Við höfum fengið svo margar skemmtilegar heimsóknir til Freyju og reynt að taka myndir af öllum sem koma, ég tók smá myndaseríu saman fyrir þessa viku af flestum, því miður vantar myndir af sumum og aðrar myndir sem voru teknar mistókust af einhverjum ástæðum...þið sem eigið í hlut; komið aftur! :D
Hér er fyrst myndin af Freyju að skoða dót sem amma Björg gaf henni, á næstu mynd er Margrét móðursystir Elínar með Kristínu dóttur sinni, Þura kona föðurbróður Elínar, dætur hennar Gurrý og Þórhildur ásamt Brynhildi hennar Gurrý, Sigurlaug systir Elínar og Ivan kærasti hennar, samstarfskonur Elínar úr Du pareil au meme; Inga, Bryndís og Guðrún, Fanný og Gabríella, Íris, Jói Ben, Steinunn systir hans, Þossi í rauðu, Frikki, Petra, Hanna og á síðustu myndinni komu einmitt í gær Siggi, Valý og Árni Bragi í heimsókn.
Við viljum þakka öllum fyrir komuna :) komið endilega öll fljótt aftur í heimsókn...Freyja vill það :D Þossi; við vorum að klára Friends seríu 4 :D















Okkur langar að kaupa okkur einhvers konar vídeó vél til að taka vídeómyndir af Freyju, ef það er einhver sem veit um góða vél á ágætu verði endilega látið okkur vita :)
That's it for now :)
Kári, Elín og Freyja
1 ummæli:
Elsku foreldrar.
Ég fylgist með ykkur úr fjarlægð. Mér finnst hrikalegt að geta ekki séð litlu Freyju dafna með berum augum. A.m.k. ekki fyrr en í sumar. Hlakka svo til að sjá hana.
Þið eruð ógeðslega sæt!
Vera fjarlæga frænka xxx
Skrifa ummæli