laugardagur, apríl 01, 2006

Fyrsta sprautan

Sæl veriði öll sömul, hér kemur fyrsti laugardagspósturinn, við verðum nefninlega í heimsókn hjá afa og ömmu Birni og Hönnu Mörtu á morgun og best þá bara að skella þessu inn núna :) Vona að ykkur sé sama :)

Þessi vika var mín síðasta sem heimavinnandi faðir, þó svo að ég glaður vildi vera í frí-i frá bæjarvinnunni þar til við fjölskyldan förum út aftur til Danmerkur. Í dag laugardag var þessi dagur sem við þrjú vorum búin að kvíða fyrir í langan tíma, fyrsti vinnudagurinn og hann var kaldur. Það var sko tómlegt einn í vinnunni en sem betur fer var þetta stuttur dagur, við vorum búnir að vinna um 2 og Elín og Freyja komu að sækja mig, það voru glaðir endurfundir :) Svo höfum við einn dag til að jafna okkur á þessu áður en ég byrja 5 daga vinnutörn. Þetta verður fínt, það er bara erfitt að byrja á þessu, við gerum kvöldin skemmtileg í staðinn.

Í vikunni fór Freyja í þriggja mánaða skoðun, hún hafði þyngst um hálft kíló á tuttugu dögum sem var bara alveg eins og það átti að vera, læknirinn sem kom og kíkti á hana gaf henni tíu í einkunn (montmont) og aukastig fyrir að vera orðin pínulítil mannafæla, því það er svo mikið þroskamerki! :D Svo kom að þeim hluta sem var ekki svo skemmtilegur, það er nefninlega bólusett fyrir kikhósta, barnaveiki, Hib og mænusótt í þriggja mánaða skoðuninni...hún var ekki sátt, en var samt rosa fljót að jafna sig, grét bara í smá stund. Svo fékk hún föt í afmælisgjöf í staðinn :D

Á myndunum í dag liggur Freyja á sænginni sinni á fyrstu myndinni, svo er hún að dást að fjólubláa asnanum sem syngur, þar á eftir heldur mamma á henni við stóra skemmtilega spegilinn heima, svo er pabbi að halda á henni. Á næstu mynd heldur hún fast í nýju bókina sína sem er hennar uppáhald þessa dagana (gjöf frá Andreu - hitti sko beint í mark :), á þeirri þar á eftir er hún einmitt að fletta í gegnum þessa ágætu bók, "ertu að taka mynd af mér?", og að lokum að lesa með ömmu sinni.



Fingurkossar,
Kári, Elín og Freyja

4 ummæli:

crazy steve sagði...

Voðalega er hún orðin stór. Strax byrjuð að glugga í bækur. Mikið þroskamerki þar á ferðinni. :)
bið að heilsa Eva og familía

Nafnlaus sagði...

Þetta er nú meiri dúllan! , ótrúlegt hvað er mikill munur á henni á milli vikna.

-Frikki

Þossi sagði...

Strax farin að lesa :D Það kalla ég gott. Gleðikveðjur,
Þossi

Nafnlaus sagði...

hæ litla fjölskylda, en hvað mín er orðin stór lítil sæt músímús;) Gaman að hún hefur gaman af lestrinum, litli bókaormurinn, Knús og kveðja Andrea og Hrafntinna;)