sunnudagur, júlí 02, 2006

elín gæsuð og freyja 6 mánaða

Nú fer að líða að brúðkaupinu hjá okkur þann 15.júlí og vikan hefur farið mikið í alls konar stúss í sambandi við það. Við erum búin að vera að finna veisluþjónustuna, smakka brúðartertur, senda boðskort og finna skreytingar fyrir veisluborðin.
Af minni fjölskyldu í Englandi munu bara afi og amma koma í heimsókn og verður það rosa gaman að sjá þau tvö á þessum degi, við förum bara með Freyju í heimsókn til hinna einhvern tíma seinna.

Á föstudaginn varð Freyja hálfs árs! það er alveg ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt þessa fyrstu 6 mánuði Freyju. Þess má geta að Frikki vinur átti líka afmæli þennan sama dag; Til hamingju Frikki!!

Vera systir kom heim frá Frakklandi í síðustu viku og kíkti í heimsókn til okkar ásamt Kristínu og Ísak sem var nýbúinn að vinna leik með KR og var því í góðu skapi.

Ég var einn með Freyju í gærkveldi í fyrsta skipti á meðan vinkonur Elínar voru að gæsa hana. Það fór allt rólega fram og fóru þær með hana í fjöruna við Eyrarbakka og skáluðu í kampavíni áður en haldið var á veitingarhúsið Hafið Bláa og borðaður dýrindis matur. Stelpurnar fóru svo niður í bæ eftir það og Elín skemmti sér konunglega. Freyja var eins og engill hjá mér, borðaði graut og drakk brjóstamjólk úr pela auk stoðmjólkur svona rétt fyrir svefninn.

Myndir: 2 myndir af Freyju í fanginu á ömmu Rósu, með Ísak frænda, með Veru frænku, með ömmu Kristínu, grallarasvipur í dótakassanum, kósí hjá afa og ömmu og bangsa, mynd af tönninni, í baði með öndinni(já, ég þarf að fara í klippingu :D), stelpurnar að sækja Elínu, að dansa með pabba sínum.



Jamm og jæja, heyrumst fljótlega!
Kossar frá Elínu, Freyju og Kára

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, ekki slæmt að vera 1/2 afmælisbróðir Freyju. Flott síðasta myndin af ykkur feðginunum, þó að hár föðursins sé nokkuð crazy :)
BTW, djöfull er Ísak orðinn rosalega stór.
-frikki

Nafnlaus sagði...

já derhúfuhár getur verið alveg magnað :D Ísak er orðinn huge og er bara að breytast í útliti líka, farinn að líkjast mömmu sinni miklu meira núna...