mánudagur, nóvember 20, 2006

Í heimsókn hjá Hilmari Viggó og haustkvefið

Já það er orðið svolítið langt síðan ég skrifaði síðast en það er líka vegna þessa að við litla fjölskyldan höfum verið hálf sloj síðustu vikuna, þetta haustkvef er að herja á okkur, nefrennsli, hósti og hálsbólga. Fyrst var það ég sem varð veikur, svo Freyja og loks Elín og við erum að jafna okkur í sömu röð :D

Já það er ennþá bara haust hérna í Köben, bara núna í þessari viku fóru laufblöðin virkilega að falla og nokkrir dagar af kulda komið inn, annars var frekar heitt í gær og það ringdi allan daginn alveg eins og hellt væri úr fötu. Við buðum Andra í alvöru sunnudagsmat; hamborgarhryggur með brúnuðum kartöflum, gular baunir, rauðkál og rauðvínssósa. Hann kom á hjóli (það tekur hann um 40 mín að hjóla frá Amager) og hann mætti bara full dressaður í regngalla, í stígvélum og alles - rosalega pro! :D





Freyja fór í síðustu viku, fyrir veikindin í heimsókn með mömmu sinni til Dóru sem á Hilmar Viggó. Freyja var alveg hrikalega ánægð með að fá loksins að leika sér með e-ð annað dót, og það var allt nýtt :D í hennar augum a.m.k. Svo var líka gaman að fá smá félagsskap frá jafnaldra, ég held að Hilmar sé um 3 mánuðum eldri en Freyja...afsakið ef ég er ekki alveg með það á hreinu...

Bjarni kom líka í heimsókn til okkar svona sitt hvorum megin við Gautaborgar ráðstefnu sem var í miðri viku. Við áttum þá 2 helgar saman og það var svaka fjör. Ég og Elín fengum sitt hvoran daginn með honum úti á lífinu og það var fínt, verst að það skuli ekki vera neinn hér til að passa svo við komumst bæði saman, en við fáum kannski smá hjálp um jólin með það ;) er það ekki?! :D

Það er helst annað að frétta að ég var að fá póst í dag með þeim fréttum að við Elín erum með borð á jólamarkaðnum hér í skólanum, Elín ætlar að selja griflurnar sínar þar og ég ætla að aðstoða hana við það :D hún situr nú öll kvöld og prjónar eins og hún eigi lífið að leysa...og samt ekki komin með leið á því :)

já þetta er nóg í bili, ég reyni að hafa aðeins styttra milli pósta næst.

Kossar og knús(ef Freyja hefur þolinmæði, ekki mikill knúsari nema þegar hún er nývöknuð)

Kári, Elín og Freyja

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ciao, ciao,
Við vorum búin að bíða lengi eftir myndum núna, getum ekki beðið eftir jólaknúsinu;-), Freyja stækkar og stækkar;-)

Posdrav od Sigurlaug Ýr & Ivan

Nafnlaus sagði...

Gaman að heyra frá ykkur.
Styttist í að við sjáumst um jólin.
bið að heilsa
kveðja Eva

Nafnlaus sagði...

Hamborgarhryggur!!! Djöfull eruð þið grand á því. Annars hefur verið sama haustkvefs sagan hjá okkur, gott að öllu er að skána.
Sætt þegar tennurnar eru að sýna sig svona hér og þar, það er líka farið að síkka soldið mikið hárið á dömunni.
Hlakka til að sjá ykkur.
Frikki

Nafnlaus sagði...

en skemmtilegar myndir,hlakka til að sjá ykkur um jólin

Nafnlaus sagði...

Freyja er bara að verða risi