Á mánudaginn fór Elín í endajaxlatöku, báðir þeir sem voru í efri góm voru teknir á sama tíma og kom ég því snemma heim úr vinnunni til að sjá um Freyju á meðan, sem betur fer gekk allt rosa vel og Elín fékk engar hamstra-kinnar eða neitt, sársaukinn var eiginlega farinn alveg daginn eftir...flott mál
Elín fékk Petru vinkonu sína í heimsókn í vikunni og fékk Freyja líka að sitja aðeins hjá hanni. Til hamingju Petra með að vera búin með allt; sýninguna og framsetinguna á verkefninu þínu.
Á fimmtudaginn var ég að vinna aðeins lengur vegna þess að við erum að spúla leikskólana á kvöldin, gera þá fína fyrir sumarið, ég var að vinna til um 8 og þegar ég kom heim ákváðum við Elín að fara með Freyju í kvöldgöngu niður í Fossvogsdalinn, við fengum okkur ís á leiðinni, en það var orðið ansi kalt þannig að við vorum nú ekki lengi en það er gott að sleppa því að hanga fyrir framan sjónvarpið á hverju kvöldi :D
Í gær gengum við niður í bæ og á Sólvallagötuna þar sem Matthías og Lúkas héldu upp á afmælið sitt, sem var 8.mai, með smá kökuboði. Freyja fékk fugla-bangsa sem er eins og tjaldur sem syngur frá afa sínum. Þegar við komum fór Freyja í fangið á ömmu Kristínu og inn í eldhús þar sem margt fólk var, þetta var svolítið mikið fyrir hana og hún fór að hágráta, það var eins og hún næði ekki andanum við grátinn, svolítið óþægilegt en svo hægt og rólega jafnaði hún sig og ekkert var grátið meira það kvöldið :)
Hér er vídeó af Freyju að tala smávegis, er kannski orðin pínu þreytt og svöng líka :D
Svo koma myndirnar; Freyja í návígi, með skordýra-sokkana sniðugu, Freyja með galopin augun á leið út í vagninn, svolítið þreytt með mömmu sinni, eitthvað að teygja sig aftur til að sjá mömmu sína, að sýna fallegu leggina sína :), tvær myndir þar sem Freyja er kát í nýjum stjörnu-náttgalla á leikteppinu sínu, að prófa að drekka smá vatn úr bleiku barbapabba könnunni sinni, með afa Marteini og ömmu Kristínu.











Bæjó spæjó,
Freyja, Elín og Kári
1 ummæli:
Já Lilja mín okkur líður svo ofsalega vel hérna í Hæðargarðinum:) Við hlökkum mikið til að fá ykkur heim í sumar það verður nú meira fjörið:)
Sýningin hennar Ingu var rosa fín svo gaman að sjá hvað fólk er að gera margt sniðugt.
Þú varst að grínast með kaffið er það ekki? hehe
Skrifa ummæli