sunnudagur, febrúar 26, 2006

Hún hjalar

Pósturinn í dag er óhefðbundinn, því hér eru 2 tilraunir til að taka upp vídeó af Freyju að hjala :) Málið er með hana Freyju að hún er orðin hálfgerð prímadonna, gerir alls ekki hlutina nema þegar hún sjálf ákveður að gera það, auk þess setur hún upp svip þegar hún sér myndavélina, hún er búin að fatta hvaðan þessi skæri blossi kemur :D

Þetta er sama myndavél og við notum til að taka ljósmyndirnar þannig að lýsing á videóinu er ekki frábær en ég held að okkur hafi samt tekist að koma þessu hjali til skila, þarna leynist líka bros inni á myndinni.





Annars hefur vikan svona liðið áfram frekar ljúft, við höldum bara okkar striki heima á Hæðargarði...sofa, gefa Freyju að borða, sofa :D Svo löbbuðum við niður í bæ á föstudaginn því við héldum að það yrði e-ð að gerast í miðbænum vegna þessara vetradaga en ekkert var að sjá, við fórum samt ekki inn á söfnin...

Svo í gær tókum við 2tíma göngutúr frá okkur upp í Grafarvog sem var góð hreyfing í góðu veðri...og Freyja sefur svo vel í vagninum

Adios í viku,
Hæðargarðsþríburarnir

mánudagur, febrúar 20, 2006

Skírn

Í gær var Freyja skírð, það útskýrir kannski hvers vegna þessi póstur í dag kom ekki í gær :D

Þetta gekk allt saman rosa vel, fyrst var hitað upp heima, Freyja klædd í pre-skírnar fötin og lagt lokahönd á þær veigar sem átti að bjóða upp á í veislunni. Síðan var haldið af stað upp í Hóla og Fellakirkju í Breiðholti þar sem allir komu saman rétt fyrir 2. Við vorum bara ein í kirkjusalnum með prestinum, allt í einu fékk Freyja einhverja kalda vatnsgusu á hausinn og þá varð hún sko reið, það var ekki aftur snúið; hún grét og grét alveg þar til hún fékk að drekka eftir athöfnina :D

Þetta gekk annars rosa vel, þrátt fyrir allan grátinn, við komum svo öll til foreldra Elínar í Grafvoginum og fengum okkur góðar kökur og góðan mat. Freyja ákvað samt að sofa á meðan á veislunni stóð værum svefni en kíkti aðeins á gesti svona rétt í lokin.



Fyrstu myndirnar eru af Freyju með okkur Elínu áður en allt byrjaði, svo er mynd af okkur með prestinum Guðmundi og vottunum Björgu(mamma mín) og Rósu (mamma Elínar), þar á eftir erum við Elín að reyna að hugga þá litlu...gekk ekki vel :D, svo hátíðarborðið heima sem var vægast sagt girnilegt, Freyja sofandi í 31árs gömlum skírnarkjól, Freyja að kíkja á gestina og svo hópmynd af foreldrum og skírnarvottum :)

Við Elín viljum þakka rosalega vel fyrir Freyju okkar og auk þess þakka fyrir frábæran dag með fjölskyldunum :D Nú er bara að bíða eftir ársafmælinu :D

Gaman að heyra frá þér Vera! Hver vann; ég eða systir Ara? :D xxx

Kveðjur frá nýskírðri Freyju og stoltum foreldrum

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Heimsóknirnar

í þessari viku fór Freyja í 6 vikna skoðun á heilsugæsluna í Efstaleiti og þar fengum við að vita að stelpan okkar er að standa sig svona svakalega vel, búin að þyngjast um 300gr á 10 dögum og búin að lengjast um 3cm síðan hún fæddist. Freyja er líka farin að fylgja eftir þegar maður heldur einhverju fyrir framan hana og færir til, en auðvitað þóttist hún ekkert kunna þetta þegar ljósmóðirin var að prófa það...litli prakkarinn :D

Við höfum fengið svo margar skemmtilegar heimsóknir til Freyju og reynt að taka myndir af öllum sem koma, ég tók smá myndaseríu saman fyrir þessa viku af flestum, því miður vantar myndir af sumum og aðrar myndir sem voru teknar mistókust af einhverjum ástæðum...þið sem eigið í hlut; komið aftur! :D

Hér er fyrst myndin af Freyju að skoða dót sem amma Björg gaf henni, á næstu mynd er Margrét móðursystir Elínar með Kristínu dóttur sinni, Þura kona föðurbróður Elínar, dætur hennar Gurrý og Þórhildur ásamt Brynhildi hennar Gurrý, Sigurlaug systir Elínar og Ivan kærasti hennar, samstarfskonur Elínar úr Du pareil au meme; Inga, Bryndís og Guðrún, Fanný og Gabríella, Íris, Jói Ben, Steinunn systir hans, Þossi í rauðu, Frikki, Petra, Hanna og á síðustu myndinni komu einmitt í gær Siggi, Valý og Árni Bragi í heimsókn.

Við viljum þakka öllum fyrir komuna :) komið endilega öll fljótt aftur í heimsókn...Freyja vill það :D Þossi; við vorum að klára Friends seríu 4 :D



Okkur langar að kaupa okkur einhvers konar vídeó vél til að taka vídeómyndir af Freyju, ef það er einhver sem veit um góða vél á ágætu verði endilega látið okkur vita :)

That's it for now :)
Kári, Elín og Freyja

sunnudagur, febrúar 05, 2006

Bæjarferð o.s.fr

Í þessari viku gengum við niður í bæ með Freyju í vagninum, það tók ekki nema um 45-60mín, og það er allt í lagi í þessu fína vorveðri hérna á Íslandi. Ef maður fer bara inn í hverfin en ekki meðfram Miklubraut er þetta bara ansi skemmtileg leið. Líka alveg nauðsynlegt að komast aðeins á gömlu heimaslóðirnar :D

Ljósmóðirin kom aftur í þessari viku og var bara rosa ánægð með Freyju litlu, búin að þyngjast alveg ágætlega og greinilegt að henni líður vel, héðan í frá förum við bara að hitta ljósmóðurina í Efstaleiti, í læknamiðstöðinni...

Freyja heldur áfram að sofa eins og engill, mest hefur hún sofið átta og hálfan tíma, en venjulegt er að hún sofi a.m.k 6 tíma í senn, það er víst alveg súper með svona spánnýja manneskju en okkur er sagt að það gæti breyst í framtíðinni, ég held ekki, ég held að Freyja ætli að vera svona áfram...áfram svona svakalega góð við okkur :D

En það sem er helst í þessari viku er að Freyja framkallaði sitt fyrsta bros sem ekki er rembings, gott í malla bros! Hún hló að ótrúlega fyndnum brandara frá pabba sínum; ýta á nefið á henni og segja "bing, bing bing" - funny ekki satt :D Reyndar þarf ég að fara að búa til nýjan brandara því hann er ekkert svo fyndinn lengur...

Myndirnar:


Þetta eru bara myndir héðan og þaðan í þessari viku og tala í rauninni fyrir sig sjálfar, á myndinni með Elínu rétt misstum við af brosi líka, en við hljótum að ná einni bráðum. Svo er þarna líka nauðsynlegt dokumentasjón af henni á skiptiborðinu :D

Þar til næst,
við þrjú

sunnudagur, janúar 29, 2006

Alveg að nálgast mánuðinn

Á morgun verður Freyja eins mánaðar gömul, við höldum afmæli...bara lítið fyrir okkur þrjú :D

Í þessari viku hefur hún litla okkar verið að prófa að sofa mikið, eina nóttina svaf hún í heila átta tíma, svo líka sjö tíma aðra nóttina, þetta er ekki alveg rútína ennþá því í nótt voru það um 3-4 tímar á milli þess sem hún vaknaði. Það er gott að geta sofið eina og eina nótt svona næstum venjulegum svefni :)

Við fórum líka í fyrsta skipti í gönguferð með Freyju í vikunni, við þurftum í banka þannig að það var tilvalið að skreppa aðeins í Kringluna örstutt, það er bara um 15-20 mínútna labb þangað frá okkur og í fyrradag var bara fínasta veður. Freyja sá ekkert af Kringlunni enda svaf hún værum svefni allan tímann. Ef einhver áskotnast svona barnavagn í fullorðins stærð og er að leita að einhverjum til að keyra um þá býð ég mig fram, það lítur rosalega notalega út...

Frikki, Eva og Sunna komu í heimsókn til okkar í gær og við náðum einni mynd af Sunnu, sem byrjaði pínu sofandi, varð síðan feymin en á endanum spræk að sópa gólfin hjá okkur :D

Hér eru myndir af öfum, tám, vagnferð, Sunnu og mynda session-i af okkur syfjuðum og nývöknuðum en samt hressum :D



Ljósmóðirin kemur til okkar á morgun, það verður gaman að sjá hversu mikið hún hefur þyngst á síðustu 2 vikum (Freyja, ekki ljósmóðirin)

Kossar frá vagn-rúnturunum í Hæðargarðinum

sunnudagur, janúar 22, 2006

Vikulega upp-deitið

Þá er Freyja orðin 3 vikna, það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur, bráðum verð ég bara að fara í vinnuna aftur...nei nei, ég tek núna 2 mánuði í frí og svo í sumar tek ég kannski einn mánuð þannig að hægt sé að spóka sig um í sólinni með vagn og ís að gefa öndum brauð.

Langafi og langamma í föðurætt fengu loks að sjá litlu í betra tómi í dag, Freyja svaf mestan tímann og var voða vær, svo komu Bjössi, Unnur og Þorsteinn í smá heimsókn þangað til að skoða.

Freyja er farin að skoða meira í kringum sig án þess þó kannski að fókusera beint á andlit, en hún er voða spræk og sterk, og heldur svolítið höfði.

Hún fór líka í bað í gær og svei mér þá ef hún er ekki bara farin að hafa gaman af því að svamla í vatninu, hún grét a.m.k ekki í þetta skipti.

Við bíðum núna bara eftir því að hún fari að brosa...

Vikulegur myndaskammtur:


Elín saumaði þennan nýja rauða kjól handa Freyju í gær og dag, Freyja þakkaði vel fyrir sig enda með auga fyrir flottu design-i :D Svo er ein mynd þarna sem mætti halda að sé mynd af ísbirni en þetta er í rauninni Freyja í dulargervi í bílstólnum sínum. Mynd númer 2 er heima hjá Marteini afa þar sem hún fékk að hitta föðurbræður sína í fyrsta skipti, Tígri (the dog) Marteinsson var líka rosa spenntur fyrir henni :)

Áfram höldum við á sömu braut, meira næsta sunnudag :)
Við þrjú xxx