föstudagur, nóvember 03, 2006

Freyja veik en orðin frísk aftur



Freyja var veik hérna úti í Danmörku núna í fyrsta skipti um síðustu helgi, það var pínu stress því a) hún hefur aldrei verið neitt veik áður og b) við þekkjum danska systemið ekki svo vel. Hér er smá veikindasaga:

Freyja var með smá hita á föstudaginn í síðustu viku, við ákváðum að kaupa hitalækkandi til vonar og vara því við vorum ekki viss um að það væri opið um helgina ef hitinn færi lengra upp. Þegar ég fór út í apótekið var mér sagt að ég ætti ekki að kaupa neitt án þess að tala við lækninn okkar fyrst. Ég tók þá ákvörðun að fara þá bara heim og sjá til með hitann því hann var ekki svo hár. Ég talaði aðeins við mömmu í símann og hún var að vinna með hjúkrunarfræðingi sem sagði að það væri allt í lagi að gefa Freyju hitalækkandi ef okkur fannst hitinn verða mjög hár. Ég hljóp þá aftur út í apótekið og keypti vægustu gerðina af panodil junior.

Um nóttina var hitinn kominn upp í 40 gráður og þá var okkur ekki sama, ég ákvað að hringja í læknavaktina hér, eftir að hafa beðið í 15mínútur og alltaf númer 20 í röðinni ákvað ég að hringja í Kjarra frænda sem er læknir, hann ráðlagði mér að gefa henni bara hitalækkandi stíl og bíða fram á morgun og þá fara með hana að hitta lækni. Þetta gerðum við og svo hringdi ég morguninn eftir og var þá númer 9 í röðinni en það gekk töluvert hraðar í þetta skipti. Í símanum var kona sem gef engin ráð heldur pantaði tíma fyrir okkur hjá lækni sem er nálægt okkur. Þangað fórum við með Freyju vel dúðaða í vagninum og biðum í 40 mín eftir að læknirinn sagði að allt væri í lagi og Freyja þyrfti bara að komast yfir þetta sjálf, ekki gefa henni neitt meira hitalækkandi. Það gerðum við og hún er orðin frísk núna aftur, sem betur fer var henni ekkert illt og var bara frekar kát allan tímann :)

Fyndið að hugsa til þess að svona lítill líkami ræður ágætlega við svona háan hita, hún var ekki að kvarta neitt litla krúttið, bara pínu lítil í sér stundum. Við fullorðna fólkið hins vegar, við myndum vera vælandi og skjálfandi undir sæng að fá fólk til að stjana við okkur; "ægh..mér er svo illt! Augun mín..buhuu" :D

Margrét(ömmusystir Freyju), Gunni(maðurinn hennar sem keyrði flotta kaggann í brúðkaupinu :D) og Kristín (dóttir þeirra) komu í heimsókn til okkar á laugardaginn í köku og svo borðuðum við saman, það var rosa gaman, gott líka að fá ráð frá móður um hitann hjá Freyju :)

Bjarni kemur á eftir og ég fer út á völl að sækja hann, hann kemur beint í jólabjórinn sem var að koma út í dag. Danir eru nefninlega með þá venju (fyrir þá sem ekki vita) að hver bjórverksmiðja er með sér jólabjór og það er haldið upp á það fyrstu helgina í nóvember. Það fara bókstaflega allir á fyllerí, sumir fara í bjórgólf þar sem farið er á 18 bari(9 fyrir byrjendur)og einn bjór drukkinn, það er alveg brjálað því jólabjórinn er 5.8% og því frekar sterkur :D

Freyja er orðin frísk aftur og voða spræk, alltaf í góðu skapi og til í glens, hún er líka greinilega mikill prakkari, ef maður sér hana að gera e-ð sem hún ekki má og segir "nei!" þá fer hún miklu hraðar og reynir jafnvel að stinga mann af :D og hlær hátt þegar maður nær henni :D

Jæja, nóg í bili,
þúsund kossar
Kári, Elín og fríska Freyja!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku krúsurnar mínar;)
Frábært að sjá myndir, Freyja er sú allra sætasta;););), farið vel með ykkur.

ciao,
Sigurlaug Ýr & Ivan