föstudagur, september 15, 2006

Danmerkurpóstur nr.1

Hæ öll sömul, ég biðst afsökunar á því hve langt er síðan myndir komu inn síðast, en það er náttúrulega góð útskýring til á því. Ég er sem sagt búinn að vera hér í Köben núna í næstum 2 vikur og sakna stelpnanna minna alveg ógurlega. Ég er samt búinn að heyra í Elínu daglega(guð blessi dönsku strákana sem fundu upp skype-ið) og núna síðustu daga hef ég fengið myndir af þeim frá Elínu gegnum messengerinn.

Skólinn byrjaði vel hjá mér og fékk ég gott hrós frá kennaranum mínum sem er akkúrat það sem maður þarf eftir eins árs fjarveru. Núna er svo komið annað verkefni þar sem ég á að setja upp ljóð og reyna að myndskreyta með typografíu, sjáum til hvernig það fer.

Hér eru myndirnar af Freyju minni og Elínu :)
Fyrstu 3 myndirnar sýna Freyju að chilla í sófanum og smám saman fara að skellihlægja (ótrúlega gaman að sjá alla þessa nýju svipi sem eru að koma hjá henni, sem ég missti reyndar af...en það kemur svo margt fleirra), svo koma 3 myndir af Freyju í baði (það er orðið aðal-sportið þessa dagana :D), því næst er mynd af Freyju með annan fyndinn svip hehe, tvær myndir af henni í rúllufáknum og á þeirri seinni er hún með ENN annan svip!, 3 myndir síðan af uppáhalds skvísunum mínum í öllum heiminum, 2 af Freyju með dótið sitt og nýja svipi :D, og loks er ein mynd af Freyju í berjamó með mömmu sinni og ömmu sinni (það er rosa rólegt og gott í sveitinni :D)



Þá er þetta komið í bili, næst verða vonandi myndir af ökkur öllum 3 saman í kaupmannahöfn, ég er nefninlega að fara að kíkja á íbúð núna rétt bráðum og vonandi er hún bara fín fyrir okkur í litlu fjölskyldunni.

Kossar til allra heima, ég sakna ykkar strax og þúsund kossar til Freyju og Elínar sem ég sakna mest, ég er bara 1/3 maður hérna einn.

Kveðja frá Köben og Reykjavík,
Kári, Elín og Freyja

3 ummæli:

Jonina de la Rosa sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Jonina de la Rosa sagði...

ææííjji... Elín þú og Freyja eru svo sætar mig langar til kreista ykkur og knúsa... hihi.... :)

Nafnlaus sagði...

Srce moj Freyja,

Svo sætur lítill engill:), volim te puno:)

Sigurlaug Ýr & Ivan