þriðjudagur, október 10, 2006

Amma Björg og önnur IKEA ferð



Þá kemur nýr póstur, smá nýtt skipulag hjá mér, nú er myndin efst af albúminu sem myndirnar eru í, fólk ræður þá bara hvrn hlutinn það kíkir á fyrst :)

Mamma mín kom núna á miðvikudaginn síðasta og var hér þangað til í gær, það var alveg rosalega gaman að fá heimsókn til okkar í nýju íbúðina, við getum þá montað okkur af litla kotinu :D Freyja tók ömmu sinni strax rosa vel og brosti þegar hún sá hana koma út um hliðið á flugvellinum, þær voru síðan hinir mest mátar allan tíman sem mamma var hjá okkur.

Við Elín fengum þá pössun nokkrum sinnum meðan mamma var hér, einu sinni til að fara í IKEA aftur, því við vildum ekki gera Freyju það að taka hana með, henni leiddist svo mikið síðast. Þessi seinni ferð okkar heppnaðis mun betur því við fundum nánast allt (smá ósamkomulag um sjónvarpsborð, sem við ákváðum bara að geyma smá) og við komumst í gegnum búðarkassan án nokkurra visakorta vandamála :D

Við Elín fórum svo á föstudags-bar í skólanum hjá mér sem var bara ágætur satt að segja, síðastu árin hafa þeir verið frekar leiðinlegir en þetta var skemmtileg tilbreyting. Andri og Tinna og Janus komu líka og við spjölluðum aðeins frameftir. Á sunnudeginum fengum við Elín líka að kíkja aðeins á La Fontain, okkar yndlings bar :) þar var skemmtileg jazz hljómsveit að spila sem er líka sjaldgjæft :D

Við fórum á sunnudeginum með mömmu í dýragarðinn, Freyja svaf smá fyrst en svo vaknaði hún og við kíktum á fíla. Freyja var ekkert að taka eftir honum, hann var svo stór að ég held að hún hafi bara ekki áttað sig á því að þetta væri e-ð sem væri á lífi :D hún kíkti bara á runnann sem var fyrir framan fílasvæðið :D Í apahúsinu var hún ekkert mikið að skoða apana, það voru önnur lítil börn sem voru aðal málið þar, þannig að það vantar ábyggilega nokkra mánuði upp á að hún hafi virkilega gaman að dýrunum. En við fullorðna fólkið skemmtum okkur konunglega :D

Við þökkum æðislega vel fyrir okkur mamma mín, vildum bara að þú hefðir getað verið lengur :) Nú er bara að undirbúa sig undir heimsókn frá Bjarna á föstudaginn! :D

Kærar kveðjur frá okkur þremur
kossar
Kári, Elín og Freyja

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku fjölskylda,

Svo gaman að sjá nýjar myndir, íbúðin sýnist vera rosa fín:) og Freyja alveg í essinu sínu:), gaman af þessu, við vonum að þið hafið það gott:) spennandi að fá Bjarna út, hann er orðinn spenntur að koma til ykkar:)

Bestu kveðjur,
od Sigurlaug Ýr i Ivan

Nafnlaus sagði...

Ikea er snilld, voða lítur íbúðin vel út. til hamingju með að vera reunited fjölskylda í DK. Tennurnar spretta upp á Freyju :) bið að heilsa.
kveðja Eva Engilráð

Nafnlaus sagði...

Þetta lítur allt voða kósí út hjá ykkur. Gaman að sjá myndir frá ykkur, alveg ótrúlegt hvað Freyja er orðin mannaleg.

-Frikki