sunnudagur, maí 07, 2006

Heitasti dagurinn hingað til...

Já í dag var alveg geggjað veður, vægast sagt. Við litla fjölskyldan fórum í langan göngutúr heiman frá okkur og inn í Grafarvoginn, þessi ganga tók um 2 tíma, en það var bara gaman í sólinni. Freyja svaf ekki allan tímann en hún svaf svo aftur þegar við vorum komin í Mosarimann...

Við fórum með Írisi á útskriftarsýninguna hjá Listaháskólanum í gær þar sem Petra vinkona Elínar útskrifaðist úr grafískri hönnun og Inga að ofan(systir bestu vinkonu Elínar og dóttir fólksins á efri hæðinni) útskrifaðist af myndlistarbrautinni. Verkefnin þeirra voru mjög flott og eins miklar andstæður og þær gátu verið, hvetjum alla að fara niður á listasafn og kíkja á öll herlegheitin. Freyja svaf nú samt eiginlega í gegnum alla sýninguna...en fannst samt gaman :D

Á þriðjudaginn labbaði Elína aftur niður í bæ og hitti mig eftir vinnu, enda er veðrið gott fyrir göngutúra, ég var síðan að vinna svolítið lengi bæði á miðvikudag, fimmtudag og svo laugardaginn sjálfan.

Amma Björg kom að passa í fyrsta skipti á þriðjudagsmorgun meðan Elín var að sprikla í leikfiminni, og skemmti sér konunglega, hún er orðin ávanabundin strax :D

Myndir: Amma Björg og Ísak í heimsókn að kíkja á Freyju, Freyja svolítið klesst uppi í sófa að brosa, Að leika með fiðrildin sín, í sniðugum þroska-leik-sokkum frá Jóa Ben, alveg að fara að velta sér á bakið, búin að velta sér á bakið (svolítið undrandi kannski), Freyja er farin að sitja oft svona með krosslagða fætur :D, slefandi á teppi, Freyja í japönskum barnafötum sem Íris keypi þegar hún var í Japan, aftur mjög ánægð í fötunum :D



Það var grillað í fyrsta skipti á þessu sumri hjá okkur í kvöld...vonandi verður sem mest af því í sumar...vill einhver vera memm?

Kossar & knús
Kári, Elín og Freyja

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt sumar elsku litla fjölskylda, risa knús og margir kossar;) kv Andrea og co