
Já það hefur verið nóg að gerast hjá okkur hérna úti í Danmörku síðustu vikuna. Bjarni Bróðir hennar Elínar kom til okkar í 10daga og við áttum svo aldeilis góðan tíma saman, ég og Elín skiptust á að fara út með honum sem var fínt þó það hefði sko verið alveg frábært að hafa mömmu hérna til að passa a.m.k eitt kvöld svo við kæmumst öll saman út...en svona er þetta :D
Það tekur því varla að telja upp alla staðina sem við fórum á því þeir voru svo margir, en það voru tekin fín upprifjunarkvöld frá því að Bjarni var hér úti í námi, hann fékk okkur samt ekki til þess að fara á "all you can eat" mexikóska staðinn sem hann og Jói stunduðu stíft á sínum tíma :D
Amma mín og langamma Freyju kom með Birnu konunni hans Kjarra frænda til Danmerkur í ferð með Odd Fellow og við hittum á þær á laugardaginn. Við fórum á fínasta kaffihús sem er á efstu hæð í Illum verslunarhúsinu, þar er góð aðstaða fyrir börn og Freyja var sko mjög ánægð með að geta fylgst með krökkunum sem voru þar líka að leika sér.
Bjarni fór svo á sunnudaginn heim aftur en bara stutt því hann kemur aftur eftir 2 helgar á einhverja ráðstefnu og hátíð jólabjórsins :)
Í gærkvöldi buðum við Andra í heimsókn til okkar í smá mat sem lukkaðist bara ágætlega sem betur fer, fínasta kvöld :)
Hér að lokum er vídeó af Freyju að skríða á fulle fem, hún fer núna hvert sem hún vill - ekkert mál. Hún er ekki komin upp á hnén samt en hún er sterkí því að draga sig áfram.

Kærar kveðjur,
Kári, Elín og Freyja
1 ummæli:
vá, ég veit að maður segir þetta í hvert skipti en vá hvað hún er búin að stækka. Hárin byrjuð að vaxa líka. Ég hló og brosti þegar ég sá sætu myndirnar af henni þar sem hún var að hlæja í matarstólnum sínum.
Bið að heilsa ykkur
Skrifa ummæli