sunnudagur, maí 21, 2006

Vinir, afmæli og morgunkaffi

Á sunnudaginn síðasta kom hún Hanna vinkona Elínar tilbaka frá einnar annar dvöl í Texas, Elín og Freyja fóru í heimsókn til Hönnu og forelda hennar á þriðjudaginn og svo kom hún í heimsókn og mat til okkar á miðvikudag. Freyja er voða hrifin af Hönnu og má hún alveg halda á henni eins og hún vill :)

Á föstudaginn fór ég í vinnustaðarpartý og grill, á meðan fóru stelpurnar í afmæli til Ernu þar sem var einnig grill. Freyja var róleg allan tíman og virti vel fyrir sér veislugesti rétt áður en hún fékk sér smá lúr... maður sér strax að hún er mikil félagsvera.

Á fimmtudaginn kom Elín niður í bæ og við gengum smá hring um miðbæinn áður en við komum okkur síðan heim í stræto, fyrsta skipti sem leið 11 var vetnisbíll, rosalega væri flott ef allir bílar væru svoleiðis.

Í morgun komu síðan Frikki, Eva og Sunna í morgunkaffi til okkar, Sunna var svo þreytt fyrst að hún svaf inni í rúmi hjá okkur og svo þegar hún vaknaði þá sofnaði Freyja, það var svo sem allt í lagi því það er aðeins of langt á milli þeirra til að þær geti leikið saman eins og er, en vonandi verða þær vinkonur seinna :)

Myndirnar: Freyja að skoða tjaldinn sinn, Freyja að reyna að sitja í stólnum sínum - hallar svolítið mikið samt :D, hjá Hönnu í kisubúning, byrjuð að labba!! nei grín en það lítur smá þannig út :D, í hvítum kjól og buxum frá Sigurlaugu frænku, teppamynd af Freyju, ein með pabba sínum, ein með mömmu sinni, verður hún tónlistarkona? Síðast kemur mynd af fröken Sunnu í heimsókn hjá okkur í morgun.



Heyrumst að viku liðinni,
Kári, Elín og Freyja

Engin ummæli: