þriðjudagur, október 03, 2006

Stelpurnar komnar!

Já þá hefur margt gerst hjá litlu fjölskyldunni, við erum öll saman á ný í litlu sætu Valby íbúðinni okkar.

Elín og Freyja komu á fimmtudaginn. Freyja svaf alla flugferðina og var voða góð, það voru svo fáir að fljúga að þær fengu heila röð fyrir sig og Freyja gat því sofið þvert á 2 sæti. Þegar Elín lenti í Köben var pínu erfið ferð út til mín, þetta er ekki alveg þægilegasti ferðamáti fyrir litla dömu og mömmu hennar því það voru engar barnakerrur til taks. Elín þurfti að halda á Freyju niður að töskunum þar sem einhver góð íslensk 6 manna fjölskylda ákvað að hjálpa henni. Þau fundu töskurnar hennar fyrir hana og kerruna og loks komust þær út til mín. Ég sat hinum megin við glerrúðuna horfði á og gat ekkert gert til að hjálpa...frekar óþægilegt :(

Freyja starði á mig í svona 2mínútur án þess að depla og var með mesta undrunarsvip sem ég hef séð á nokkrum manni :D hvað hún var að hugsa veit ég ekki, en mér dettur tvennt í hug: 1) "bíddu, eitthvað kannast ég við þennan gaur, hver er hann aftur?" og 2) "Núna læturðu sjá þig! Hvar hefur þú eiginlega verið í þennan mánuð! Sussussusss!". Kannski get ég spurt hana seinna að því :D En eftir þessar 2 mínútur af stari þá vorum við aftur rosa góðir vinur og höfum verið alla þessa daga sem búnir eru. Það er yndislegt að fá þær dömurnar mínar aftur til mín :)

Á föstudag fórum við í 4tíma IKEA session sem endaði með 3 kerrum og synjun á kortið mitt! Ég fór næstum að grenja því ég hafði haft óþægilegan grun um að e-ð þessu líkt myndi gerast alveg frá því að við stigum fæti inn í búðina. Eftir eitt stutt símtal heim (þetta var lás á einhverju áhættuþaki á úttektum erlendis...make-ar sens í rauninni) og allar vörurnar stimplaðar inn í kassan aftur þá komumst við heim á leið þar sem sendibíllinn beið okkar. Við erum búin að koma okkur ansi vel fyrir núþegar en þurfum bara nokkur ljós og smádót og þá erum við með fullkomna íbúð.

Mamma mín kemur svo á morgun í nokkurra daga heimsókn og það verður rosa næs, hlakka til að fá fólk í heimsókn :D

Nú eru myndirnar á nýju formati. Ég stofnaði svokallaðan Flickr account þar sem ég get hýst myndirnar á auðveldan hátt á netinu, nú þarf aðeins að ýta á linkinn sem ég set hérna fyrir neðan og svo ætti að vera frekar auðvelt að finna sér leið í gegnum myndaalbúmið (ýtið á fyrstu myndina og svo koma myndir hægra megin, ef ýtt er á þær er hægt að fara áfram í gegnum myndirnar). Ég get líka sett mikið fleirri myndir inn í hvert skipti :)

MYNDASYRPA 1

Ég set inn nýrri myndir innan skamms, því þessar eru svona left-overs frá íslandi og svo ein héðan.

Þúsund kossar til allra heima
Kári, Elín og Freyja

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

gaman að heyra að allt gekk vel, Freyja er orðin svo stór og byrjuð að fá svona sitt look, að fara úr barnaface-inu. Enda styttist í 1 árs afmælið hennar.
Bíð spennt eftir myndum af ykkur í Köben og náttrúlega nýju íbúðinni.
kveðja Eva Engilráð

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda,

Frábærar myndir, skemmtilegur texti Kári dobro:) ykkar er sárt saknað:/, við fréttum hjá mömmu að íbúðin væri fín, það er frábært:)

kærar kveðjur, ciao, ciao:)
Sigurlaug Ýr i Ivan