Þetta er sama myndavél og við notum til að taka ljósmyndirnar þannig að lýsing á videóinu er ekki frábær en ég held að okkur hafi samt tekist að koma þessu hjali til skila, þarna leynist líka bros inni á myndinni.


Annars hefur vikan svona liðið áfram frekar ljúft, við höldum bara okkar striki heima á Hæðargarði...sofa, gefa Freyju að borða, sofa :D Svo löbbuðum við niður í bæ á föstudaginn því við héldum að það yrði e-ð að gerast í miðbænum vegna þessara vetradaga en ekkert var að sjá, við fórum samt ekki inn á söfnin...
Svo í gær tókum við 2tíma göngutúr frá okkur upp í Grafarvog sem var góð hreyfing í góðu veðri...og Freyja sefur svo vel í vagninum
Adios í viku,
Hæðargarðsþríburarnir
3 ummæli:
Þetta var nú sætt:) litla krúsin:) svo gaman að knúsa hana Freyju litlu, við Ivan nutum þess í gær að vera með hana.
Sigurlaug Ýr
Váááááááá en hvað hún er dugleg og sæt! Ég verð að koma í heimsókn áður en ég fer til Japans. Ég hringi í dag og panta tíma ;-)
Knús,
írisin
Hæ krakkar.
Til hamingju með skírnina. Ha, ha... hún er með svo sterkann svip á fyrstu tveimur myndunum í fanginu á ykkur. Get ekki alveg sett fingurinn á það.
Kári þú tapaðir í keppninni. Ég verð að segja að það var slakur árangur, það munaði miklu.
Annars fór Ari til Hollands til að vera viðstaddur en frænkan fæddist þegar hann var í lestinni á leiðinni frá Hollandi! Mér finnst ég hafa lent í svipuðu.
Bisous de Paris.
Ást,
Vera
Skrifa ummæli