Jæja, hér er komin síða tileinkuð litla barninu okkar, sem á að fæðast bara á næstu dögum. Hún er sett á 17.desember og vonandi kemur hún bara þá, ekkert að þvælast inni í bumbunni mikið lengur, enda ábyggilega orðið vel þröngt þar núna.
Elín er nú búin að vera hress alveg fram að þessu, fékk nokkur mígrenisköst í fjórða mánuði (sem betur fer hvarf það svo aftur fljótt) en núna er hún orðin pínu þreytt, þetta eru náttúrulega orðnir 9 mánuðir, ótrúlegt hvað tíminn flýgur hratt.
Planið er að gera almennilega heimasíðu fyrir hana með heimagerðri grafík o.s.fr en við ætlum að notast við þetta blogger-dót fram að því (ég reyni að koma þessu í verk...kannski verður það hægt á nóttunni þegar sú litla vill ekki sofa...hehehe, vongóður). Ég ætla að setja upp einhvers konar myndasíðu hér líka plús litlar upplýsingar um þá litlu.
Þið lesendur getið andað rólega þetta verður ekki svona barnalands fyrstu persónu barnablogg, þar sem barnið talar meira um foreldra sína en öfugt...Þið verðið líka að kommentera á póstana okkar svo við vitum hvað við getum bætt :)
Þar til næst,
Kári
mánudagur, desember 12, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli