Langafi og langamma í föðurætt fengu loks að sjá litlu í betra tómi í dag, Freyja svaf mestan tímann og var voða vær, svo komu Bjössi, Unnur og Þorsteinn í smá heimsókn þangað til að skoða.
Freyja er farin að skoða meira í kringum sig án þess þó kannski að fókusera beint á andlit, en hún er voða spræk og sterk, og heldur svolítið höfði.
Hún fór líka í bað í gær og svei mér þá ef hún er ekki bara farin að hafa gaman af því að svamla í vatninu, hún grét a.m.k ekki í þetta skipti.
Við bíðum núna bara eftir því að hún fari að brosa...
Vikulegur myndaskammtur:








Elín saumaði þennan nýja rauða kjól handa Freyju í gær og dag, Freyja þakkaði vel fyrir sig enda með auga fyrir flottu design-i :D Svo er ein mynd þarna sem mætti halda að sé mynd af ísbirni en þetta er í rauninni Freyja í dulargervi í bílstólnum sínum. Mynd númer 2 er heima hjá Marteini afa þar sem hún fékk að hitta föðurbræður sína í fyrsta skipti, Tígri (the dog) Marteinsson var líka rosa spenntur fyrir henni :)
Áfram höldum við á sömu braut, meira næsta sunnudag :)
Við þrjú xxx
1 ummæli:
Hæ hæ kæru vinir...
ég er búin að vera barnasjúk frá því ég hitti hana Freyju litlu!!! hún er svo sæt og skýr af ungabarni að vera! hún er svolítið eins og lítill apaungi sem hefur eitthvað svona dalai lama element í sér...get ekki líst því betur...
Allavegna, ég bíð spennt eftir næsta "blogg posti". Og hlakka til að hitta hana aftur :-D
Kys og kram!
Íris
Skrifa ummæli