
Það er orðið ansi langt síðan við póstuðum hér síðast myndum og margt hefur gerst í millitíðinni sem flestir kannski sem við þekkjum vita um, en hér er fyrsti pósturinn af nokkrum sem á að reyna að fylla upp í þetta tómarúm sem er búið að vera hér á blogginu undanfarið.
Það er bæði með söknuði og gleði sem maður kíkir á þessar myndir núna, það var gott að vera í Kaupmannahöfn en það er líka frábært að vera komin heim aftur (þrátt fyrir þetta ástand hérna). Freyja er alveg að elska leikskólann sinn og Elín er mjög ánægð með skólann sinn. Ég er að vinna með frábæru fólki og hef lært margt síðan ég byrjaði - vonandi gerir þetta ástand mann bara betur í stakk búinn að vinna við það sem manni finnst skemmtilegast. Og ég vona að foreldrar gleymi ekki að njóta tímans með börnunum sínum. Það er það sem gerir mig jákvæðan í þessu árferði er Freyja, með brosi og skemmtilegum orðum auk kossa og knúsa gerir það að við á Laugateig höfum varla tekið eftir þessu sem þegar hefur gerst - "varla"
Vonandi er ennþá einhver að kíkja hérna inn öðru hverju... :)
Knús frá okkur
Kári, Elín og Freyja
1 ummæli:
Maður er bara orðinn vel peppaður upp fyrir sumarið eftir þessa seríu :)
-Frikki
Skrifa ummæli