Ljósmóðirin kom aftur í þessari viku og var bara rosa ánægð með Freyju litlu, búin að þyngjast alveg ágætlega og greinilegt að henni líður vel, héðan í frá förum við bara að hitta ljósmóðurina í Efstaleiti, í læknamiðstöðinni...
Freyja heldur áfram að sofa eins og engill, mest hefur hún sofið átta og hálfan tíma, en venjulegt er að hún sofi a.m.k 6 tíma í senn, það er víst alveg súper með svona spánnýja manneskju en okkur er sagt að það gæti breyst í framtíðinni, ég held ekki, ég held að Freyja ætli að vera svona áfram...áfram svona svakalega góð við okkur :D
En það sem er helst í þessari viku er að Freyja framkallaði sitt fyrsta bros sem ekki er rembings, gott í malla bros! Hún hló að ótrúlega fyndnum brandara frá pabba sínum; ýta á nefið á henni og segja "bing, bing bing" - funny ekki satt :D Reyndar þarf ég að fara að búa til nýjan brandara því hann er ekkert svo fyndinn lengur...
Myndirnar:








Þetta eru bara myndir héðan og þaðan í þessari viku og tala í rauninni fyrir sig sjálfar, á myndinni með Elínu rétt misstum við af brosi líka, en við hljótum að ná einni bráðum. Svo er þarna líka nauðsynlegt dokumentasjón af henni á skiptiborðinu :D
Þar til næst,
við þrjú
2 ummæli:
Hún er nú voðalega fljót að verða mannaleg stelpan.
Vonandi að hún haldi þessum svefnvenjum sem lengst.
-Frikki
Innilega til hamingju með litlu fallegu dömuna. Gaman að sjá myndir. Kveðja frá Washington, Ásdís Hreinsdóttir, úr gamla hverfinu :=) (vinkona Sigurlaugar)
Skrifa ummæli