sunnudagur, júlí 09, 2006

kári steggur og freyja skvísa

Já núna er farið að styttast í brúðkaupið hjá okkur að við höfum verið hálf léleg í að taka myndir, en sem betur fer tókum við nokkrar og svo voru til aðrar sem voru teknar á myndavélina hans Gísla Ragnars.

Síðasta vika fór í mikið brúðkaupsstúss, við kíktum í heimsókn til prestsins og skoðuðum salinn sem veislan verður í. Pöntuðum matinn og kökuna og keyptum skreytingar á borðin, blómin og Elín hélt áfram að klára kjólinn sinn. Þetta er sem betur fer allt að smella saman og vonandi verður þetta allt rosa fínt að lokum.

Vinir mínir ákváðu að steggja mig á föstudaginn, það fór allt rólega fram sem betur fer; við byrjuðum upp úr 5 að spila fótbolta við Þorragötuna þar sem 2 leikir voru spilaðir(ég var í bæði skiptin í tapliðinu), eftir það var farið í Vesturbæjarlaugina í heita potta og eimbað. Strákarnir voru svo búnir að panta borð á Horninu þar sem við borðuðum dýrindis pizzur. Eftir það tók við smá pöbbarölt og ég var kominn frekar snemma heim. Ég hef síðan verið með harðsperrur í vöðvum sem ég vissi ekki einu sinni að væru í líkamanum... :D

Við fórum með Freyju í heimsókn til langafa og langömmu í Kópavoginum í dag í hádegismat, þau voru hress og Freyja var góð eins og alltaf.

Hér eru myndirnar; Freyja á bleyjunni í sófanum hjá afa og ömmu, Freyja með tannburstann sinn, með mömmu sinni, hjá langömmu Fjólu, að lúlla hjá afa Ragnari, með bangsa í bílstólnum, eitthvað að smakka, hvað er að gerast hér?, að skoða skyrlokið, með langömmu Hönnu Mörtu, með langafa Binna, EKKI ánægð að þurfa að klæða sig...



Kossar
Elín, Freyja og Kári

P.s Til hamingju allir Ítalir sem eru að lesa bloggið :D

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mynd 8 er frábær.

crazy steve sagði...

Flottur bangsi, þetta hlýtur að vera æskubagnsi annaðhvort foreldris. Ég ætla að giska á Kára!

Nafnlaus sagði...

Neibbs því miður Eva, þennan bangsa átti Sigurlaug systir hennar Elínar þegar hún var lítil :) Ég er alveg sammála þér Bjarni að þessi mynd er brilliant :D

Nafnlaus sagði...

Hehe þetta er snilldarbangsi, mikill karakter:) Frábærar myndir:), það er svo gaman að fylgjast með litla englinum:) Ég og Ivan erum svo spennt fyrir laugardeginum:):):)

cao, Sigurlaug Ýr