni og láta höfuðið hvíla svolítið hærra næstu daga. Ótrúlegt hvað þessi litla manneskja er fljót að jafna sig, brjóstamjólkin er greinilega alveg þvílíkt holl fyrir svona litla kúta. Heyrði að mjólkin gæti jafnvel lagað sprungur í veggjum...:D

Freyja fór á mánudaginn í heimsókn til langafa Hallgríms og langömmu Fjólu, þar fengum við Elín dýrindis vöfflur með rjóma og kaffi.

Á fimmtudaginn fórum við svo til langafa Binna og langömmu Hönnu Mörtu, Freyja var enn smá veikluleg en lét það ekki á sig fá, hún hefur svo gaman að því að vera innan um fólkið. Amma Björg kom líka á miðvikudaginn og kíkti á litla uppáhalds barnabarnið sitt ;)

Við Elín fórum í útskriftarveislu hjá Petru vinkonu Elínar á miðvikudaginn, það var skrýtið að fara bæði frá henni svona til að fara í partí en Elín var samt á bíl. Freyja var ennþá pínu veik og því svolítið lítil í sér þegar hún átti að fara að sofa og við fórum með hana heim. Hún er samt búin að sofa vel á meðan hún hefur verið veik, alla nóttina, nema hún er e-ð þrjósk við að sofa á daginn, við höldum að það sé bæði kvefið og tanntökupirringur saman...

Við fórum síðan í innflutningspartí hjá Sigga og Valý í gær og vorum til um hálf tólf. Freyja sofnaði þá hjá afa og ömmu en var sko ekki glöð þegar við vöktum hana til að setja hana í bílstólinn, hún var fúl alla leiðina heim, ég þurfti að hamast á hringlunni sem við keyptum handa henni í Tiger, þá var hún sátt :D

Myndir: Í heimsókn hjá langafa og langömmu, Freyja að fá smá nudd frá pabba sínum, Freyja að skoða bangsaóróann sinn, með ömmu sinni, Freyja að reyna að fá sér smá appelsínudjús, með langömmu sinni, með langafa, að spjalla við ömmu Björgu í símanum, hjá afa Ragnari, berrössuð rétt áður en hún pissaði á mömmu sína :D



Þar til næst
Freyja og fjölskylda
xxx

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábærar myndir af litlu dömunni, greinilega ekkert smeyk við myndavélina :)

-Frikki

Nafnlaus sagði...

Jagodice moja slatka:)

Við áttum nú skemmtilegar stundir saman um helgina Freyja mín, margar myndir, hlegið og dansað:) hehe:)

cao bella,
Sigurlaug Ýr